Scaramucci rekinn sem samskiptastjóri Hvíta hússins

Hinn umdeildi Anthony Scaramucci er ekki lengur samskipta­stjóri Hvíta hússins. Hann gegndi starfinu í tíu daga.

Anthony Scaramucci
Anthony Scaramucci Mynd: EPA

Anthony Scaramucci, sem ráðinn var sem samskipta­stjóri Hvíta hússins fyrir tíu dögum síðan, hefur verið rekinn úr starfinu, að sögn New York Times. Í frétt blaðsins kemur fram að hinn litríka Scaramucci, sem gengur einnig undir nafninu „The Mooch“, hafi verið vikið til hliðar að beiðni John. F. Kelly, nýráðins starfsmanna­stjóra Hvíta hússins. 

Scaramucci hafði ítrekað greint frá því opinber­lega að hann heyrði beint undir Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, en ekki starfsmanna­stjóra hans. Kelly hélt hins vegar fund með starfs­fólki Hvíta hússins í dag þar sem hann gerði því ljóst að hann réði málum.

New York Times segir það ekki liggja fyrir hvort Scaramucci fái aðra stöðu innan Hvíta hússins eða hvort hann muni yfirgefa það fyrir fullt og allt í kjölfar þessarra vendinga.

Skrautlegir dagar

Scaramucci var ráðinn 21. júlí síðastliðinn. Sú ráðning varð til þess að hinn umdeildi Sean Spicer sagði upp sem fjöl­miðla­full­trúi for­seta Banda­ríkj­anna. Ástæðan var djúp­stæður ágrein­ingur við Scara­mucci.

Síðan þá hefur Scaramucci verið nánast stans­laust í fjöl­miðlum. Hann lét hörð orð falla í garð Reince Priebus, þáverandi skrif­stofu­stjóra Hvíta húss­ins í sím­tali sem hann átti við blaðamann tíma­rits­ins New Yor­ker þar sem hann sagði Priebus m.a. vera „væni­sjúk­an geðklofa­sjúk­ling“. Hann lét einnig þung orð falla um Steve Bannon, ein­n helsta ráðgjafa Trump.

Priebus var svo rekinn úr starfi fyrir helgi. Trump tilkynnti um það og ráðningu Kellys sem nýs starfsmanna­stjóra á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár