Hanna Birna verður formaður utanríkismálanefndar: „Síður slegin skjaldborg um konurnar heldur en strákana“

Fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra segist hafa verið kölluð ísdrottning. Hún vill vera konum fyrirmynd sem stendur af sér storma.

Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra og vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins, vill taka að sér formennsku í nefnd á þinginu sem nú er að hefjast. Þetta kom fram í viðtali við hana í þættinum Morgun­vaktinni á Rás 1 í morgun. „Ég held að konur nálgist stjórn­málin aðeins öðruvísi en karlar,“ sagði hún í spjalli við Óðin Jónsson, umsjónar­mann þáttarins og fyrr­verandi frétta­stjóra RÚV.
 

Uppfært kl. 17:00:
Ljóst er að Hanna Birna Kristjáns­dóttir verður formaður utan­ríkismála­nefndar Alþingis. Þetta var samþykkt á þing­flokksfundi Sjálfstæðis­flokksins í dag.

 

Hanna Birna sagði af sér embætti innan­ríkis­ráðherra þann 21. nóvember 2014. Mikið hafði gengið á; aðstoðar­maður hennar var dæmdur fyrir að leka persónu­upplýsingum um hælis­leitendur til fjölmiðla, hún var staðin að því að segja Alþingi og fjöl­miðlum ósatt um málavöxtu en auk þess hafði DV greint frá afskiptum hennar af lögreglu­rannsókn á innan­ríkis­ráðuneytinu sem Umboðs­maður Alþingis fjallaði síðar ítarlega um í áliti þann 23. janúar á þessu ári.

„Skortur á öflugum konum“

„Ég var reyndar að hugsa það á leiðinni hingað, það eru tvö ár síðan allt þetta byrjaði í kringum þetta mál sem varð þess síðar valdandi að ég kvaddi þetta aðeins í bili,“ sagði Hanna Birna í viðtalinu og bætti því við að hún væri hugsi yfir hörkunni í stjórn­málum.

„Það er nú stöðugur skortur á öflugum konum sem gefa kost á sér í þennan harða slag, hefur það áhrif á þá ákvörðun þína að halda áfram?“ spurði Óðinn og tók Hanna Birna undir það. Sagði hún að það væri alþjóðleg staðreynd að konur færu síður í stjórnmál en karlar og entust þar skemur. Þessu til vitnis nefndi Hanna Birna að sú kona sem hefði mesta þing­reynslu á Alþingi, Katrín Júlíusdóttir, aðeins nýorðin fertug. „Ég vil allavega ekki vera þannig kona að ég fari í burtu með skila­boðunum: þið skulið ekki vera hérna,“ sagði Hanna Birna.

Hefur verið kölluð ísdrottning

„Það er mikilvægt að hafa þessa fyrirmynd að konur standi af sér þessa storma eða hvað?“ spurði Óðinn og Hanna Birna jánkaði því. „Ég hef fengið á mig nöfn í þeim anda að ég sé kaldrifjuð og ég sé ísdrottning, og öll þessi fögru nöfn,“ sagði Hanna Birna. „Konur eiga að vera þátt­takendur, gerendur í stjórn­málum, ekki fórnar­lömb og alls ekki eitthvað vegg­skraut.“

„Þú tókst þér tíma í að sleikja sárin
og sýndir þessa kvenlegu auðmýkt“

Óðinn sagði við Hönnu Birnu að hún hefði sýnt „kvenlega auðmýkt“. „Þú tókst þér tíma í að sleikja sárin og sýndir þessa kvenlegu auðmýkt, fórst í skuggann og fórst með veggjum í þing­húsinu á síðasta ári,“ sagði hann. Hanna Birna svaraði: „Ég vil nú ekki meina að ég hafi farið með veggjum. Ég var bara, þetta reyndist mér bara erfitt og mjög snúið. Og það að vita ekki í heilt ár er miklu verra en að vita.“

Hér vísar Hanna Birna til brots Gísla Freys Valdórs­sonar, fyrr­verandi aðstoðar­manns síns, á þagnar­skyldu sem markaði upphaf leka­málsins svonefnda. Gísli veitti Haraldi Johannessen, ritstjóra Morgun­blaðsins upplýsingar um hælis­leitendurna Evelyn Glory Joseph og Tony Omos þann 19. nóvember en þann 22. nóvember fundaði Hanna Birna með ritstjóranum í ráðherrabíl sínum. Hvorki Hanna Birna né Haraldur vilja gefa upp hvað fram fór á fundinum. „Ég hef ekkert við þig að tala,“ sagði Haraldur þegar Stundin spurði hann um málið í janúar, en Hanna Birna hefur ekki svarað fyrir­spurn um málið. Hefur hún alltaf haldið því fram að hún hafi ekki vitað af sekt Gísla Freys. Þessu hélt hún til streitu í viðtalinu við Óðin í morgun.

Síður slegin skjaldborg um konur

Hanna Birna telur að konur taki „hremmingum í stjórn­málum“ persónulegar en karlar. „Síðan held ég því miður að það sé þannig – og það er alþjóðleg staðreynd – að það er síður slegin skjald­borg um konurnar heldur en strákana. Það hefur bara að gera með þessa menningu. Það er einhver svona hálfgerð vígvallar­menning í stjórn­málum,“ sagði hún.

Aðspurð hvað tæki við á næsta þingi sagðist hún ætla að „mæta af fullri gleði og mjög mikilli ánægju“. Hún sagðist síðast hafa farið inn í miklum rólegheitum. Ég ákvað bara að gefa mér tíma til að anda þessu að mér aftur.“ Nú tæki hins vegar öflugri þátttaka við. Hún sækist eftir því að verða áfram vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins og býst við því að fara með formennsku í þingnefnd á Alþingi. 

Neitaði að svara þingnefnd

Eftir að Umboðs­maður Alþingis skilaði þinginu áliti um afskipti Hönnu Birnu af störfum Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­verandi lögreglu­stjóra á höfuð­borgar­svæðinu, gerði stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd tvær tilraunir til að fá Hönnu Birnu fyrir nefndina til að svara spurningum um lekamálið og framgöngu sína gagnvart þingheimi. Hanna Birna afþakkaði fundar­boðið.

Um svipað leyti var greint frá því í fjöl­miðlum að í ráðherratíð Hönnu Birnu hefði innan­ríkis­ráðuneytið í greitt markaðs­stofunni Argus ehf. 2,4 milljónir króna vegna ráðgjafar í tengslum við lekamálið. Hjálpaði fyrir­tækið ráðherranum að bæta ímynd sína í fjöl­miðlum. Lögfræði­ráðgjöfin sem fyrr­verandi ráðherra fékk var einnig kostuð af skatt­greiðendum, en lögmanns­stofan LEX fékk rúmlega eina milljón króna fyrir þjónustu sína. Alls nam beinn kostnaður ráðuneytisins vegna aðkeyptrar ráðgjafar vegna leka­málsins tæpum 3,5 milljónum króna.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár