Forsætisráðherra gaf aftur ranga mynd af efnisatriðum skýrslunnar

Bjarni Benediktsson segir starfs­hópinn telja Íslendinga hafa verið „í farar­broddi“ þegar kom að því að „breyta lagalega umhverfinu í tengslum við skatta­skjól“. Raunin er sú að í skýrslunni eru íslensk stjórn­völd gagnrýnd fyrir að hafa verið eftir­bátur nágranna­ríkjanna að einmitt þessu leyti.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra fór öðru sinni með rangt mál um efnis­atriði skýrslu starfs­hóps um aflandseignir Íslendinga á Alþingi á þriðjudag. Hann sagði starfs­hópinn hafa komist að þeirri niður­stöðu að Íslendingar hefðu verið „í farar­broddi“ þegar kom að því að „breyta lagalega umhverfinu í tengslum við skatta­skjól“. Hið rétta er að starfs­hópurinn gagnrýnir einmitt íslensk stjórn­völd fyrir að hafa verið eftir­bátur nágranna­ríkjanna að þessu leyti. Í skýrslunni er vakin athygli á því að umfang aflandsvæðingar íslensks efnahags­lífs hafi verið „einstakt í heiminum“ á útrásar­árunum og það m.a. rakið til þess hve seint laga­umhverfinu á Íslandi var breytt. 

Í sérstökum umræðum um tafir á birtingu skýrslunnar um aflandseignir Íslendinga varpaði Bjarni Benediktsson fram þeirri spurningu hvort eitthvað í skýrslunni benti til þess að Íslendingar ættu enn eftir að „gera margt til þess að breyta lagalega umhverfinu í tengslum við skatta­skjól þannig að við þrengjum enn frekar að notkun þeirra?“ Þá bætti hann við: „Er eitthvað í skýrslunni sem segir það? Það sem skýrslan segir er: Við höfum verið í farar­broddi. Við höfum gert margt. Það er hægt að velja aðrar leiðir en þá erum við farin að nálgast það að leggja blátt bann við félögum af þessum toga.“ 

Þetta er í samræmi við orð sem Bjarni lét falla á Alþingi þann 6. febrúar síðastliðinn, en þá sagði hann að það væri „ekkert sérstakt sem skýrslan bendir á að stjórn­völd hafi látið undir höfuð leggjast að gera“. Þau orð standast ekki skoðun, enda er sérstak­lega fundið að því í skýrslunni að stjórn­völd hafi, á árunum fyrir hrun, hunsað ráðleggingar sérfræðinga um að innleiða svokallaða CFC-löggjöf á Íslandi. Leitt er líkum að því að með lögfestingu slíkra reglna hefði mátt koma í veg fyrir að aflandsvæðingin sem átti sér stað á útrásar­árunum yrði jafn umfangs­mikil og raun ber vitni.„Ólíklegt er að fjármagns­flóttinn hefði orðið eins mikill ef hér hefðu gilt sömu reglur og á hinum Norður­löndunum,“ segir í skýrslunni þar sem sérstakur kafli er helgaður þessu umfjöllunar­efni. Þá er vikið að málinu í öðrum köflum skýrslunnar og í reifun á niður­stöðum starfs­hópsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár