Bjóða Færeyingum að opna ræðismannsskrifstofu í Washington

Áhugi Donalds Trump á því að kaupa Grænland var ekki til umræðu á fundi Mike Pompeo í Danmörku fyrr í vik­unni. Hins vegar lagði utan­rík­is­ráð­herr­ann áherslu á að styrkja tengslin milli Dan­merkur, Færeyja og Græn­lands.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Kaupmannahöfn.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í Kaup­manna­höfn. Mynd: EPA

Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Mike Pompeo, heim­sótti Danmörku í vik­unni, í fyrsta sinn síðan Donald Trump sagð­ist vilja kaupa Grænland sem vakti hörð við­brögð og varð til þess að hann hætti við opin­bera heim­sókn sína til Dan­merkur. Möguleg kaup á Græn­landi voru ekki á dag­skrá í heim­sókn Pompeos en norð­ur­slóðir voru það og áhugi Banda­ríkja­mann­anna á því að efla tengsl sín við Færeyjar, m.a. með því að bjóða þeim að opna ræð­is­manns­skrif­stofu í Washington.

Pompeo kom til Dan­merkur á mið­viku­dag til fundar við Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra. Til við­bótar átti hann fundi með Jenis av Rana og Steen Lynge, utan­rík­is­ráð­herrum lands­stjórna Græn­lands og Færeyja.

Pompeo og Jenis av Rana ræddu m.a. hvernig styrkja mætti sam­band Færeyja og Banda­ríkj­anna og var m.a. rætt um þann mögu­leika að opna fær­eyska sendi­skrif­stofu í Washington.

Ákveðið var að halda við­ræðum þar um áfram síðar. „Á fund­inum var stigið stórt skref í átt að því að efla tengslin milli Banda­ríkj­anna og Færeyja,“ hafa fær­eyskir fjöl­miðlar eftir Jenis av Rana. Rætt hafi verið um örygg­is­mál og tæki­færi í menntun, við­skiptum, rann­sóknum og fleiru.

Á fundum Pompeo í Danmörku voru mál­efni norð­ur­slóða ofar­lega á baugi. Margir Danir eru enn nokkuð tor­tryggnir í garð banda­rískra stjórn­valda, ekki síst vegna þess að á sama tíma og sam­skipti Banda­ríkja­mann­anna við Rússland og Kína hafa versnað leita þeir banda­manna ann­ars staðar í nágrenni norð­ur­slóða.

Fyrir heim­sókn Pompeo sagði Jenis av Rana að hann ótt­að­ist mjög að norð­ur­slóðir yrðu gerðar af „leik­sviði átaka“ heims­veld­anna.

Innan við ár er síðan Trump lýsti yfir áhuga sínum á því að kaupa Grænland. Mette Frederik­sen sagði þá umræðu „fárán­lega“ og Trump er sagður hafa mógð­ast og sagt ummæli hennar „ill­gjörn“. Það hefur hins vegar komið í hlut Pompeo að reyna að lægja öld­urnar í sam­skiptum Banda­ríkj­anna og Dan­merkur.

Danski stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Kristian Mouritzen segir við Washington Post að dönskum stjórn­völdum hafi brugðið er Trump gaf út yfir­lýs­ingu um áhuga sinn á Græn­landi. Sam­skipti ríkj­anna hafi verið komin í hnút þar til Mike Pompeo hafi tekið að sér hlut­verk sátta­semj­ara.

„Hvergi í heim­inum fyr­ir­finnst ríki sem mun hjálpa okkur meira en Danmörk,“ sagði Pompeo eftir fund­inn í Kaup­manna­höfn. „Kon­ungs­ríkið Danmörk“ og Banda­ríkin deili sömu gildum sem séu und­ir­strikuð í því „frá­bæra starfi sem við höfum gert á Græn­landi“.

Sala Græn­lands var hins vegar ekki á dag­skrá fund­ar­ins.

Í júní var banda­rísk ræð­is­manns­skrif­stofa opnuð á Græn­landi, í fyrsta sinn síðan 1953. Pompeo segir að þar með hafi banda­rísk við­vera, sem hafi legið í dvala of lengi, verið end­ur­vakin. Hann minnt­ist einnig á til­boð Banda­ríkj­anna um að veita 12 millj­ónum dala til efna­hags­upp­bygg­ingar á Græn­landi.

Banda­ríski sendi­herr­ann í Danmörku hefur átt fundi með yfir­völdum í Færeyjum til að ræða opnun ræð­is­manns­skrif­stofu í Washington en einnig mögu­leik­ana á því að banda­ríski sjó­her­inn fái að nota fær­eyskar hafnir í aðgerðum sínum á norð­ur­slóðum.

Í mars bauð þessi sami sendi­herra Fær­ey­ingum aðstoð Banda­ríkj­anna í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Það féll ekki í sér­stak­lega góðan jarð­veg hjá dönskum þing­mönnum sem bentu á að Fær­ey­ingar hefðu staðið sig mun betur í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn heldur en Banda­ríkja­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár