Kúvending á viðhorfi til Bandaríkjanna

Óhætt er að segja að fólk utan Banda­ríkjanna hafi önnur viðhorf til Trump en Obama.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Algjör kúvending hefur orðið á viðhorfi fólks í heiminum til Banda­ríkjanna, eftir að Donald J. Trump tók við sem forseti Banda­ríkjanna, 8. nóvember í fyrra.

Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC í dag, og er vitnað til rann­sóknar Pew Research Center en könnunin náði til 40 þúsund einstaklinga frá 37 ríkjum.

Svo virðist sem íbúar utan Banda­ríkjanna hafi litla sem enga trú á Trump, þegar kemur að því að gera gagn fyrir heiminn, en viðhorf til Barack Obama, fyrr­verandi forseta Banda­ríkjanna, var hins vegar allt annað.

Í könnuninni kemur meðal annars fram að tæplega 88 prósent af íbúum Suður-Kóreu hafi haft mikla trú á Obama, en sama hlutfall er 17 prósent þegar það er spurt um trúna á góðum verkum Trump fyrir heiminn.

Svipaða sögu er að segja af öðrum löndum, ef frá eru talin Ísrael og Rússland. Í Ísrael eru 56 prósent á því að Trump sé góður fyrir þróun í heiminum, en sama hlutfall var 49 prósent hjá Obama. Í Rússlandi hefur orðið algjör kúvending á viðhorfinu, því 53 prósent telja að Trump sé líklegur til að gera það gott í þágu heimsins, en hlut­fallið var aðeins 11 prósent hjá Obama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár