„Komi nefndin með tillögur um grundvallarbreytingar, þá verða þær einfaldlega stöðvaðar“

Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins greina blaða­konunni Agnesi Braga­dóttur frá því í nafn­lausum viðtölum að þeir hafi engar áhyggjur af nefndinni um framtíðar­fyrir­komulag gjaldtöku í sjávar­útvegi. Grundvallar­breytingar verði hvort sem er stöðvaðar á Alþingi.

Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins ætla að koma í veg fyrir hvers kyns grundvallar­breytingar á gjaldtöku í sjávar­útvegi, óháð því hver niður­staða þver­pólitískrar nefndar sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra verður. Þeir greina frá þessu undir nafnleynd í viðtali við blaða­konuna Agnesi Braga­dóttur í Morgun­blaðinu.

„Menn eru ekkert að stressa sig á þessu, því komi nefndin með tillögur um grundvallar­breytingar, þá verða þær einfald­lega stöðvaðar í þinginu. Þetta er nú ekki ýkja flókið,“ er haft eftir ónafn­greindum þingmanni Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík í fréttinni sem birtist í Morgun­blaðinu í gær.  

Eins og Stundin greindi frá í fyrra hefur Sjálfstæðis­flokkurinn þegið meira en 20 milljónir frá handhöfum kvóta á tíma­bilinu 2013 til 2015. Um er að ræða 28 prósent af öllum styrkjum lögaðila til flokksins. Á sama tímabili voru veiði­gjöld styrk­veitendanna lækkuð auk þess sem reynt var að úthluta þeim tugmilljarða makríl­kvóta.

Í síðustu viku gekk Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra úr röðum Viðreisnar, frá skipan nefndar til að móta tillögur um hvernig tryggja megi sann­gjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiði­auðlindinni.

Nefndin er skipuð samkvæmt tilnefningum allra stjórn­málaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi og mun skila tillögum til ráðherra í formi laga­frumvarps ekki seinna en 1. desember næst­komandi.

Þorsteinn Pálsson, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins, mun gegna formennsku í nefndinni. Eins og Stundin fjallaði um í síðustu viku hefur Þorsteinn, á tíma­bilinu 1996 til 2012, ítrekað varað við gjaldtöku í sjávar­útvegi og meðal annars talað gegn því að tekið sé upp veiðileyfa­gjald eða auðlinda­skattur á sjávar­útvegs­fyrirtæki. Þegar ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðar­dóttur og Steingríms J. Sigfús­sonar lagði fram frumvarp til laga um veiði­gjöld í mars 2012, fullyrti Þorsteinn að ef lögin yrðu að veruleika myndu flest útgerðar­fyrirtæki á Íslandi leggja upp laupana.  Þá hefur hann lagst gegn uppboði afla­heimilda, en uppboðs­leið í sjávar­útvegi var á meðal helstu kosninga­loforða Viðreisnar í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga. 

Að því er fram kemur í frétt Agnesar Braga­dóttur í Morgun­blaðinu eru þingmenn Sjálfstæðis­flokksins óánægðir með að Viðreisn eigi tvo fulltrúa í nefndinni en aðrir flokkar aðeins einn. Hins vegar hafa þing­mennirnir litlar áhyggjur, enda telja þeir ólíklegt að neitt komi út úr starfi nefndarinnar sem byggjandi verði á. 

Eftir­farandi er haft eftir þingmanni Sjálfstæðis­flokksins: „Ef þessi svokallaða þver­pólitíska nefnd skilar frumvarpi sem felur í sér byltingar­kenndar breytingar­tillögur sem grafa undan góðu sjávar­útvegs­kerfi okkar, þá verður það frumvarp einfald­lega stöðvað á Alþingi og þar munu Sjálfstæðis­flokkur og örugglega Framsóknar­flokkur og fleiri ná saman. Við látum ekki eyði­leggja gott kerfi, þótt við séum vissulega opnir fyrir einhverjum breytingum, svo sem á reglum um framsal og veiði­skyldu.“

„Þá verður það frumvarp einfald­lega stöðvað á Alþingi og þar munu Sjálfstæðis­flokkur og örugglega Framsóknar­flokkur og fleiri ná saman“

Fram kemur að fleiri þingmenn flokksins séu á sama máli og hafi efasemdir um að nokkuð raunhæft komi út úr störfum nefndarinnar. Þess vegna hafi þeir litlar áhyggjur af því hvernig hún er mönnuð. „Komi nefndin með tillögur um grundvallar­breytingar, þá verða þær einfald­lega stöðvaðar í þinginu,“ fullyrðir ónafn­greindur þingmaður Sjálfstæðis­flokksins úr Reykjavík. Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins úr Reykja­víkur­kjördæmunum eru þau Guðlaugur Þórðarson, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, Birgir Ármannsson, Brynjar Níelsson, Sigríður Á. Andersen og Hildur Sverris­dóttir. 

Þingmenn úr hinum stjórnar­flokkunum hafa talað á þá leið að þeir bindi miklar vonir við störf hinnar þver­pólitísku nefndar um framtíðar­fyrir­komulag gjaldtöku í sjávar­útvegi. Þannig hefur t.d. Hanna Katrín Friðriksson, þing­flokks­formaður Viðreisnar, lagst gegn uppboði viðbótar­kvóta á þeirri forsendu að slíkt kunni að trufla vinnu nefndarinnar. „Ég óttast að þessi inngrip í þetta afla­hlutdeildar­kerfi gæti haft neikvæð áhrif á þá vinnu sem er að fara í gang í þessum töluðu orðum og ég bind svo miklar væntingar við,“ sagði hún í umræðum á Alþingi þann 3. maí. „Ég trúi því að sú vinna skili niður­stöðum sem hafi langtíma­hagsmuni í huga. Ég nýt þess að vera fulltrúi Viðreisnar í nefndinni. Ég hlakka til vinnunnar. Ég mun í anda Viðreisnar halda þar á lofti sjónar­miðum um útboðs­leiðina.“ 

„Ég trúi því að sú vinna skili niður­stöðum
sem hafi langtíma­hagsmuni í huga“

Frétt Agnesar Braga­dóttur og ummæli þingmanna Sjálfstæðis­flokksins báru á góma í Silfrinu í morgun. Karl Pétur Jónsson, aðstoðar­maður Þorsteins Víglundssonar félagsmála­ráðherra, sagðist ekki hafa neinar áhyggjur af þeim upplýsingum sem þar komu fram. 

Frétta­maðurinn Kristinn Hrafnsson sagði hins vegar að ummæli þing­mannanna hefðu afhjúpað skipun nefndarinnar sem sýndar­gjörning. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur tekið sama pól í hæðina. „Það kemur ekki til greina að auka gjaldtöku fyirr afnot af fiskveiði­auðlindinni. Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins munu stöðva það og segjast treysta á Framsóknar­flokkinn og „fleiri“ til að tryggja þá niður­stöðu. Þeir hafa engar áhyggjur af málinu. Skipun nefndarinnar er því leik­sýning og aldrei hefur staðið til að auka gjaldtöku af fiskveiði­auðlindinni,“ skrifaði hann á Facebook í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár