24 bankar íhuga að minnka við sig í Lundúnum

Á þriðja tug banka­stofn­anna hafa viðrað hug­myndir um að færa starf­semi sína að ein­hverju leyti frá Lundúnum vegna Brexit. Vegna hreyf­ing­anna eru 10-20 þús­und bresk störf í hættu.

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt. Bankinn íhugar að færa 4.000 störf til Evrópusambandsins frá London vegna Brexit.
Höf­uð­stöðvar Deutsche Bank í Frank­furt. Bankinn íhugar að færa 4.000 störf til Evr­ópu­sam­bands­ins frá London vegna Brexit. Mynd: EPA

Þunga­miðja fjár­mála­við­skipta í Evrópu er byrjuð að fær­ast frá London yfir á evru­svæðið í kjöl­far fyr­ir­hug­aðrar útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, en ótt­ast er að þús­undir starfa muni hverfa úr borg­inni með rekstr­ar­breyt­ingu 24 banka á næstu miss­erum.

Frétta­stofan Reuters tók saman upp­lýs­ingar um þær banka­stofn­anir sem stað­settar eru nú í London en íhuga breyt­ingar á starf­semi í kjöl­far Brexit. Samkvæmt upp­lýs­ing­unum er lík­legt að um 10-20 þús­und störf í fjár­mála­geir­anum í London muni hverfa, en flest þeirra fara annað hvort til Dyfl­innar eða Frank­furt.

Stærstar eru fyr­ir­hug­aðar hreyf­ingar hjá Deutsche Bank, en bank­inn íhugar að færa 4.000 störf frá London til evru­svæð­is­ins. Einnig hefur for­maður sam­bands þýskra banka erlendis (Der Verband der Aus­lands­banken) búist við að 3-5.000 störf muni fær­ast til Þýska­lands á næstu tveimur árum. Hér að neðan sést listi allra þeirra banka sem ætla mögu­lega að minnka við sig í London:

Bankastofnanir sem íhuga að minnka við sig í London

Banka­stofnun Ný stað­setn­ing Bresk störf í hættu
Der Verband der Aus­lands­banken Frank­furt um 4.000
Bank of America Corporation Dyflinni óvíst
Barclays Dyflinni óvíst, fá störf
BNP Paribas Frakk­land 300
Credit Agricole Frakk­land 100-1.000
Citigroup Madríd og Frank­furt Nokkur hund­ruð
Credit Suisse Dyflinni óvíst
Daiwa Securities Frank­furt óvíst
Deutsche Bank Frank­furt og annað 4.000
Euroclear Dyflinni eða Brussel óvíst
Fédération Bancaire França­ise París 1.000
Goldman Sachs Frank­furt 1.000
HSBC París 1.000
Investec Dyflinni óvíst
JPMorgan Chase Frank­furt 1.000
Lloyds Banking Group Frank­furt 1.000
Morgan Stanley Frank­furt 300
Mizuho Frank­furt 300
Nomura Frank­furt óvíst
Northern Trust Lúx­em­borg óvíst
Societe Generale París 400
Standard Chartered Frank­furt óvíst
Sumitomo Mitsui Financial Frank­furt óvíst
UBS Frank­furt, Madríd eða Amster­dam 1.500

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár