Blása til mótmæla – Vilja að Kristján Þór segi tafarlaust af sér

Boðað er til mót­mæla á morgun, laug­ar­dag, en helstu kröfur mót­mæl­enda eru að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segi af sér emb­ætti, Alþingi lög­festi nýja og end­ur­skoð­aða stjórn­ar­skrá og að arður af nýt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda lands­manna renni í sjóði almenn­ings.

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið, Efling stétt­ar­fé­lag, Öryrkja­banda­lag Íslands, Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá, Gegnsæi, sam­tök gegn spill­ingu, og hópur almennra borg­ara og félaga­sam­taka hafa tekið sig saman og flautað til mót­mæla­fundar á Aust­ur­velli á morgun, laug­ar­dag, klukkan 14:00.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu.

Í henni segir að almenn­ingur í Namibíu hafi verið rændur af íslenskri stór­út­gerð. Almenn­ingur á Íslandi sömu­leiðs rændur arð­inum af auð­lindum sínum. Tugir millj­arða séu færðir árlega í vasa stór­út­gerða sem ættu að renna í sjóði almenn­ings til upp­bygg­ingar sam­fé­lags­ins.

Grafið undan lýðræði í landinu með þjónkun við sérhagsmuni

[links]„Órétt­lætið þrífst í skjóli úreltrar stjórn­ar­skrár og póli­tískrar spill­ingar. Stjórn­mála­flokkar standa auð­sveipir gagn­vart sér­hags­munum örfárra sem náð hafa helj­ar­taki á þjóð­líf­inu í skjóli lög­vernd­aðs arð­ráns og ofsa­gróða. Fjár­hags­leg sam­skipti stór­út­gerða og stjórn­mála­manna og stjórn­mála­flokka þarf að rann­saka og skera upp herör gegn skatta­skjólum og pen­inga­þvætti.

Alþingi bað lands­menn um til­lögur að nýrri stjórn­ar­skrá. Alþingi fékk umbeðnar til­lögur og boð­aði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um þær. Yfir 2/3 hlutar kjós­enda (67%) sam­þykktu að til­lög­urnar skyldu verða grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár. Síðan eru liðin sjö ár! Grafið er undan lýð­ræði í land­inu með þjónkun við sér­hags­muni og ógn­andi van­virð­ingu gagn­vart lýð­ræð­is­legum vilja kjós­enda og end­ur­teknum til­ræðum við nýju stjórn­ar­skrána,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Katrín Odds­dóttir, for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, verður fund­ar­stjóri og munu Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, Atli Þór Fanndal, blaða­maður, og Þórður Már Jónsson, lög­maður, flytja ræður. Hljóm­sveitin Hatari mun sjá um tón­list­ina. Liðsmenn sveit­ar­innar segja Samherja birt­ing­ar­mynd síðkap­ít­al­ism­ans. „Græðgi Samherja er tær birt­ing­ar­mynd þeirra gilda sem síðkap­ít­al­ism­inn elur í brjósti ungra og efni­legra mógula og svika­hrappa.“

Kröfur mótmælanna eru:

  • Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segi taf­ar­laust af sér emb­ætti.
  • Alþingi lög­festi nýja og end­ur­skoð­aða stjórn­ar­skrá sem lands­menn sömdu sér og sam­þykktu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012 – Að sjálf­sögðu með því auð­linda­á­kvæði sem kjós­endur sam­þykktu.
  • Arður af nýt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda lands­manna renni í sjóði almenn­ings til upp­bygg­ingar sam­fé­lags­ins og til að tryggja mann­sæm­andi lífs­kjör allra.

Hagnaðurinn af sjávarauðlindinni gerir lítinn hóp ríkari

Katrín segir að á Íslandi við­gang­ist við­var­andi arð­rán á auð­lindum þjóð­ar­innar. „Hagn­að­ur­inn af sjáv­ar­auð­lind­inni gerir lít­inn hóp rík­ari með hverju árinu í stað­inn fyrir að renna í okkar sam­eig­in­legu sjóði. Þannig er farið gegn lögum sem segja að þjóðin eigi auð­lind­irnar. Sam­herj­a­málið sviptir hul­unni af þess­ari stað­reynd. Nú verðum við að bregð­ast við áður en leik­tjöldin falla aftur og ná fram alvöru kerf­is­breyt­ingum. Sam­fé­lagið þarf á auð­lindaarð­inum að halda. Þor­steinn Már þarf ekki á meiri pen­ingum að halda.“

Skipu­leggj­endur hvetja almenn­ing til að mæta og sýna sam­stöðu í verki. Katrín leggur áherslu á að nú séu sjö ár frá því að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fór fram þar sem 2/3 hlutar kjós­enda sögðu að leggja ætti nýju stjórn­ar­skrána til grund­vallar sem stjórn­ar­skrá Íslands.

„Alþingi hefur mark­visst hunsað þessa nið­ur­stöðu sem er ekki bara óboð­legt heldur hrein­lega ólíð­andi í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi. Í nýju stjórn­ar­skránni er auð­linda­á­kvæði sem tryggir að þjóðin fái „fullt verð“ fyrir nýt­ingu á auð­lindum sínum, eða með öðrum orðum mark­aðs­verð. Þetta þýðir að vina­væð­ingin sem hefur ein­kennt sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi und­an­farna ára­tugi mun að öllum lík­indum taka enda. Ef við horf­umst í augu við spill­ing­una og það arð­rán sem á sér stað á Íslandi á hverjum degi munum við finna kraft­inn og sam­taka­mátt­inn sem þarf til þess að breyta þessu!“ segir hún.

Skiptir máli að almenningur standi saman

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir skipta öllu máli að almenn­ingur standi saman. „Verka­lýðs­fé­lög eiga að standa með almenn­ingi gegn ofur­valdi eigna­stétt­ar­innar. Verka og lág­launa­fólk hefur barist fyrir efna­hags­legu rétt­læti kyn­slóðum saman, oft með stór­kost­legum árangri. Nú skiptir öllu máli að við stöndum saman og knýjum á um raun­veru­legar breyt­ingar í íslensku sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár