Yfir 60 prósent treysta ekki stjórninni til að selja Íslandsbanka og vilja rannsóknarnefnd

Næstum þrír af hverjum fjórum kjósendum Vinstri grænna vilja að skipuð verði rann­sóknarnefnd um banka­söluna og 57 prósent þeirra treysta ekki ríkis­stjórn sem leidd er af formanni flokksins til að selja meira í Íslands­banka.

Meirihluti landsmanna treysta ekki ríkisstjórninni til að selja meira í Íslandsbanka.
Meiri­hluti lands­manna treysta ekki rík­is­stjórn­inni til að selja meira í Íslands­banka. Mynd: Bára Huld Beck

Alls segjast 63 prósent lands­manna að þeir treysti núverandi ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur illa til að selja eftir­standandi 42,5 prósent hlut ríkisins í Íslands­banka. Einungis 16 prósent segjast treysta henni vel til þess og 21 prósent segjast treysta henni í meðallagi. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína hefur látið gera. Könnunin var gerð daganna 18. til 22. nóvember og var því gerð eftir að skýrsla Ríkis­endur­skoðunar um söluferli á 22,5 prósent hlut í Íslands­banka kom út í byrjun síðustu viku.

Í sömu könnun var einnig spurt hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að Alþingi setti á fót rann­sóknarnefnd til að skoða söluna á eignar­hlut ríkisins í Íslands­banka í mars síðastliðnum. Þar kom í ljós að 61 prósent svarenda er fylgjandi því að setja upp rann­sóknarnefnd en einungis tólf prósent eru á móti því. Alls 27 prósent sögðust ekki hafa skoðun á málinu.

Sjálfstæðismenn skera sig einir úr

Þegar afstaða fólks til þess hversu vel það treysta ríkis­stjórninni til að selja banka er flokkuð niður á stjórnmála­skoðanir kemur í ljós að það eru einungis kjósendur eins flokks sem treysta henni að meirihluta vel fyrir að selja restina af Íslands­banka. Það eru kjósendur Sjálfstæðis­flokksins, flokks Bjarna Benedikts­sonar fjármála- og efnahags­ráðherra. Alls segjast 58,9 prósent þeirra treysta ríkis­stjórninni vel til að selja eftir­standandi hlut í bankanum.

Athygli vekur að kjósendur hinna stjórnar­flokkanna treysta að uppistöðu ríkis­stjórninni alls ekki til slíkra verka. Einungis 14,3 prósent kjósenda Vinstri grænna gera það og 16,1 prósent kjósenda Framsóknar­flokksins. Auk þess segjast 56,7 prósent kjósenda Vinstri grænna treysta ríkis­stjórn sem leidd er af formanni þeirra illa til að selja restina af bankanum og 56,2 prósent kjósenda Framsóknar­flokksins eru á sömu skoðun.

Ekki þarf að koma á óvart að kjósendur stjórnar­andstöðu­flokka eru upp til hópa á því að ríkis­stjórninni sé ekki treystandi fyrir frekari bankasölu.

Svipuð staða er uppi þegar kemur að áhuga um að setja á fót rann­sóknarnefnd Alþingis. Kjósendur Sjálfstæðis­flokks skera sig úr hópnum en 36,8 prósent þeirra eru andvígir því að setja á fót slíka nefnd en 26,4 prósent fylgjandi. Kjósendur allra annarra flokka eru frekar fylgjandi því en andvígir að setja á laggirnar rann­sóknarnefnd til að rannsaka banka­söluna.

Þar á meðal eru kjósendur Vinstri grænna en alls 73,4 prósent þeirra vilja að rann­sóknarnefnd verði sett á laggirnar og einungis 7,8 prósent þeirra eru á móti því. Á meðal kjósenda Framsóknar­flokksins er staðan þannig að 61,5 prósent eru fylgjandi rann­sóknarnefnd en 8,8 prósent á móti.

Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir sölu

Í fjár­­­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­­­em­ber var gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­­­sent hlutur rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka yrði seldur fyrir 75,8 millj­­­­arða króna á næsta ári. Það var gert þrátt fyrir yfir­­­lýs­ingu for­­­­­­manna stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­­­­ari hlutum í Íslands­­­­­­­­­­­banka að sinni og að sú ákvörðun verði ekki end­­ur­­skoðuð á meðan að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun og FME rann­­­­sök­uðu það sem átti sér stað í mars.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­­­­ar­hluta rík­­­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­­­­­banka og að yfir­­lýs­ingin stæði þar af leið­andi áfram. Katrín stað­­festir að ekk­ert hafi breyst í þeim efnum í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun nóv­em­ber.

Þar sagði hún einnig að engin áform væru uppi um að selja hlut í Lands­­bank­­anum en heim­ild er til þess að selja allt að 30 pró­­sent hlut í honum í fjár­­laga­frum­varp­inu. Bjarni sagði í við­tali við Dag­­mál á mbl.is í ágúst að hann vildi ekki bara vilja losa ríkið úr eign­­­ar­hluta í Íslands­­­­­banka heldur líka selja hlut í Lands­­­bank­­­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut.

Þriðji ráð­herr­ann sem situr í ráð­herra­­nefnd um efna­hags­­mál og end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins er Lilja D. Alfreðs­dótt­­ir. Í svari hennar við fyr­ir­­spurn á Alþingi í síð­­asta mán­uði sagði að stefna Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins væri að Lands­­­bank­inn verði áfram í eigu rík­­­is­ins og að flokk­­­ur­inn sé til í að skoða hug­­­myndir þess efnis að bank­inn verði sam­­­fé­lags­­­banki.

Áfelli Rík­is­end­ur­skoð­unar

Síðan þá hefur skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið í mars verið birt. Að mati stofn­un­ar­innar voru ann­markar sölu­ferl­is­ins fjöl­margir sem lúta bæði að und­ir­­­bún­­­ingi og fram­­­kvæmd söl­unn­­­ar. Þar segir meðal ann­­ars að ljóst megi vera að „orð­­­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­­­metin fyrir sölu­­­ferlið 22. mars af Banka­­­sýslu rík­­­is­ins, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyti og þing­­­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­­­ar.“ Hægt hefði, að mati Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, verið hægt að fá hærra verð fyrir eign­ar­hlut rík­is­ins en ákveðið var að selja á lægra verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundn­um. Þá hafi hug­lægt mat ráðið því hvernig fjár­festar voru flokk­að­ir, en útboðið var lokað með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og ein­ungis 207 fengu að kaupa hlut í því, sam­tals fyrir 52,65 millj­arða króna.

Banka­sýslan hefur hafnað nán­ast allri gagn­rýni sem sett hefur verið fram á hana og sagt að skýrslan afhjúpi tak­mark­aða þekk­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar á við­fangs­efn­inu.

Talið er að Fjár­mála­eft­ir­litið muni opin­bera nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar á sölu­ferl­inu í jan­ú­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár