Kristján Þór víkur sæti í málum tengdum Samherja

Sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra hefur ákveðið að víkja sæti við meðferð og töku ákvarðana í fjórum stjórnsýslu­kærum tengdum Samherja. Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra fer með þessi tilteknu mál í staðinn.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júlíusson, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, hefur ákveðið á grund­velli stjórnsýslu­laga að víkja sæti við meðferð og töku ákvarðana í fjórum stjórnsýslu­kærum tengdum Samherja hf.

Þetta kemur fram í svari frá atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytinu við fyrir­spurn Kjarnans. Um er að ræða mál sem bárust atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytinu 26. október 2018, 9. nóvember 2018 og 28. nóvember 2019.

Á fundi ríkis­stjórnarinnar í morgun var samþykkt að Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, myndi fara með málin, segir í svari ráðuneytisins. Forsætis­ráðherra hyggst því leita atbeina forseta Íslands til að setja samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra til að fara með þessi tilteknu mál, sem settur sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár