Biden og Harris eru manneskjur ársins 2020 hjá TIME

Joe Biden og Kamala Harris hafa verið valin manneskjur ársins 2020 hjá TIME Magazine.

Kamala Harris og Joe Biden eru manneskjur ársins 2020 hjá TIME Magazine.
Kamala Harris og Joe Biden eru mann­eskjur árs­ins 2020 hjá TIME Magazine. Mynd: EPA

Verðandi forseti og vara­forseti Banda­ríkjanna hafa verið valin manneskjur ársins hjá tíma­ritinu TIME Magazine, sem hefur staðið fyrir vali á manneskju ársins allt frá árinu 1927.

Í umfjöllun tíma­ritsins segir að Joe Biden og Kamala Harris hafi í sameiningu boðið bandarísku þjóðinni upp á „endur­reisn og endurnýjun“ með framboði sínu. Bandaríkja­menn hafi keypt það sem þau voru að selja, enda sé ljóst að þau hafi hlotið yfir 81 milljón atkvæða, yfir 7 milljónum fleiri atkvæði en Donald Trump, sitjandi forseti landsins.

Samkvæmt frétt á vef Politico voru aðrir sem komu til greina til þess að hljóta nafn­bótina hjá TIME í ár Donald Trump Bandaríkja­forseti (sem var manneskja ársins 2016, er hann náði kjöri), framlínu­starfsfólk í heilbrigðis­þjónustu, Anthony Fauci forstjóri Ofnæmis- og smit­sjúkdóma­stofnunar Banda­ríkjanna og einnig samfélags­hreyfingin sem barist hefur fyrir réttindum og stöðu minnihluta­hópa í Banda­ríkjunum.

Á vef Politico er haft eftir Edward Felsenthel, aðal­ritstjóra TIME, að Biden og Harris hafi hreppt hnossið meðal annars fyrir að sýna fram á samkennd sé máttugri en sundrun.

Felsenthal segir einnig að hver einasti forseti Banda­ríkjanna frá því að Franklin D. Roosevelt var og hét hafi á einhverjum tíma­punkti verið valinn manneskja ársins, en nú í fyrsta sinn hafi verið ákveðið að hafa vara­forsetann með í valinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár