Úttekt á bankasölunni enginn endapunktur á málinu

Rannsókn Ríkis­endur­skoðunar á banka­sölunni reyndist ekki sú hraðleið sem ríkis­stjórnin hélt fram, segir þing­flokks­formaður Pírata. Þingmaður Samfylk­ing­ar­innar segir seinkun á niður­stöðunni ekki koma á óvart.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að Ríkis­endurskoðun þurfi lengri tíma til að vinna úttektina um Íslands­bankamálið. Þetta er umfangs­mikið mál og embættið eflaust fáliðað vegna sumar­leyfa.“ Þetta segir þingmaður Samfylkingarinnar, Jóhann Páll Jóhannsson, við Kjarnann.

Kjarninn greindi frá því í morgun að skil á niður­stöðu stjórnsýslu­úttektar Ríkis­endur­skoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka síðastliðinn vetur muni frestast. Skýrslan átti að koma út í júní en nú er stefnt að því að skila henni fyrir verslunar­manna­helgi. Kjarninn leitaði viðbragða stjórnar­andstöðunnar við þeim tíðindum.

Jóhann Páll segir að Samfylkingin hafi lagt áherslu á það í þingloka­samningum að boðað yrði til þing­fundar þegar úttektin lægi fyrir, og um þetta hafi samstaða náðst. Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd og þing­heimur hljóti svo að rýna úttekt Ríkis­endur­skoðanda og bregðast við henni.

„En sama hvað kemur fram í úttektinni er ljóst að hún, og umfjöllun um hana, verður enginn enda­punktur á málinu. Ríkis­endurskoðun skoðar auðvitað þá þætti er falla að starfs­sviði og eftirlits­hlutverki þess embættis, en eftir standa svo stóru spurningarnar um þátt fjármála- og efnahags­ráðherra, hvort hann hafi lagt fullnægjandi grundvöll að ákvörðunum sínum við sölu bankans, hvort hann hafi fylgt skráðum og óskráðum reglum stjórnsýslu­réttar og rækt eftirlits­skyldur sínar gagnvart Banka­sýslunni með viðunandi hætti, hvort hann teljist ef til vill hafa brostið hæfi til að koma að ákvörðun um sölu á ríkiseign til föður síns og svo framvegis,“ segir hann.

Eðlilegt næsta skref að skipuð verði óháð rannsóknarnefnd

Þá telur þing­maðurinn það vera ljóst að ýmsir þættir Íslands­banka­málsins verði ekki upplýstir til fulls nema af aðila með víðtækari rannsóknar­heimildir en Ríkis­endurskoðun hefur.

„Í þessu samhengi má rifja upp að síðast þegar ríkis­endur­skoðandi rann­sakaði bankasölu komst hann að þeirri niður­stöðu að við hana væri ekkert að athuga. Þegar rann­sóknarnefnd Alþingis kannaði sama mál og komst að gagn­stæðri niður­stöðu benti ríkis­endur­skoðandi réttilega á að hið sanna hefði komið í ljós vegna víðtækra rann­sóknar- og eftirlits­heimilda rann­sóknar­nefndarinnar sem hann hafði ekki. Alþingi ætti að draga lærdóm af þessari atburðarás. Eðlilegt næsta skref eftir að úttekt Ríkis­endur­skoðunar liggur fyrir er að skipuð verði óháð rann­sóknarnefnd á grund­velli laga um rann­sóknar­nefndir Alþingis til að fara yfir þetta mál.

Við Kristrún Frosta­dóttir bíðum auðvitað enn eftir svari við fyrir­spurn um framgang málsins sem við lögðum fram 1. júní. Enn bólar ekkert á svörum þótt þingskapalög geri ráð fyrir að fyrir­spurnum til skriflegs svars sé að jafnaði svarað innan 15 virkra daga,“ segir Jóhann Páll.

Seinkun kemur ekki á óvart – Skýrsla frá ríkisendurskoðanda engin hraðleið

Halldóra Mogensen þing­flokks­formaður Pírata segir við Kjarnann að það komi þeim ekki á óvart að vinna ríkis­endur­skoðanda tefjist en auðvitað sýni það svart á hvítu að upphaflegt mat ríkis­stjórnarinnar og stjórnar­liða að beiðni um skýrslu frá ríkis­endur­skoðanda væri einhvers konar hraðleið hafi ekki verið rétt.

„Orðræða stjórnar­liða gegn sérstakri rann­sóknarnefnd sneri að mestu leyti um hversu hægvirkt það yrði í saman­burði við skýrslu ríkis­endur­skoðanda,“ segir hún.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar tekur undir með Halldóru og segir við Kjarnann að seinkunin komi í sjálfu sér ekkert á óvart – þannig séð.

„Að mínu mati þýðir þetta að stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd hefji sína vinnu um skýrsluna þegar líður á ágúst­mánuð. Að hefja þá vinnu í júlí­mánuði finnst mér ekki ganga, ef skýrslan verður á annað borð tilbúin þá,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár