Tap WOW yfir 2,3 milljörðum

WOW air birti í gær rekstrar­niðurstöðu sína frá árinu 2017, en samkvæmt honum tapaði flug­félagið yfir 2,3 milljörðum íslenskra króna.

Hækkandi olíuverð virðist hafa bitnað töluvert á rekstri WOW air.
Hækkandi olíu­verð virð­ist hafa bitnað tölu­vert á rekstri WOW air. Mynd: Kjarninn.

Tap flug­félagsins WOW air nam 22 milljónum Bandaríkja­dala, sem samsvarar um 2,37 milljörðum íslenskra króna. Rekstrar­hagnaður félagsins fyrir skatta og afskriftir lækkaði um 42 milljónir Bandaríkja­dala frá síðasta ári. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá flug­félaginu í dag.

Samkvæmt tilkynningu WOW námu tekjur félagsins um 486 milljónum Bandaríkja­dala, sem er 58% aukning miðað við árið á undan. Svokölluð EBITDA félagsins, eða rekstrar­hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns­gjöld og tekju­skatt var 4 milljónir Bandaríkja­dala, saman­borið við 46 milljónir Bandaríkja­dala árið 2016.

Tap ársins 2017 eftir tekju­skatt var 22 milljónir Bandaríkja­dala miðað við 35,5 milljónir Bandaríkja­dala hagnað árið áður. Sé miðað við núverandi gengi jafn­gildir tap WOW 2,37 milljörðum íslenskra króna. Eiginfjár­hlutfall félagsins var 10,9% í árslok.

Hærri kostnaður og meiri samkeppni

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, segir afkomuna fyrir 2017 hafa verið vonbrigði þar sem vöxtur félagsins og fjár­festing reyndust dýrari en búist var við. „Ytri aðstæður hafa reynst félaginu krefjandi, svo sem hækkandi olíuverð, styrking krónunnar, dýrt rekstrar­umhverfi á Íslandi og mikil samkeppni lykil­mörkuðum félagsins,“ bætir Skúli við.

Kjarninn greindi áður frá versnandi stöðu Icelandair, en flug­félagið sendi frá sér afkomu­viðvörun síðasta sunnudag þar sem afkomuspá þeirra fyrir 2018 var lækkuð um 30%. Í viðvöruninni sagði Björgólfur Jóhannson, forstjóri félagsins, tölurnar einnig vera „talsverð vonbrigði“ og nefndi þar hækkun á olíuverði síðustu mánaða og enga hækkun á flug­fargjöldum sem helstu ástæður verri afkomu en áður var spáð. Í kjölfarið lækkaði hlutabréfa­verð félagsins um fjórðung á einum degi.

Eftir afkomu­viðvörun Icelandair veltu greiningar­aðilar upp stöðu WOW air, en Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskipta­ráðs, sagði þögn flug­félagsins um fjárhags­stöðu sína eina og sér vera umhugsunar­verða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár