Vill ekki vera „samsekur“ Trump

Öldunga­deildar­þingmaður Repúblikana sagðist ekki hafa það í sér að styðja Donald J. Trump Bandaríkja­forseta.

Ég vil ekki að vera dæmdur af sögunni fyrir að hafa ekki gert neitt. Þetta sagði Jeff Flake, öldunga­deildar­þingmaður Repúblikana frá Arizona, meðal annars í ræðu sinni, þegar hann tilkynnti um að hann hygðist ekki sækjast eftir endur­kjöri.

Flake gagnrýndi Trump Bandaríkja­forseta harðlega, og sagði orðræðu hans og hvernig hann færi gegn gildum og lýðræðis­legum leik­reglum, meðal annars með því að gengis­fella bandaríska lýðræðis­hefð með því að ala á sundur­lyndi.

Hann sagði enn fremur að það væri óásættanlegt fyrir Banda­ríkjaþing hvernig forsetinn hagaði sér, meðal annars á Twitter.

Trump hefur gagnrýnt Flake við ýmis tilefni, og kallað hann skemmt epli í hópi Repúblikana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár