Katrín: Ekki hægt að dæma Kristján Þór eingöngu út frá ásýnd

Forsætis­ráðherrann segir að hvað varðar traust og ásýnd stjórn­málanna og tengsl sjávar­útvegs­ráðherra við Samherja þá telji hún að horfa þurfi einnig á stað­reyndir máls og hvað sé sann­gjarnt.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Skjáskot/RÚV

Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra finnst ekki hægt að dæma Kristján Þór Júlíusson sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra út frá einhverju sem eingöngu tengist ásýnd því það hafi í sjálfu sér verið vitað fyrirfram að ráðherrann hefði þessi tengsl við Samherja.

Þetta kom fram í viðtali í Silfrinu á RÚV í dag en þar var Katrín spurð hvort hún væri sátt við að Kristján Þór sæti áfram í ráðuneyti sjávar­útvegs­mála þar sem einstakar ákvarðanir – þegar kemur til að mynda að kvóta­málum – snertu augljós­lega beint og óbeint Samherja, stærsta fyrirtæki landsins á þessu sviði, og hvort það væri eðlilegt.

Katrín sagði jafnframt í þessu samhengi að ekkert hefði komið fram sem benti til þess að sjávar­útvegs­ráðherra hefði haft vitneskju um þessa starfsemi Samherja. Varðandi traust og ásýnd stjórn­málanna í þessu tilfelli þá teldi hún að það þyrfti líka að horfa á stað­reyndir máls og hvað væri sann­gjarnt.

Óásættanlegt ef Samherji hefur brotið lög

Hún vék í máli sínu að því umhverfi sem fyrirtæki vinna í hér á landi. „Við verðum auðvitað að horfa í eigin barm hvað varðar hvernig kerfið okkar – og þá er ég að tala um umhverfi íslenskra fyrir­tækja – er byggt upp þegar kemur að stjórn­völdum og því eftirliti sem þau hafa með því sem þessi fyrirtæki eru að gera.“

Hún sagði að það væri henni mikið kappsmál að það yrðu gerðar breytingar, til að mynda á stjórnar­skrá á þessu kjör­tímabili hvað varðar sameign þjóðarinnar á auðlindum og hvernig Íslendingar umgangist þær. Einnig fyndist henni mikilvægt að auka upplýsinga­skyldu og gagnsæi í íslenskum fyrirtækja­rekstri.

„Við getum rætt pólitísku hliðina á þessu Samherja­máli en stað­reyndir málsins eru þær að þarna er fyrirtæki sem virðist hafa brotið lög og það er óásættanlegt, hvort sem er hér heima eða erlendis,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár