Kornótta ljósmyndin sem vakti athygli á kjarabaráttu

Verkafólk hjá morgunkorns­fram­leiðandanum Kelloggs segist ekki ætla að láta bjóða sér kjara­skerðingar og er komið í verkfall. Einn verkfalls­vörðurinn varð nokkuð óvænt andlit barátt­unnar.

Óskýr ljósmynd af starfs­manni morgunkorns­fram­leiðandans Kelloggs, standandi í beljandi rigningu og hávaða roki með kröfu­skilti á lofti, hefur beint kast­ljósinu að verkfalli um 1.400 verka­mönnum fyrir­tækisins. Kjara­viðræður hafa staðið í heilt ár en sigldu í strand í byrjun október og verk­fallið hefur nú staðið í tæpar tvær vikur. Starfs­fólkið sakar fyrir­tækið um bolabrögð; að lækka grunnlaun nýrra starfs­manna, ennfremur að lækka orlofs­greiðslur og fækka orlofs­dögum, skerða heilbrigðis­tryggingar og eftirlaun. Þá sakar það sem og verkalýðs­félagið sem háir baráttuna með því, Kelloggs um að ætla sér að flytja verksmiðjur til Mexíkó til að draga úr launa­kostnaði og komast hjá ströngu eftirliti Matvæla- og lyfja­stofnunar Banda­ríkjanna.

Talsmenn Kelloggs segja tilboð þeirra í viðræðunum „tekið úr öllu samhengi“ og neita því að til standi að flytja starfsemi til Mexíkó. Þeir segja verkalýðs­félagið hafa gefið félags­mönnum rangar upplýsingar sem mikilvægt sé að leiðrétta.

Þrátt fyrir verk­fallið eru verksmiðjurnar sem eru í Nebraska, Michigan, Pennsylvaníu og Tennessee, ekki mann­lausar því fyrir­tækið hefur ráðið stað­gengla, fólk sem er ekki í verkalýðs­félaginu. Kris Bahner, talsmaður Kelloggs, segir fyrir­tækið „tilbúið og viljugt“ til að halda kjara­viðræðunum áfram en þar til samningar náist „höfum við ábyrgðar­hlutverki að gegna gagnvart fyrir­tækinu, viðskipta­vinum og neytendum til að halda verksmiðjunum okkar gangandi – þrátt fyrir verk­fallið“.

Fram­leiðsla Rice Krispies, Raisin Bran, Froot Loops, Special K, hins hefð­bundna Kornflex og Frosted Flakes, svo nokkur dæmi séu tekin, mun því halda áfram eftir að hafa stöðvast tíma­bundið vegna verk­fallsins. Hópur sautján þingmanna á ríkis­þingi Nebraska hafa sent Steven Cahillane, forstjóra Kelloggs bréf þar sem „stað­föstum stuðningi“ við starfs­fólkið sem er í verkfalli er lýst yfir.

„Þessi kornótta, þoku­kennda ljósmynd segir meira en þúsund orð,“ skrifaði verkalýðs­félag starfs­mannanna sem er hluti af regnhlífar­samtökum sem heita því langa nafni Bakery, Confectionary, Tobacco Workers, and Grain Millers International Union, við myndina er það deildi henni á samfélags­miðlum í vikunni. Síðan þá hefur henni verið deilt ótal sinnum og meira fjallað um kjara­baráttuna í fjöl­miðlum en áður hafði verið gert.

Myndin er tekin í Omaha í Nebraska af Erin Shaffer sem hefur unnið hjá Kelloggs frá því í sumar. Hún segist í samtali við Newsweek hafa tekið myndina klukkan þrjú að nóttu. „Mér fannst hann sýna svo mikla einurð að standa þarna úti í úrhellis rigningu.“ Maðurinn, sem var að sinna verkfalls­vörslu við verksmiðjuna, lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir kaldranalegar aðstæðurnar sem sköpuðust er mikið rigningar­veður skall á, tjöld verkfalls­varðanna fuku um koll og starfs­menn Kelloggs sem voru á vettvangi flúðu í bíla sína. Allir nema einn. „Fólk er orðið þreytt á græðgi stór­fyrirtækja,“ segir Shaffer. „Það er fullt af ástríðu­fullu fólki þarna úti sem mun ekki gefast svo auðveldlega upp.“

1.400 bræður og systur

Maðurinn á myndinni heitir Jason Schultz. Hann er 44 ára og vinnur á lyftara í verksmiðju Kelloggs. Sem verkfalls­vörður kemur það í hans hlut að gæta þess að staðið sé vörð um öll sex hliðin að verksmiðju­lóðinni – allan sólar­hringinn – og gæta þess að verkfalls­brot séu ekki framin. Hann segist í samtali við Vice hafa haldið verkfalls­vörslunni áfram þrátt fyrir óveðrið til að láta alla vita að „við erum ekkert á förum“. Hann segir marga sjá einn mann í rigningu og roki á mynd Shaffer. „En í mínum huga erum við 1.400 bræður og systur sem stöndum saman sem ein manneskja.“

Meðal þess sem starfs­fólk Kelloggs hefur lýst í viðtölum er að vinnu­framlag þeirra hafi aukist í faraldrinum en að launin hafi ekki verið í samræmi við það. Fyrir­tækið ætli sér að breyta kjörum nýrra starfs­manna þannig að tímakaup þeirra lækki og ýmis réttindi skerðist. Verkalýðs­félagið hefur auk þess lýst þeim áhyggjum sínum að þetta sé aðeins fyrsta skrefið og að þegar fram líði stundir muni áformaðar kjara­breytingar ná til alls verka­fólksins, líka þeirra sem hafi unnið þar um árabil.

Schultz fetaði í fótspor föður síns og hóf störf hjá verksmiðju Kelloggs í Omaha fyrir áratug. Kjörin hafi verið sanngjörn á þeim tíma auk þess sem atvinnu­öryggið var mikið. En undan­farið varð breyting á. „Þetta er ekki eins og það var. Þeir hafa tekið ýmislegt frá nýjum starfs­mönnum sem við viljum að verði sett aftur á. Þetta er gott starf ef jafnvægi fæst á ný.“

Þegar faraldurinn stóð sem hæst og milljónir manna í Banda­ríkjunum sem og annars staðar í heiminum unnu störf sín heima ef það var unnt, mætti verka­fólkið í verksmiðjur Kelloggs. Það var verulega undir­mannað og vinnu­álagið jókst til muna. Schultz segist ekki hafa getað tekið frídag mánuðum saman. Hann hafi bókstaf­lega unnið alla daga á löngu tímabili, líka um helgar.

Á sama tíma seldust vörur Kelloggs sem aldrei fyrr og vasar æðstu stjórn­enda bólgnuðu út. Í hlut forstjórans Steve Cahillane komu 11,6 milljónir dala á árinu 2020, tæplega einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Í ár hafa tekjur hans haldið áfram að hækka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár