„Þetta er í vinnslu“

Formaður Banka­sýslunnar segir að ekkert liggi fyrir á þessari stundu hvað minnis­blað varðar um gjafir og greidda hádegis­verði í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja útboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka.

Jón Gunnar Jónsson formaður Bankasýslunnar.
Jón Gunnar Jónsson for­maður Banka­sýsl­unnar. Mynd: Úr safni

„Þetta er í vinnslu,“ segir Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, í svari við fyrir­spurn Kjarnans þar sem hann er spurður hvort stofnunin sé búin að taka saman minnis­blað um gjafir og greidda hádegis­verði í kjöl­far eða í aðdrag­anda beggja útboða sem fram hafa farið með hluti rík­is­ins í Íslands­banka.

Fram kom á opnum fundi fjár­laga­nefndar í lok apríl síðastliðins að Jón Gunnar hefði meðal annars þáð vínflöskur, flugelda, konfekt og málsverði frá sölu­ráðgjöfum í ferlinu. Nefnd­ar­menn fóru fram á ítarleg svör um málið og sagðist forstjórinn ætla að taka saman minn­is­blað um þessar gjafir og greiddu hádeg­is­verð­i.

Lárus Blön­dal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unn­ar, var spurður sömu spurninga og svar­aði hann neit­andi fyrir sitt leyti.

Fund­ur­ fjár­laganefndar kom til vegna gagn­rýni á sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka þann 22. mars síð­ast­lið­inn á 52,65 millj­arða króna. Alls fengu 207 fjár­festar þá að kaupa hluti á verði sem var sam­an­lagt 2,25 millj­örðum króna undir mark­aðsvirði bank­ans í lok­uðu útboði sem fór fram sam­kvæmt til­boðs­leið.

Jón Gunnar segir jafnframt í svari sínu til Kjarnans að ekki liggi fyrir hvenær fyrrnefnt minnis­blaðið verði tilbúið eða hvort Banka­sýslan muni birta það opinber­lega.

Salan skoðuð

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands skoðar nú hátt­semi ein­hverra þeirra fimm inn­lendu sölu­að­ila sem Banka­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þar sé verið að skoða mögu­lega hags­muna­á­rekstra, meðal ann­ars vegna þess að starfs­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­in­u.

Ríkis­endurskoðun vinnur einnig að stjórnsýslu­úttekt á sölunni. Kjarn­inn greindi frá því í júní að skil á niður­stöðunni myndi frest­ast. Skýrslan átti sem sagt að koma út í júní en nú er stefnt að því að skila henni fyrir versl­un­ar­manna­helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár