Uppskipting Samherja veitti skjól gegn víðtækri upplýsingagjöf

Velta Samherja eins og hún var á árinu 2018 var það há að sam­stæðan var við það að þurfa að veita skatta­yf­ir­völdum víð­tækar upp­lýs­ingar um tekjur og skatta allra félaga innan hennar í þeim löndum sem þau starfa.

Ef Samherja hefði ekki verið skipt upp í tvö félög í fyrra hefðu tekjur sam­stæð­unnar ein­ungis verið við það að gera hana skylduga til að skila svo­kall­aðri ríki-fyrir-ríki skýrslu til rík­is­skatt­stjóra.

Í slíkum skýrslu­skilum felst að veita rík­is­skatt­stjóra upp­lýs­ingar um tekjur og skatta í öllum þeim ríkjum þar sem félög innan heild­ar­sam­stæð­unnar eiga heim­il­is­festi. Skýrslu sem ætti einnig inni­halda lýs­ingu á atvinnu­starf­semi heild­ar­sam­stæð­unnar í hverju ríki, auk upp­lýs­inga um hvert sam­stæðu­fé­laga og þá efna­hags­legu starf­semi sem félögin hafa með höndum.

Meðal ann­ars á Kýpur og í Namibíu.

Mun meiri upplýsingagjöf

Í maí 2016 und­ir­rit­aði Ísland sam­komu­lag á vegum Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) sem í fólst að skipt­ast á upp­lýs­ingum um starf­semi fjöl­þjóð­legra fyr­ir­tækja­sam­stæðna.

Með und­ir­rit­un­inni skuld­batt Ísland sig til að taka upp hér­lendis lög­gjöf um skil á svoköll­uðu ríki-fyrir-ríki skýrslum í sam­ræmi við marg­hliða samn­ing þar um. Ákvæðið var síðan fært í lög um aðgerðir stjórn­valda gegn skattsvikum í októ­ber sama ár.

Upp­haf­lega áttu ein­ungis þau íslensku fyr­ir­tæki í alþjóð­legri starf­semi sem voru með meira en 100 millj­arða króna heild­ar­tekjur innan sam­stæðu á ári að skila slíkri skýrslu. Þeirri við­mið­un­ar­upp­hæð var breytt í upp­færðum lögum fyrr á árinu 2019, þegar ákveðið var að hafa hana 750 millj­ónir evra, enda gera fyr­ir­tæki í alþjóð­legri starf­semi almennt ekki upp í íslenskum krónum.

Þau fyr­ir­tæki sem þurfa að skila ríki-fyrir-ríki skýrslu þurfa meðal ann­ars að gera skatta­yf­ir­völdum grein fyrir fjár­hæð hagn­aðar fyrir tekju­skatt, hversu mik­inn tekju­skatt þau hafa greitt í hverju landi fyrir sig, hvaða skráðu hluta­bréf þau eiga, hvert óráð­stafað eigið fé þeirra er hvar sem er í heim­inum. Þetta eru mun meiri upp­lýs­ingar en íslensk fyr­ir­tæki þurfa vana­lega að gefa yfir­völdum hér á landi, og í öðrum löndum sem þau starfa. Í raun snýst skýrslu­gerðin um að gefa skatta­yf­ir­völdum í heima­ríki við­kom­andi fyr­ir­tækis yfir­sýn yfir heild­ar­starf­semi sam­stæðu þeirra.

Samherji rétt við viðmiðunarmörkum

Fljótt á litið virð­ast ekki mörg íslensk fyr­ir­tæki vera með svo miklar tekjur að þau þurfi að skila ríki-fyrir-ríki skýrslu. Marel þarf að gera það fyrir árið 2018 en Össur, hitt stóra alþjóð­lega hug­vits­fyr­ir­tækið sem hefur höf­uð­stöðvar á Íslandi, er ekki með nægi­lega miklar tekjur til að fara yfir mörkin, hvorki þau gömlu né þau nýju. Það er flutn­ings­fyr­ir­tækið Eimskip ekki heldur, en þessi tvö eru þó ekki langt frá við­mið­un­ar­mörk­unum þegar kemur að veltu.

Eitt annað fyr­ir­tæki gæti þó hafa verið skil­greint sem nægi­lega stórt, í nán­ustu fram­tíð hið minnsta, til að þurfa að skila slíkri yfir­lits­skýrslu um alla starf­semi sína, og allar skatt­greiðslur sínar, út um allan heim. Það fyr­ir­tæki er Samherji.

Á árinu 2018 var sam­eig­in­leg velta tveggja fyr­ir­tækja Samherja-sam­stæð­unnar, Samherja hf. og Samherja Holding, 751 millj­ónir evra, 100 millj­arðar króna miðað við upp­gjörs­gengi en 102,4 millj­arðar króna miðað við gengi dags­ins í dag. Miðað við gömlu við­mið­un­ar­mörkin hefði Sam­herj­a­sam­stæðan verið rétt við þau í lok síð­asta árs ef hún hefði verið skil­greind sem ein ein­ing.

Samkvæmt athuga­semd frá Samherja hefði tekjum vegna sölu eigna milli stoð­anna tveggja verið eytt ef sam­stæð­unni hefði ekki verið skipt upp og telur Samherji að það afi átt að leiða til þess að 107 millj­ónir evra ættu að drag­ast frá tekjum. Þær hefðu þar af leið­andi orðið 644,3 millj­ónir evra.

Í ljósi þess að rekstur Samherja hefur vaxið ár frá ári und­an­farin ár var ljóst að ef sam­stæðan héldi áfram að vaxa þá myndi hún fara yfir við­mið­un­ar­mörkin á árinu 2019, ef ofan­greind tala yrði ekki dregin frá. Sem dæmi uxu tekjur Samherja-sam­stæð­unnar um rúm­lega 20 pró­sent milli áranna 2017 og 2018. Ef sá vöxtur hefði haldið áfram í ár væru tekj­urnar komnar vel yfir 750 millj­ónir evra.

Samstæðunni skipt upp

Í fyrra gerð­ist það hins vegar að Samherja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­em­ber 2017.

Eftir það er þorri inn­­­lendrar starf­­sem­i Samherja og starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­sem­i og hluti af fjár­fest­ing­ar­starf­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru eign­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­ur­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­fest­inga­­fé­lagi á Ísland­i. Inni í þeim hluta er líka fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­ur­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­festi á Kýpur. Þau félög halda meðal ann­ars utan um veiðar Samherja í Namibíu, þar sem sam­stæðan og stjórn­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta. Auk þess er uppi rök­studdur grunur, eftir ítar­lega opin­berum Kveiks og Stund­ar­innar, um að Samherji hafi stundað umfangs­mikla skatta­snið­göngu í gegnum Kýpur og aflands­fé­lög og pen­inga­þvætti á fjár­magni sem end­aði inn á reikn­ingum norska bank­ans DNB.

Með því að skipta upp Samherja í tvær ein­ingar þá var hægt að halda því fram að sam­stæðan þyrfti ekki að skila áður­nefndum ríki-fyrir-ríki skýrslum, að minnsta kosti fyrir árið 2018. Þarna væru tvö sjálf­stæð fyr­ir­tæki, bæði með veltu sem væru langt undir við­mið­un­ar­mörkum eftir upp­skipt­ing­una, þótt eign­ar­haldið á þeim væri hið sama og meg­in­starf­semi beggja sjáv­ar­út­vegur.

Þar með var hægt að tryggja að Samherji þyrfti ekki að skila skila rík­is­skatt­stjóra skýrslu með upp­lýs­ingum um tekjur og skatta í öllum þeim ríkjum þar sem félög innan heild­ar­sam­stæð­unnar eiga heim­il­is­festi. Skýrslu sem ætti einnig inni­halda lýs­ingu á atvinnu­starf­semi heild­ar­sam­stæð­unnar í hverju ríki, auk upp­lýs­inga um hvert sam­stæðu­fé­laga og þá efna­hags­legu starf­semi sem félögin hafa með höndum.

Síldarvinnslan ekki skilgreind sem hluti af samstæðunni

Þá er vert að benda á að velta Síld­ar­vinnsl­unnar er ekki færð sýni­lega inn í sam­stæðu­reikn­ing Samherja, heldur virð­ist það ein­ungis eiga við um hlut­deild Samherja í hagn­aði hennar, sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Það er gert í ljósi þess að Síld­ar­vinnslan er skil­greint sem hlut­deild­ar­fé­lag, en ekki hluti af Sam­herj­a­sam­stæð­unni í bók­haldi hennar. Vert er þó að taka fram að Ice Fresh Seafood ehf., félag í eigu Samherja, selur vörur fyrir Síld­ar­vinnsl­una og er sú vöru­sala hluti af liðnum „seldar vörur og þjón­usta“ í reikn­ingi Samherja.

Kjarninn greindi frá því í gær að í glæru­kynn­ingum Samherja, sem eru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks hefur birt á net­inu og eru ræki­lega merktar trún­að­ar­mál, má skýrt sjá að erlendis hefur Síld­ar­vinnslan kynnt sem hluti af Sam­herj­a­sam­stæð­unni, eða Samherja Group eins og hún er þar kölluð.

Ef velta Síld­ar­vinnsl­unnar væri talin með í veltu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar myndi hún fara upp um 201 milljón Banda­ríkja­dali á árinu 2018, og fara langt yfir við­mið­un­ar­mörkin sem sett eru fyrir því að skila ríki-fyrir-ríki skýrslu. Þess í stað voru bók­færð rekstr­ar­á­hrif Síld­ar­vinnsl­unnar á rekstur Samherja 12,4 millj­ónir evra, eða bein hlut­deild Samherja í hagn­aði hennar.

Undir kvótaþakinu

Á Íslandi hefur því ætið verið haldið fram að Samherji og Síld­ar­vinnslan séu ekki tengdir aðilar, þrátt fyrir að Samherji og tengdir aðilar eigi alls 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni og að Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, hafi verið stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar þangað til á mánu­dag, þegar hann steig tíma­bundið til hliðar úr þeim stóli. Eign­ar­haldið er með þeim hætti að Samherji á beint 44,6 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni en auk þess á Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

Sú skil­grein­ing gerir það meðal ann­ars að verkum að Samherji og Síld­ar­vinnslan fara ekki yfir lög­bundið hámarks­þak á kvóta­eign, en saman eiga fyr­ir­tækin og aðrir kvóta­hafar í þeirra eigu, rúm­lega 16,6 pró­sent af kvóta. Lög um stjórn fisk­veiða heim­ila tengdum aðilum ein­ungis að eiga mest 12 pró­sent, til að koma í veg fyrir sam­þjöppun í grein­inni.

Sérstök verk­efn­is­stjórn vinnur nú að því að koma með til­lögur um taka á þeirri stöðu sem er uppi hvað varðar eft­ir­lit með kvóta­sam­þjöppun. Skilum nefnd­ar­innar hefur verið flýtt vegna Sam­herj­a­máls­ins og á hún nú að leggja fram til­lögur fyrir lok þessa árs.

Álfyrirtækin og Dressmann þurfa að skila

upp­lýs­inga­skiptin sem fel­ast í ríki-fyrir-ríki skýrsl­unum virka ekki ein­ungis þannig að fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar á Íslandi þurfi að fylla út slíka skýrslu fyrir inn­lend skatta­yf­ir­völd og önnur þar sem þau eru með starf­semi, heldur þurfa erlend stór­fyr­ir­tæki sem eru með starf­semi á Íslandi en höf­uð­stöðvar ann­ars staðar líka að skila inn slíkum skýrslum til íslenskra stjórn­valda.

Þar er til dæmis um að ræða álfyr­ir­tækin sem eru með starf­semi hér­lendis og norska herra­fata­keðjan Dress­mann, sem er stærsta versl­un­ar­keðja með herra­föt á Norð­ur­löndum ,og rekur meðal ann­ars versl­anir á Íslandi.

Leið­rétt­ing klukkan 18:03:

Frétta­skýr­ingin hefur verið upp­færð eftir að athuga­semdir bár­ust frá Samherja um að sam­eig­in­leg velta Samherja hf. og Samherja Holding hafi í raun verið 751 milljón evra, ekki 737,4 millj­ónir evra á síð­asta ári. Samherji telur einnig að ef sam­stæðan hefði ekki verið brotin upp hefði átt að draga sölu eigna milli stoð­ana frá tekjum og þær lækka um 107 millj­ónir evra. Auk þess heldur Samherji því fram að velta frá Síld­ar­vinnsl­unni komi fram í gegnum liðin „seldar vörur og þjón­ustu“ í árs­reikn­ingi Samherja hf. vegna þess að dótt­ur­fé­lagið Ice Fresh Seafood sjái um sölu fyrir Síld­ar­vinnsl­una. Ógjörn­ingur er hins vegar að sjá hversu stór hluti þess liðar er vegna Síld­ar­vinnsl­unnar. Beðist er vel­virð­ingar á óná­kvæmni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár