Þingmaður Pírata sakar Bjarna um misbeitingu valds og vill að hann segi af sér

„Er það ekki misbeiting valds þegar ráðherra sem sundaði viðskipti í gegnum skatta­skjól ákveður að fela skýrslu um viðskipti Íslendinga í gegnum skatta­skjól rétt fyrir kosningar sem var flýtt vegna skatta­skjóls­viðskipta?“ spurði Björn Leví Gunnarsson í sérstakri umræðu á Alþingi í dag.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, kallaði eftir afsögn Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra í sérstakri umræðu á Alþingi í dag þar sem fjallað var um þá ákvörðun ráðherra að birta ekki skýrslu um aflandseignir Íslendinga fyrr en eftir að þing­kosningar fóru fram.

Sagði Björn, sem sjálfur var máls­hefjandi umræðunnar, að kominn væri tími til að ráðherra yrði látinn svara fyrir ákvörðun sína og að ræða þyrfti hverjar afleiðingarnar yrðu. Hann spurði Bjarna spurninga um málið og gagnrýndi jafnframt þær skýringar og afsakanir sem ráðherra hefur áður gefið.

Í svörum sínum lagði forsætis­ráðherra áherslu á að hann hefði ekki brotið lög og að hann hefði einungis frestað birtingu skýrslunnar til að tími gæfist til þinglegrar umfjöllunar um hana. Þá endurtók Bjarni Benediktsson þá skoðun sína að hann teldi að birting og efni skýrslunnar hefðu ekki haft áhrif á úrslit þing­kosninganna þann 29. október. 

Björn Leví benti á að í siða­reglum ráðherra er skýrt kveðið á um að ráðherra skuli hafa frumkvæði að því að birta upplýsingar sem varða almannahag. „Ég hlakka til að heyra skoðanir þingmanna á því hverjar afleiðingarnar ættu að vera og af hverju. Ég bið þingmenn um að hafa þetta í huga, við hérna inni erum ekki almenningur. Við vinnum í almennings­þágu. Ráðherrar bera þar mesta ábyrgð og eitt af ábyrgðar­hlutverkum ráðherra er að miðla upplýsingum. Ekki bara að miðla upplýsingum til þingsins heldur til almennings en 6. grein siða­reglnanna fjallar einmitt um upplýsinga­gjöf og samskipti við almenning, ekki við þingið,“ sagði hann.

„Hvað þýðir það þegar ráðherrar geta bara sleppt því að fara eftir siða­reglum sem þeir setja sjálfum sér, lögum samkvæmt? Er það traust­vekjandi? Er það ábyrgt? Er það ekki misbeiting valds þegar ráðherra sem sundaði viðskipti í gegnum skatta­skjól ákveður að fela skýrslu um viðskipti Íslendinga í gegnum skatta­skjól rétt fyrir kosningar sem var flýtt vegna skatta­skjóls­viðskipta? Hagsmuna­áreksturinn er augljós. Kosninga­samhengið er augljóst. Sá sem valdið hafði, þrátt fyrir hagsmuna­tengsl og þrátt fyrir siða­reglur, ákvað að fela upplýsingar sem kjósendur áttu rétt á að fá.“

Sagði Björn að með ákvörðun sinni hefði ráðherra svikið kjósendur. „Ráðherra, með misbeitingu á valdi sínu, kom í veg fyrir að kjósendur gætu, fyrir kosningar, lagt eigið mat á þær upplýsingar sem koma fram í skýrslunni. Trúnaðar­brot gerast ekki alvarlegri en þetta. Það er óásættanlegt að ráðherra geri svona, ekki bara umræddur ráðherra heldur allir ráðherrar. Ráðherrar núna, ráðherrar fram­tíðarinnar. Þingmenn verða að krefjast agaðri vinnu­bragða. Alþingis vegna. Þjóðarinnar vegna.“

Þá bað hann þingmenn um að velta fyrir sér hvað samviskan segði þeim. „Afsaka þingmenn verknaðinn af því að það hentar stöðu þeirra persónu­lega? Telja þingmenn sig vera ábyrgðar­lausa með því að gera ekki neitt? Skilja þingmenn kannski ekki hversu alvarlegt þetta trúnaðar­brot er? Hvað gerist næst þegar einhver ráðherra stingur upplýsingum ofan í skúffu? Á ekkert að gerast? Ef afleiðingarnar verða engar núna, af hverju ættu að vera afleiðingar seinna? Ef það verða afleiðingar seinna, af hverju ekki núna? Geta hátt­virtir þingmenn sagt heiðar­lega að sama hver eigi í hlut, sama hvenær, þá eigi afleiðingarnar af svona svikum eigi að vera nákvæmlega engar? Auðvitað ekki. Því bið ég um þessa sérstöku umræðu þar sem forsætis­ráðherra getur útskýrt mistök sín, beðist afsökunar og sagt af sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár