Lægsta atvinnuleysi í 42 ár í Bretlandi

Atvinnu­leysi hefur ekki mælst lægra í Bretlandi í langan tíma, en þó eru sérfræðingar áhyggju­fullir yfir þróun vinnu­markaðarins.

Störfum gæti fækkað mjög í Lundúnum.
Störfum gæti fækkað mjög í Lundúnum. Mynd: KERIM OKTEN / EPA

Atvinnu­leysi mældist 4,4% á öðrum ársfjórðungi í Bretlandi, en það hefur ekki verið lægra í 42 ár. Þó er staðan á vinnu­markaði ekki sem best þar í landi, samkvæmt nýrri frétt CNN.

Hagstofa Bretlands birti í dag vinnu­markaðs­tölur sínar af öðrum ársfjórðungi 2017. Samkvæmt þeim hefur atvinnu­þátttaka 16 til 64 ára Breta aukist upp í 75,1%, en það er hæsta atvinnu­þátttöku­hlutfall þar í landi í 45 ár. 

Sömuleiðis hefur atvinnu­leysi minnkað og hefur ekki mælst lægra síðan árið 1975. Hlut­fallið mældist í 4,4% á vormánuðum í ár, miðað við 4,9% fyrir sama tímabil í fyrra. Tölurnar voru ekki fullkomlega í takt við væntingar, en búist var við því að það yrði 0,1 prósentu­stigi hærra.

Samkvæmt frétt CNN á vinnu­markaðurinn í Bretlandi þó erfitt uppdráttar, lítið atvinnu­leysi skilar sér ekki í raunvexti launa. Nafnvirði launa hækkuðu um 2,1% fyrir sama tímabil og verð­bólgan var 2,6%, þannig að raunvirði launa lækkaði um 0,5% frá apríl til júní. 

Samhliða lækkun raunlauna minnkaði einnig fram­leiðni í Bretlandi, annan ársfjórðunginn í röð og er nú orðin minni en í Frakk­landi, Þýska­landi og öðrum þróuðum hagkerfum. Þetta sé áhyggju­efni að mati eins álits­gjafa CNN þar sem framleiðni­aukning sé eina sjálfbæra leiðin í átt að hærri launum og meiri lífsgæðum.

Fyrir­huguð útganga Bretlands úr Evrópu­sambandinu gæti líka haft slæmar afleiðingar fyrir vinnu­markaðinn, en búast má við því að draga muni úr vinnuafli þar sem erfiðara verður fyrir erlenda verkamenn að vinna í landinu. Kjarninn hefur áður fjallað um fyrir­hugaða flutninga erlendra fjármála­fyrirtækja úr Lundúnum, en líklegt er að með þeim fari um 10-20 þúsund störf annað hvort til Dyflinnar eða Frankfurt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár