Segir fugla Ísfugls hafa verið aflífaða með útblæstri úr bíl

Maður sem starfaði á Reykja­búinu í Mosfellsbæ skömmu eftir aldamót lýsir atviki þar sem hænur sem átti að aflífa voru drepnar með því að tengja útblástur úr bíl inn í hús til þeirra. Langan tíma hafi tekið fyrir fuglana að drepast en vélin hafi verið látin ganga í þrjá daga. Framkvæmda­stjóri Ísfugls kannast ekki við umrætt tilvik. Hann segir að á sínum tíma hafi tíðkast að aflífa fugla, sem smitaðir voru af salmónellu, með útblæstri úr bílum.

Úr sláturhúsi Ísfugls
Úr slát­ur­húsi Ísfugls Fyrr­ver­andi starfs­maður Reykja­bús­ins í Mos­fellsbæ lýsir óhugn­an­legri aðferð við aflífun hæna. Fram­kvæmda­stjóri Ísfugls kann­ast ekki við til­vikið. Mynd: www.isfugl.is

Óhugnanlegri aðferð var beitt við að aflífa fugla á Reykja­búinu í Mosfellsbæ skömmu eftir aldamótin. Þetta segir Björn Kolbeinsson, fyrr­verandi starfs­maður búsins, sem segir aðferðina hafa setið í sér alla tíð síðan. Björn lýsir því svo, að einhverju sinni þegar aflífa átti hænur sem voru komnar á aldur hafi framkvæmda­stjórinn, Jón Magnús Jónsson, gert Birni og öðrum starfs­mönnum að taka þátt í því að aflífa þær með útblæstri úr bíl. „Hann sagði að það væri of dýrt að fara með þær í gegnum slátur­húsið. Hann byrjaði á því að frauða alla glugga og öll op og allt þar sem eitrið kæmist út. Svo tengdi hann barka úr púst­rörinu á Toyota Hiace við húsið. Síðan var vélin látin ganga.“

Vélin var látin ganga í þrjá daga. Þá voru starfs­menn sendir inn til þess að hreinsa úr húsinu. „Þá tók við hreinsunar­starf og þetta var það ógeðslegasta sem ég hef séð á ævinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár