BA veitir WOW samkeppni um Pittsburgh

Flug­félagið British Airways hefur hafið reglulegt Evrópu­flug til og frá Pittsburgh í Banda­ríkjunum. Með því missir WOW air stöðu sína sem eina reglulega Evrópu­flug til og frá borginni.

Pittsburgh í Pennsylvaníu
Pitts­burgh í Penn­syl­vaníu

WOW air er ekki lengur eina flug­félagið sem flýgur milli Pittsburgh í Banda­ríkjunum og Evrópu allan ársins hring, en British Airways hefur byrjað að fljúga til borgarinnar frá London fjórum sinnum í viku. Þetta kemur fram í frétt á vef Túrista.

Samkvæmt fréttinni hefur WOW air verið eina flug­félagið sem boðið hefur upp á heilsárs­flug milli Pittsburgh og Evrópu frá jómfrúar­ferð félagsins í júní í fyrra. Fyrir það hafi Evrópu­flug borgarinnar aðeins takmarkast við sumar­ferðir til Parísar og Frankfurt. WOW flaug fjórum sinnum í viku til borgarinnar, en sæta­nýting í þeim flugum var 75,5 prósent.

Í gær boðaði svo British Airways komu sína til borgarinnar. Líkt og WOW ætlar breska félagið að fljúga þangað fjórum sinnum í viku frá Heathrow flugvelli við London.

Pittsburgh er önnur stærsta borg Pennsylvaníu í Banda­ríkjunum, en íbúar hennar eru rúmlega 300 þúsund.Frá jómfrúar­ferð sinni og allt til ársloka 2017 flutti WOW air samtals 41.095 farþega til og frá borginni.

Kjarninn hefur áður fjallað um rekstur WOW air, en flug­félagið tapaði um 2,37 milljörðum íslenskra króna í fyrra. Að sögn Skúla Mogensen, forstjóra og stofnanda flug­félagsins, var megin­ástæða verri rekstrar ytri markaðs­aðstæður, svo sem aukin samkeppni á lykil­mörkuðum félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár