Rangfærslur í fréttatilkynningu ASÍ – Þingkona segir einhverja hafa „séð hag sinn í að dreifa röngum fréttum“

Trygginga­stofnun fylgdi ekki gildandi lögum heldur „vilja löggjafans“ við útgreiðslu elli­lífeyris í janúar og febrúar.

Alþýðu­sambandið sendi út ranga frétta­tilkynningu í gær þar sem fullyrt var að fjöldi lífeyrisþega myndi þurfa að endur­greiða Trygginga­stofnun umtals­verðar fjárhæðir vegna mistaka sem urðu við breytingar á almanna­trygginga­lögum síðasta haust. Eins og áður hefur komið fram ollu mistökin því að samkvæmt laga­bókstafnum hefðu tekjur úr lífeyris­sjóðum ekki átt að gilda til skerðingar á elli­lífeyri eins og stefnt var að. Í janúar og febrúar fór Trygginga­stofnun eftir vilja löggjafans en ekki laga­bókstafnum, en rétt framkvæmd laganna hefði kostað hið opinbera um 5 milljarða króna. Mistökin voru leiðrétt með aftur­virkri laga­setningu í gærkvöldi. 

Frétta­tilkynning Alþýðu­sambandsins, sem vakti talsverða í gær og rataði í frétt á RÚV, byggði á þeirri forsendu að Trygginga­stofnun hefði fylgt lögum við útgreiðslu elli­lífeyris í janúar og febrúar. „Fjöldi lífeyrisþega mun nú þurfa að endur­greiða Trygginga­stofnun umtals­verðar fjárhæðir. Málið hefur verið afgreitt úr velferðar­nefnd þingsins með miklu flýti án þess að nægilegt tækifæri hafi gefist til umræðu og umsagna,“ sagði í tilkynningunni sem upphaf­lega birtist á vef ASÍ undir yfir­skriftinni „Lífeyris­þegar borga fyrir mistök Alþingis“. 

Stundin sendi Gylfa Arnbjörns­syni, forseta ASÍ, tölvupóst um hádegis­leytið í gær og benti á að tilkynningin væri á skjön við upplýsingar sem fram hefðu komið á Alþingi. Spurt var hvort raunin væri virkilega sú að elli­lífeyris­þegar þyrftu að endur­greiða Trygginga­stofnun umtals­verðar fjárhæðir. Tölvu­póstinum var ekki svarað og enn hefur frétta­tilkynning ASÍ ekki verið leiðrétt. Nichole Leigh Mosty, formaður velferðar­nefndar Alþingis, fullyrti í umræðum á þinginu í gærkvöldi að „einhverjir hafi séð hag sinn í að dreifa röngum fréttum um meintar endur­greiðslur“. Þegar hún var spurð nánar út í ummæli sín sagðist hún vona að umræddir aðilar hefðu gert mistök.

Frétta­tilkynning ASÍ stóð óbreytt í allan gærdag og hvorki velferðar­ráðuneytið né Trygginga­stofnun gerðu athuga­semdir við hana opinber­lega fyrr en í morgun. „Ljóst er að mistökin munu ekki leiða til þess að lífeyris­þegar þurfi að greiða til baka til TR, eins og ranglega hefur verið haldið fram í fjöl­miðlum,“ segir í tilkynningu sem birtist á vef Trygginga­stofnunar í dag. Velferðar­ráðuneytið tekur í sama streng: „Leið­rétting Alþingis á mistökum sem urðu þegar breytingar voru gerðar á lögum um almanna­trygginga 25. október sl. munu ekki hafa neinar afleiðingar í för með sér fyrir lífeyrisþega, líkt og ranglega er haldið fram í yfir­lýsingu sem ASÍ sendi frá sér í gær. Engar ofgreiðslur hafa átt sér stað og engan þarf að krefja um endur­greiðslur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár