Hrun á Kúbu

Banda­ríkin hafa stöðvað olíu­flutn­ing til Kúbu og orsakað efna­hags­hrun. Þrjú af hverjum fjórum hót­elum eru lokuð.

Hrun á Kúbu
Frá Kúbu Ferða­þjón­ustan hefur núna hrunið á eyj­unni. Mynd: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Nærri þremur fjórðu allra hót­ela á Kúbu hefur verið lokað og ferða­þjón­ustu­geiri eyj­unnar hefur verið lamaður „nán­ast alger­lega“ vegna refsi­að­gerða Banda­ríkj­anna og elds­neyt­is­skorts, sagði Manuel Marrero for­sæt­is­ráð­herra í gær.

Marrero greindi frá umfangi ferða­þjón­ustu­krepp­unnar í fyrsta sinn og sagði að sjö alþjóð­legar keðjur, sem bera ábyrgð á um helm­ingi allra hót­el­her­bergja, hefðu yfir­gefið eyj­una.

Ferða­þjón­usta hafði verið næst­stærsta upp­spretta gjald­eyr­is­tekna Kúbu og veitti meira en 300.000 manns atvinnu áður en kreppan dýpkaði á þessu ári.

Í dag eru götur gömlu Havana, sem áður voru troð­fullar af ferða­mönnum í leit að sól, salsa og hristum kok­teilum, hljóð­látar.

Um 73 pró­sent hót­ela hafa verið lokuð, sagði Marrero, og um 25.000 starfs­menn hafa verið skildir eftir „í við­kvæmri stöðu“.

Eftir til­kynn­ingu stjórn­valda í Havana í febr­úar um skort á flug­véla­elds­neyti, hættu kanadísk, rúss­nesk og evr­ópsk flug­fé­lög flugi til eyj­unnar.

Vandræði geirans juk­ust eftir að banda­rísk stjórn­völd …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár