Kínverjar æfa eldflaugaskot á meðan Taívanar búa sig undir að verjast

Umfangs­mesta her­æf­ing Kínverja fer nú fram umhverfis Taívan. Stjórn­mála­menn víða að kalla eftir því að allt fari frið­sam­lega fram en flug­skeytum hefur verið skotið á loft á æfing­unni. Taívanar ætla ekki að hrinda af stað átökum en eru við öllu búnir.

Xi Jinping, forseti Kína, og Tsai Ing-wen, forseti Taívan.
Xi Jinping, for­seti Kína, og Tsai Ing-wen, for­seti Taívan. Mynd: EPA

Taívan mun ekki koma af stað átökum við Kínverja en mun engu að síður verja full­veldi sitt og þjóðar­ör­yggi. Þetta segir for­seti lands­ins Tsai Ing-wen í mynd­bandsávarpi til þjóðar sinnar, en greint er frá þessu í frétt Reuters.

Mynd­bandsávarp for­set­ans kemur í kjöl­far stærstu her­æf­ingar Kínverja sem nú fer fram víða á haf­svæð­inu í kringum Taívan, meðal ann­ars á Taívan-sundi sem liggur á milli Taívan og Kína. Ráðgert er að hern­að­ar­æf­ingin standi yfir fram á sunnu­dag.

Fram kemur í umfjöllun Reuters að yfir 100 flug­vélar kín­verska hers­ins taki þátt í her­æf­ing­unni sem mun standa fram á sunnu­dag, þar á meðal orustu­þotur og sprengju­flug­vélar. Þar að auki taka á annan tug her­skipa þátt í æfing­unni. Kín­verski her­inn hefur meðal ann­ars skotið flug­skeytum á loft á her­æf­ing­unni.

Herskip og flug­vélar á vegum kín­verska hers­ins hafa í dag farið yfir hina svoköll­uðu mið­línu sem liggur mitt á milli Kína og Taívans á Taívan-sundi og sendi Taí­vanski her­inn her­þotur til móts við flug­vélar kín­verska hers­ins. Þá hafa Taívanar virkjað sér­stök við­vör­un­ar­kerfi gegn skot­flaugum til þess að fylgj­ast með flugi kín­verska hers­ins undan ströndum lands­ins.

Emb­ætt­is­menn í Taívan segja að æfingin brjóti í bága við sam­þykktir Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem hern­að­ar­brölt Kínverja hafi átt sér stað innan yfir­ráða­svæðis Taívans og ógnað öryggi bæði í lofti og á hafi.

Hafa eldað grátt silfur saman frá miðri síðustu öld

Sjálfs­stjórn hefur verið á Taívan allt frá árinu 1949 er komm­ún­istar undir stjórni Mao Zedong náðu völdum í Beijing og stofn­uðu Alþýðu­lýð­veldið Kína. Í kjöl­farið flúðu and­stæð­ingar Mao for­manns, stuðn­ings­menn Chiang Kaishek og Guom­ind­ang-flokks­ins, til Taívan.

Fram kemur í svari á Vís­inda­vefnum sem fjallar um Kína og sjálf­stjórn­ar­héruð þess að spenna hafi ríkt í sam­skiptum Kína og Taívan allt frá árinu 1949. Sú spenna er ekki síst til­komin vegna þess að stjórn­völd beggja vegna mið­lín­unnar svoköll­uðu gera til­kall til meg­in­lands­ins.

„Eins eru flestir með­vit­aðir um spenn­una milli Kína og Taívan sem hald­ist hefur síðan komm­ún­istar náðu völdum 1949 í Kína og fyrri stjórn­völd flúðu til Taí­van­eyju. Færri vita kannski að stjórnir beggja aðila eru sam­mála um að Taívan sé sýsla í hinu stóra Kína. Ágrein­ing­ur­inn snýst í raun um hvor stjórnin eigi rétt á að ráða yfir Kína sem heild,“ segir á Vís­inda­vefnum.

Kínverjar ósáttir við heimsókn Nanncy Pelosi

Hern­að­ar­æf­ingin kemur í kjöl­far opin­berrar heim­sóknar Nancy Pelosi, for­seta banda­rísku full­trúa­deild­ar­innar, til Taívan. Pelosi er hæst­setti emb­ætt­is­mað­ur­inn innan banda­ríska stjórn­kerf­is­ins til þess að heim­sækja Taívan í ald­ar­fjórð­ung.

Kín­verjum hugn­að­ist ekki heim­sókn Pelosi og utan­rík­is­ráð­herra Kína, Wang Yi, sagði að heim­sókn hennar væri „óðs­leg, óábyrg og óskyn­sam­leg,“ að því er fram kemur í umfjöllun Reuters.

Í stuttri heim­sókn sinni sagði Pelosi að Banda­ríkja­menn stæðu með Taívönum og að reiði Kínverja kæmi ekki í veg fyrir að stjórn­mála­leið­togar heim­sæktu landið.

Haft er eftir John Kirby, tals­manni banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að banda­rísk yfir­völd fylgist náið með stöð­unni í frétt the Guardian. „Þetta er áhyggju­efni. Þetta er ekki bara áhyggju­efni fyrir okkur heldur er þetta að sjálf­sögðu áhyggju­efni fyrir íbúa Taívan. Þetta er líka áhyggju­efni fyrir banda­menn okkar á svæð­inu, sér­stak­lega Japani,“ sagði Kirby í við­tali við MSNBC í dag en í það minnsta fimm flug­skeyti kín­verska hers­ins hafa lent innan jap­anskrar lög­sögu.

Kirby var spurður um það orsök hern­að­ar­æf­ing­ar­innar megi rekja til heim­sóknar Pelosi til Taívan. „Kín­verjar bera ábyrgð á þess­ari stöðu,“ sagði Kirby. „Þeir hefðu ekki þurft að bregð­ast með þessum hætti við eðli­legum ferða­lögum stjórn­mála­manna til Taívan. Kín­verjar bera ábyrgð á því að spennan hefur stig­magn­ast.“

Ráðamenn vilja að allt fari friðsamlega fram

Ráðamenn víða að hafa brugð­ist við her­æf­ingum Kínverja á haf­svæð­inu í grennd Taívans. Haft er eftir Jens Stol­ten­berg fram­kvæmda­stjóra Atl­ants­hafs­banda­lags­ins í frétt Reuters að Kín­verjar ættu ekki að gera of mikið úr heim­sókn Nancy Pelosi til Taívan. Heim­sóknin kall­aði alls ekki á ógn­andi til­burði af hálfu Kínverja.

Utan­rík­is­ráð­herrar G7 ríkj­anna sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem kín­versk yfir­völd voru hvött til þess að lægja öld­urnar á Taívan-sundi. Hætta væri á að hern­að­ar­æf­ingar Kínverja á svæð­inu hefðu í för með sér aukna spennu og óstöð­ug­leika á svæð­inu. Í hópi G7 ríkja eru Banda­ríkin, Kanada, Bretland Frakk­land, Þýska­land, Ítalía og Japan.

Kín­verskir ráða­menn brugð­ust ókvæða við yfir­lýs­ingu G7 ríkj­anna og hefur utan­rík­is­ráð­herra Kína, Wang Yi, aflýst fundi sínum með Yos­himasa Hayashi, utan­rík­is­ráð­herra Japans, en til stóð að þeir myndu ræða saman á hlið­ar­fundi við form­lega dag­skrá fundar ASEAN, sam­taka ríkja í Suð­austur-Asíu, sem nú stendur yfir í Kambódíu.

Fundur 27 utan­rík­is­ráð­herra AESAN ríkj­anna hefur lit­ast tals­vert af þró­un­inni í grennd við Taívan. „ASEAN er reiðu­búið til þess að taka að sér það verk­efni að koma á frið­sam­legum sam­ræðum milli allra hlut­að­eig­andi aðila,“ segir í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin hafa sent frá sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár