Samfylkingin með 19 prósent fylgi og bætir við sig 4,6 prósentustigum milli mánaða

Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, Sam­fylk­ing og Píratar, hafa sam­tals bætt við sig næstum 14 pró­sentu­stigum af fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Á sama tíma hafa stjórn­ar­flokk­arnir tapað 10,7 pró­sentu­stigum. Rúmur helm­ingur fylgis­taps þeirra er hjá Vinstri grænum.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Samfylkingin

Sam­fylk­ingin mælst nú með 19 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu. Það er 4,6 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­ur­inn mæld­ist með í októ­ber og næstum tvisvar sinnum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021, þegar hann fékk 9,9 pró­sent atkvæða. Sam­fylk­ingin er einn af tveimur flokkum sem bæta við sig fylgi milli mán­aða. Hinn er Flokkur fólks­ins sem bætir þó ein­ungis við sig 0,4 pró­sentu­stigum. Hinir sjö flokk­arnir sem eru mældir af Maskínu tapa fylgi.

Helsta breyt­ingin sem orðið hefur á högum Sam­fylk­ing­ar­innar síðan að síð­asta könnun var gerð er kosn­ing Kristrúnar Frosta­dóttur sem for­manns flokks­ins, en það gerð­ist 28. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Píratar mæl­ast með 13,4 pró­sent fylgi sem er 4,8 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu upp úr kjör­köss­unum í fyrra­haust en tæpu pró­sentu­stigi minna en þeir mæld­ust með í októ­ber.

Sam­an­lagt hafa þessir tveir flokkar, sem hafa bætt lang­mestu við sig af fylgi það sem af er ári, tekið til sín 13,9 pró­sentu­stig af nýju fylgi á fyrsta ári kjör­tíma­bils­ins.

Nálgast Sjálfstæðisflokkinn

Litlu munar nú á Sam­fylk­ing­unni og Sjálf­stæð­is­flokki, stærsta flokki lands­ins, sem tapar pró­sentu­stigi milli mán­aða og mælist með 21,8 pró­sent. Það ger­ist þrátt fyrir að flokk­ur­inn hafi haldið gríð­ar­lega fjöl­mennan lands­fund, þann fyrsta frá árinu 2018, þar sem Bjarni Bene­dikts­son var end­ur­kjör­inn for­maður hans eftir að hafa verið skor­aður á hólm af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks er nú 2,6 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi.

[adspot]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn siglir nokkuð lygnan sjó með 14,8 pró­sent fylgi sem er svipað og fyrir mán­uði síðan en 2,5 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust.

Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist nú með 7,1 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur alls tapað 5,5 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum, eða meiri en nokkur annar flokkur. Sem stendur eru ein­ungis þrír flokkar, sem mæl­ast allir með í kringum fimm pró­sent fylgi, minni en Vinstri græn sam­kvæmt könnun Maskínu.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 43,7 pró­sent og dalar um 1,8 pró­sentu­stig milli mán­aða. Það fylgi myndi ekki duga fyrir meiri­hluta á þingi. Flokk­arnir þrír fengu 54,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 og því hafa þeir tapað 10,7 pró­sentu­stigum af fylgi á fyrsta ári kjör­tíma­bils­ins.

Þrír við fimm prósent markið

Viðreisn dalar lít­il­lega milli mán­aða og mælist með níu pró­sent fylgi, sem er þó enn 0,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2021.

Flokk­arnir þrír sem mæl­ast við fimm pró­sent þrösk­uld­inn, sem þarf að kom­ast yfir til að fá upp­bót­ar­þing­mann kjör­inn, eru Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokk­ur­inn með sitt hvor sléttu fimm pró­sentin og Mið­flokk­ur­inn með 4,9 pró­sent.

Könnunin fór fram dag­ana 4. til 22. nóv­em­ber 2022 og voru 2.483 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár