Lyfjastefna Óttars gagnrýnd: „Ekki eitt orð um hámarks kostnaðarþátttöku þeirra sem eru veikir“

Í lyfja­stefnu heilbrigðis­ráðherra er lögð áhersla á að efla „kostnaðar­vitund“ almennings.

Í lyfja­stefnu Óttars Proppé heilbrigðis­ráðherra eru engin fyrirheit gefin um að sett verði þak á greiðslu­þátttöku sjúklinga vegna allra lyfja. Hins vegar er lögð áhersla á að efla „kostnaðar­vitund“ almennings og heilbrigðis­starfsfólks. 

Stefnan var lögð fram á Alþingi í formi þings­ályktunar­tillögu í loks mars og gekk til velferðar­nefndar 4. apríl. Hvergi er fjallað með beinum hætti um kostnaðar­hlutdeild sjúklinga vegna lyfja í stefnunni sjálfri, en í greinar­gerð er hins vegar tekið fram að ekki sé nóg „að lyf séu ávallt fáanleg á markaði heldur þurfa þau að vera á viðráðanlegu verði og tryggt að Sjúkra­tryggingar Íslands taki virkan þátt í kostnaði notenda þeirra svo stuðlað sé að sem mestum jöfnuði“. 

Í umsögn MND-félagsins á Íslandi um lyfja­stefnuna er bent á þetta. „Það er mikið rætt um kostnaðar­vitund fagfólks og notanda í stefnunni. Við yfir­lestur er ekki eitt orð um hámarks kostnaðar­þátttöku þeirra sem eru veikir,“ skrifar Guðjón Sigurðsson, formaður félagsins. „Held að það hljóti að eiga heima í Lyfja­stefnu svo ekki verði einvörðungu mögulegt fyrir fyrir fólk á þingmanna­launum að kaupa sér lífs­nauðsynleg lyf.“ 

Árið 2013 var sett þak á kostnað sjúklinga vegna þeirra lyfja sem Sjúkra­tryggingar Íslands taka þátt í að greiða. Byggir greiðslu­þátttöku­kerfið á á þrepa­skiptri greiðslu­þátttöku þar sem hver einstaklingur greiðir hlutfalls­lega minna eftir því sem lyfja­kostnaður hans eykst innan tólf mánaða tímabils, en þau lyf sem Sjúkra­tryggingar taka ekki þátt í að greiða falla utan greiðslu­þrepanna.

„Held að það hljóti að eiga heima í Lyfja­stefnu
svo ekki verði einvörðungu mögulegt fyrir
fyrir fólk á þingmanna­launum að kaupa
sér lífs­nauðsynleg lyf“

Í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar kemur fram að ráðherra hyggist beita sér fyrir lækkun á kostnaðar­hlutdeild sjúklinga í lyfja­kostnaði. Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna læknis­kostnaðar og þjálfunar tekur gildi í byrjun maí, en kerfið tekur ekki til lyfja. Þetta benti Halldóra Mogensen, þingkona Pírata, á þegar rætt var um lyfja­stefnuna á Alþingi í byrjun mánaðar.

„Það er að koma nýtt greiðslu­þátttöku­kerfi 1. maí en þar er ekki tekið á lyfja­kostnaði. Stór þáttur í kostnaðinum eru lyfin,“ sagði hún og bætti við: „Hvernig ætlum við að koma til móts við fólk þannig að við látum ekki veikt fólk vera í kvíða­kasti vegna fjárhags­áhyggna þegar það þarf mest á því að halda að geta verið í ró og næði til að ná heilsu aftur?“

Halldóra og fleiri þingmenn stjórnar­andstöðunnar gagnrýndu Óttar fyrir að fjalla ekki með beinum hætti um kostnaðar­þátttöku sjúklinga í stefnunni.

„Ástæðan fyrir því að ekki er sérstak­lega farið inn í kostnaðar­þátttökuna á annan hátt en með þessari almennu stefnu er vegna þess að það er ákveðið á endanum í fjárlögum og fjár­heimildum ríkisins til mála­flokksins. Þar erum við sammála, ég og þing­maðurinn, um að það eigi að gera betur,“ svaraði hann og bætti við: „Það er stefna ríkis­stjórnarinnar að lækka greiðslu­þátttöku almennings í heilbrigðis­kerfinu. Lyf eru ekki undan­skilin þar. Ástæðan fyrir því að það er ekki nákvæmar orðað í lyfja­stefnunni er vegna þess að fjár­heimildirnar eru ákveðnar af Alþingi í fjárlögum.“

Steinunn Þóra Árna­dóttir, þingkona Vinstri grænna, gaf lítið fyrir þessa útskýringu Óttars. „Gott og vel, það verður auðvitað gert í fjárlögum,“ sagði hún. „En ég sakna þess engu að síður að þessa sjáist ekki stað í fjármála­áætluninni. Það hefði að mínu mati verið ákveðin undir­bygging fyrir það sem kemur í fjár­laga­frumvarpinu þegar það svo kemur fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár