Facebook grípur til aðgerða gegn upplýsingaóreiðu í kringum kosningarnar

Stofnandi Facebook greindi frá því í dag að miðillinn ætlaði að beita sér sérstak­lega gegn útbreiðslu misvísandi upplýsinga í aðdrag­anda kosninganna í Banda­ríkjunum í haust. Facebook fer í samstarf við Reuters um miðlun loka­niðurstaðna.

Mark Zuckerberg stofnandi Facebook.
Mark Zuckerberg stofn­andi Facebook. Mynd: EPA

Facebook ætlar gera ákveðnar breytingar á þjónustu sinni í aðdrag­anda forseta­kosninga í Banda­ríkjunum, í því skyni að draga úr upplýsinga­óreiðu og reyna að koma böndum yfir tilraunir til þess að hafa letjandi áhrif á kosninga­þátttöku. Mark Zuckerberg stofnandi Facebook greindi frá þessu, í færslu á Facebook.

Á meðal þess sem Facebook ætlar að gera er að hætta að taka á móti nýjum pólitískum auglýsingum í birtingu síðustu vikuna fyrir kosningar, frá 27. október og til kjör­dagsins 3. nóvember. Zuckerberg segir í færslu sinni um málið að tilgangurinn með þessu sé að tryggja að hægt verði að sannreyna það sem fram kemur í auglýsingunum fyrir kjördag, en ef auglýsingar yrðu birtar á Facebook með skemmri fyrirvara yrði það mögulega erfitt.

Einnig ætlar miðillinn að fylgjast vel með tilraunum til þess að letja kjósendur til þátttöku og vinna með yfir­völdum til þess að fjarlægja hverskyns misvísandi upplýsingar um kosningar sem settar verða fram. Þá verða settar hömlur á hversu mörgum einstaklingar geta áframsent einstaka hlekki í gegnum Messenger. Hvern hlekk verður bara hægt að senda til eins einstaklings í einu, í stað þess að hægt sé að deila hlekk með öllum vinum sínum.

Segir Zuckerberg að þetta hafi áður verið gert á forritinu WhatsApp á „viðkvæmum tíma­skeiðum“ og þetta hafi reynst vel í mörgum löndum til þess að koma í veg fyrir að lygasögur og fals­fréttir fari á flug.

Heims­faraldurinn setur líka mark sitt á aðgerðir Facebook: „Við erum að setja upp reglur gegn því að ógnir tengdar COVID-19 verði notaðar til þess að letja fólk til kosningaþáttöku. Við munum fjarlægja færslur með full­yrðingum um að fólk muni fá COVID-19 ef það fer að kjósa. Við munum hengja skilaboð frá yfir­völdum um COVID-19 við færslur þar sem veiran er notuð til að letja fólk til þátttöku í kosningu og við munum ekki leyfa slík skilaboð í auglýsingum,“ skrifar Zuckerberg.

Miðill hans hefur þegar sett upp sérstakan kosninga­upplýsingavef þar sem kjósendur geta leitað sér upplýsingar um hvernig eigi að skrá sig til að kjósa og hvernig eigi að bera sig að við það að póst­leggja atkvæði sín, svo eitthvað sé nefnt.

Samstarf við Reuters og kosningayfirvöld um birtingu niðurstaðna

Ljóst er að í ljósi útbreiðslu COVID-19 í Banda­ríkjunum munu mjög margir kjósendur ákveða að bréf­leggja atkvæði sín. Viðbúið er að þetta leiði til tafa á því að niður­stöðurnar verði kynntar og við því búast margir sérfræðingar. Zuckerberg segir að fólk verði að vera undirbúið að niður­stöður kosninganna verði vafamál, þar til atkvæða­talningu lýkur, en Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur gefið í skyn að mögulega muni hann ekki sætta sig við niður­stöðu kosninganna ef hann tapar, þar sem póst­atkvæði auki hættu á að brögð séu í tafli.

Ítrekað hefur komið fram að það er ekkert sem bendir til þess að þetta sé rétt hjá forsetanum, en Facebook ætlar að búa sig undir það að full­yrðingar um hver sigurvegari kosninganna sé muni ganga fram og til baka allt þar til lokatölur liggja fyrir.

Zuckerberg segir að Facebook muni miðla upplýsingum til notenda til þess að „búa fólk undir mögu­leikann á því að það gæti tekið nokkurn tíma að fá opinberar niður­stöður. Þessar upplýsingar munu hjálpa fólki að skilja að það er ekkert ólögmætt við það að niður­stöður verði ekki komnar á kosninga­nótt.“

Í þessu skyni ætlar Facebook í samstarf við frétta­veituna Reuters og kosninga­yfirvöld í Bandaríkunum um upplýsingumiðlun um niður­stöður kosninganna. Facebook ætlar að eiga frumkvæði að því að láta fólk vita þegar niður­stöðurnar liggja fyrir.

„Ef einhver fram­bjóðandi eða fylking reynir að lýsa yfir sigri áður en niður­stöðurnar liggja fyrir, munum við merkja færslur þeirra með upplýsingum um að opinberar loka­niðurstöður liggi ekki enn fyrir og vísa fólki á þær niður­stöður sem liggja fyrir,“ skrifar Zuckerberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár