Skorin upp herör gegn kóleru - Fækka skal dauðsföllum um 90% fyrir árið 2030

Kólera er illvígur sjúkdómur sem herjar frekar á þá sem eru fátækir og sem minna mega sín. Alþjóða­samfélagið hefur nú safnað saman liði til að koma í veg fyrir kóleru en til stendur að fækka dauðsföllum af völdum sjúk­dómsins um 90 prósent fyrir árið 2030.

Mikill kólerufaraldur herjar nú á Jemen.
Mikill kól­eru­far­aldur herjar nú á Jemen. Mynd: EPA

Átaki hefur verið hrundið af stað til að fækka dauðsföllum af völdum kóleru um 90 prósent fyrir árið 2030. Alþjóðleg samtök um varnir gegn kóleru ætla í samstarfi við heilbrigðis­yfirvöld fjölda ríkja og stofnana að enda kóleru­farald heimsins með metnaðar­gjarnri áætlun. Þetta er í fyrsta skiptið sem skuld­binding af þessu tagi hefur verið gerð og fagnar Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin henni.

Samkvæmt frétta­stofu BBC munu fulltrúar átaksins hittast í Frakk­landi en nú berst fólk í Jemen við einn versta kóleru­farald sem vitað er um. Minnst 770.000 manns hefur sýkst í landinu og 2.000 dáið. Mörg fórnar­lambanna eru börn.

Sjúkdómur fátæka mannsins

Sjúk­dómurinn er gjarnan kallaður sjúkdómur fátæka mannsins en hann er algengur þar sem margir búa á litlu svæði og þar sem hreinlæti er óbótavant. Um 2 milljarður manna búa við vatns­skort og talið er að um 95.000 manns deyi árlega af völdum kóleru. Tæplega þrjár milljónir manna sýkjast ár hvert og þykja þess vegna aðgerðir af þessu tagi brýnar.

Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin segir á vefsíðu sinni að þau taki glöð þátt í þessu sameiginlega frumkvæði til að stöðva dauðsföll af völdum kóleru. „Sjúk­dómurinn herjast mest á fátæka og þá sem minna mega sín - þetta er algjör­lega óviðunandi.“

Kólera landlæg í þróunarlöndunum

Kólera er sýking í meltingar­færum orsökuð af bakteríunni Vibrio cholerae en hún smitast með sýktu vatni. Þá er sérstak­lega varasamt það vatn sem lítil hreyfing er í og lítið líf. Bakterían veldur miklum uppköstum, niður­gangi og krömpum og ef sjúk­dómurinn er ekki meðhöndlaður með réttum aðferðum eða lyfjum getur sá sýkti dáið á mjög skömmum tíma af völdum vökvataps.

Sýkingar völdum V.cholerae eru afar sjaldséðar á vestur­löndum en sjúk­dómurinn er landlægur í þróunar­löndunum þar sem hreinlæti er ábótavant. Á tíma­bilinu 1817 til 1961 komu upp sjö heims­faraldrar sem oftast áttu uppruna sinn í Asíu og bárust hægt til Evrópu og Ameríku. Sá síðasti kom upp 1961 í Indónesíu og barst víða um heim á næstu áratugum. Allir þessir sjö heims­faraldrar eru taldir vera af völdum Vibrio cholerae O1. Árið 1992 varð á Indlandi í fyrsta sinn vart sýkingar af völdum Vibrio cholerae O139. Þessi stofn hefur síðan þá greinst í a.m.k. 11 löndum í Suð-austur Asíu og ekki er ólíklegt að hann eigi eftir að dreifast víðar. Þetta kemur fram á vefsíðu Land­læknis.

Slæmar aðstæður leiða til kólerufaraldra

Á síðustu árum hefur kólera víða komið upp, oftast í tengslum við slæma hreinlætis­aðstöðu og ófullnægjandi aðgang að hreinu vatni. Slíkar kringum­stæður geta myndast við hamfarir sem rjúfa vatns­leiðslur og eyði­leggja hreinlætis­kerfi. Annað dæmi er fólks­flutningar sem leiða til mikils mann­fjölda sem dvelur við slæmar aðstæður í lengri tíma í flóttamanna­búðum með takmarkaðan aðgang að hreinu vatni og viðundandi hreinslætisaðstöðu.

V.cholerae þrífst vel á vatna­svæðum. Hún getur lifað árum saman og fjölgað sér utan manns­líkamans. Bakterían myndar eiturefni sem veldur einkennum kóleru og mikinn fjölda baktería þarf til að valda sýkingu.

Áætluð kólerutilfelli á ári

Indland: 675.188 tilfelli og 20.266 dauðsföll

Eþíópía: 275.221 tilfelli og 1.458 dauðsfjöll.

Nígeria: 220.397 tilfelli og 8.375 dauðsföll.

Haítí: 210.589 tilfelli og 2.584 dauðsföll.

Heimildir: Johns Hopkins háskólinn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár