Á ríkisvaldið að velja einkarekstur í heilbrigðiskerfinu?

Ýmsar fréttir benda til þess að ríkis­valdið á Íslandi muni í auknum mæli horfa til einka­rekstrar sem mögulegs rekstrar­forms í heilbrigðis­kerfinu. Langur biðtími er eftir vissum aðgerðum og eins og mjaðma­skipta- og augn­steina­aðgerðum.

Ekki blindur einkarekstrarsinni
Ekki blindur einka­rekstr­ar­sinni Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra er alls ekki blindur einka­rekstr­ar­sinni í heil­brigð­is­málum eins og stundum er látið í veðri vaka í opin­berri umræðu. Vera kann að hann afli sér óvin­sælda innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir að vera ekki nægi­lega mik­ill einka­væð­ing­ar­sinni. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Þegar þessi orð eru skrifuð eru um 1645 Íslendingar á efri árum á biðlista eftir skurða­aðgerð á auga­steini af því þeir eru komnir með sjón­truflanir. Tæplega 1400 þeirra hafa beðið eftir þessari tiltölu­lega einföldu aðgerð í þrjá mánuði eða lengur. Þessar upplýsingar koma fram í tölum frá Land­spítalanum.

Þetta er yfirleitt fólk sem er komið á eftirlaun eftir að hafa unnið og greitt skatta alla sína tíð en nú, þegar það ætlar að njóta ævikvöldsins, þarf það að búa við þá skerðingu á lífsgæðum sem fylgir því að vera með ský á auga og geta ekki gert og þeirra hluta sem það annars gæti ef sjón þeirra væri lögð með augasteina­aðgerð.

Á síðustu tólf mánuðum hefur meðal­biðtími allra þeirra sem farið hafa í augasteina­gerð á Íslandi í gegnum ríkis­rekna heilbrigðis­kerfið, annað hvort á Land­spítalanum eða hjá einka­reknum augn­læknastofum sem eru með samning við Sjúkra­tryggingar Íslands, verið tæpir 10 mánuðir. Tíu mánuðir - þetta er næstum því heilt ár - með skerta sjón. Tíu mánaða bið eftir aðgerð sem hefði verið hægt að afgreiða fyrir um 400 þúsund krónur á nokkrum klukku­stundum og einstaklingurinn hefði farið heim samdægurs og sofið í rúminu sínu með betri sjón en þegar hann vaknaði um morguninn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár