Amazon kaupir Whole Foods fyrir 1.370 milljarða

Smásölu­risinn Amazon heldur áfram að stækka. Tilkynnt var um það í dag, að hann væri að kaupa smásölu­keðjuna Whole Foods.

Smásölu­risinn Amazon tilkynnti um kaup á öðrum smásölu­risa, Whole Foods, í dag en kaup­verðið er 13,7 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.370 milljörðum króna.

Verð­miðinn á Amazon nemur nú 460 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 50 þúsund milljörðum króna. 

Verð­miðinn er tæplega 30 prósent hærri en markaðs­verðið segir til um. Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri Amazon, segir að með þessum kaupum muni Amazon styrkja sig enn meira sölu á matvælum, en gríðar­legur vöxtur hefur einkennt starfsemi fyrir­tækis á svæði netverslunar með mat, á undan­förnum misserum.

Hann segir að milljónir manna þekkja fyrir­tækið fyrir góðan og heil­brigðan lífrænan mat, og að það verði kapp­kostað að halda því góða starfi áfram sem unnið hefur verið hjá Whole Foods í meira en fjóra áratugi. 

Gert er ráð fyrir að yfirtakan muni endanlega klárast á seinni hluta ársins. Whole Foods verður þá orðin hluti af Amazon verslunar­keðjunni, og má gera ráð fyrir að netverslun fyrir­tækisins muni fram­þróast hratt á næstu misserum.

John Mackey, forstjóri Whole Foods, segir að með þessum kaupum séu hluthafar að fá gott verð fyrir hlutabréf sín, og að með þessum móti sé tryggt að besta mögulega nýsköpun í verslun muni eiga sér stað hjá Whole Foods, og viðskipta­vinirnir muni hagnast á því.

Whole Foods rekur 460 verslanir í Banda­ríkjunum, Kanada og Bretlandi, en heima­markaður fyrir­tækisins er í Banda­ríkjunum. Verslanirnar eru markaðs­settar fyrir fólk með mikinn kaupmátt, og eru stað­setningar verslana miðaðar við þá stöðu.

Amazon hefur á undan­förnum misserum sýnt á spilin í tækni­þróun sinni, þegar kemur að smásölu­verslun, og er gert ráð fyrir að Amazon Go verslanir þess muni skjóta upp kollinum á næstunni víða um Banda­ríkin.

Í dag er aðeins ein Amazon Go verslun, við höfuð­stöðvar Amazon í Seattle. Í versluninni verða engir starfs­menn eða búðar­kassar, og munu viðskiptin fara fram í gegnum snjall­símann. Myndavéla­tækni og gervi­greind sér til þess að viðskipta­vinurinn getur gengið inn í búðina beint að vörunni, og tekið hana með sér út, án þess að stoppa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár