Telja stórframkvæmdir ekki rúmast innan þjóðgarða

Nýjar virkjanir falla illa eða alls ekki að markmiðum hálendis­þjóðgarðs. Stór­framkvæmdir þjóna ekki verndar­markmiðum, yrðu „stórslys“ og myndu ganga að þjóðgarðs­hugtakinu dauðu.

Skrokkölduvirkjun er fyrirhuguð á Sprengisandsleið milli Hofsjökuls og Vatnajökuls. Það svæði er innan marka fyrirhugaðs hálendisþjóðgarðs.
Skrokköldu­virkjun er fyr­ir­huguð á Sprengisands­leið milli Hofs­jök­uls og Vatna­jök­uls. Það svæði er innan marka fyr­ir­hug­aðs hálend­is­þjóð­garðs. Mynd: Ingibjörg Eiríksdóttir

Hálendis­þjóðgarður yrði mikið framfara­skref fyrir land og þjóð. Ekki er hins vegar sama hvernig slíkur garður er skipulagður eða hvernig honum er stjórnað. „Nýjar stór­framkvæmdir rúmast ekki innan þjóðgarða enda þjóna þær ekki verndar­markmiðum.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Land­verndar um drög að frumvarpi umhverfis- og auðlinda­ráðherra um hálendis­þjóðgarð. Yfir 20 umsagnir hafa nú verið birtar í samráðs­gátt stjórn­valda.

Stefnt er að því að leggja frum­varpið fram í febrúar á sama tíma og þings­ályktunar­tillaga um vernd og nýtingu landsvæða, svokölluð ramma­áætlun, verður lögð fram. Tillagan er óbreytt frá því hún var fyrst lögð fram árið 2016 og samkvæmt henni er t.d. Skrokköldu­virkjun í nýtingar­flokki, virkjun sem Lands­virkjun hefur áhuga á að reisa og yrði innan marka hálendis­þjóðgarðs. Þetta er meðal þess sem helst gagnrýnt er í umsögnum um frumvarps­drögin.

„Nauðsynlegt er að fylgja alþjóð­legum viðmiðum um þjóðgarða þar sem vernd náttúru- og menningar­minja, aðgengi almennings og hefð­bundin sjálfbær nýting er í fyrirrúmi,“ bendir Landvernd á. Það er von samtak­anna að „hægt verði að stofna þjóðgarð sem stendur undir nafni á hálendi Íslands á næsta ári þannig að verð­mætunum sem í honum felast verði borgið okkur öllum og framtíðar­kynslóðum til heilla“.

Snorri Baldursson, líffræðingur og fyrr­verandi formaður Land­verndar, segir í sinni umsögn um frum­varpið að það að opna á möguleika á nýjar virkjanir inni í þjóðgarði gangi ekki upp. „Ágengar stór­framkvæmdir geta ekki og mega ekki fara saman við skilgreiningu á þjóðgarði.“

Hann segir að það yrði „stórslys“ í sínum huga ef ráðist yrði í virkjanir í náttúru þjóðgarðs. „Slíkt inngrip[...] mundi ganga af þjóðgarðs­hugtakinu dauðu og kasta skugga á og niður­lægja aðra þjóðgarða landsins sem erfitt væri að sjá fyrir afleiðingar af. Hvað vilja menn þá fara að gera í Þjóð­garðinum Snæfells­jökli eða Vatna­jökuls­þjóðgarði sem er vottaður Heimsminja­staður?“

Ungir umhverfis­sinnar segjast í sinni umsögn telja mikilvægt að til að halda í verndun þeirra virkjana­kosta sem ramma­áætlun hefur sett í verndar­flokk sé mikilvægt að „hrófla ekki við því lýðræðis­lega verkfæri sem ramma­áætlun er“. Benda þeir á að fyrir­hugaðar virkjanir verði innan þjóðgarðs­marka þegar gert verður umhverfismat og telja þeir að það eiga að vega þungt. „Við óskum eftir því að betur sé skilgreint hvað það merkir að tekið skuli til hliðsjónar hvort um raskað svæði sé að ræða.“

Ferðamála­stofa fagnar í sinni umsögn áformaðri stofnun hálendis­þjóðgarðs og bendir á að kannanir sýni að íslensk náttúra sé helsta ástæða þess að ferðamenn velji að koma til Íslands.

Í umsögn Umhverfis­stofnunar er bent á að samkvæmt lögum um náttúru­vernd eru allar athafnir og framkvæmdir sem hafa varanleg áhrif á náttúru svæðisins bannaðar í þjóð­görðum nema að þær séu nauðsynlegar til að markmið frið­lýsingar náist. Gera megi ráð fyrir því að virkjanir í nýtingar­flokki ramma­áætlunar sem heimilar verða innan garðsins hafi varanleg áhrif. Stofnunin bendir hins vegar á að mat á umhverfis­áhrifum framkvæmd­anna hefur ekki farið fram og því sé ekki unnt að taka afstöðu til þess á þessu stigi hvert umfang röskunar verður.

Ferða­félagið Útivist fjallar einnig um nýjar virkjanir innan þjóðgarðs og segir í umsögn sinni að deila megi um hvort slíkt sé eðlilegt. „Mannvirki á borð við virkjanir fellur illa að markmiðum þjóð­garðsins. Hér er því slegið af markmiðum um verndun náttúru til að koma á móts við þau sjónarmið að þörf sé á að nýta þá möguleika sem fyrir hendi eru til orku­öflunar á hálendinu og ramma­áætlun um virkjana­kosti býður upp á.“

Í umsögninni kemur fram að í frum­varpinu séu tilteknar takmarkanir á framkvæmdum til mótvægis, annars vegar að haft sé til hliðsjónar við mat á virkjana­kostum í biðflokki að um er að ræða virkjana­kost innan þjóðgarðs. Hins vegar að litið sé til þess hvort um raskað svæði sé að ræða. „Mjög mikilvægt er að þessi ákvæði til mótvægis séu til staðar í lögunum og þau séu virt.“

Leggur til þrjár leiðir

Stjórn Land­verndar telur að ekki skuli heimila stór­framkvæmdir eins og orku­vinnslu innan þjóðgarðs á hálendi Íslands, enda yrði það ekki í samræmi við alþjóðleg viðmið (skilgreiningu IUCN) á þjóð­görðum og samþykkta ályktun Alþjóða náttúru­verndar­samtakanna (IUCN) eða íslensk náttúruverndarlög.

Líffræðingurinn Snorri Baldursson, fyrr­verandi formaður samtak­anna, leggur í umsögn sinni til þrjár leiðir til þess að leysa úr mögulegum árekstrum milli ramma­áætlunar og hálendis­þjóðgarðs. Bestu lausnina segir hann vera að Alþingi taki af skarið og falli frá öllum frekari virkjunum á hálendinu, þar með talið Skrokk­öldu en „haldi ótrauð áfram vinnu við alvöru hálendis­þjóðgarð“.

Annar möguleiki væri að stofna þjóð­garðinn í áföngum. „[Fyrst verði innan hans aðeins þau svæði sem örugglega eru og verða laus við virkjun, en síðan bætt við þjóð­garðinn eftir því sem Ramma­áætlun vindur fram. Möguleg virkjana­svæði, skv. ramma­áætlun mætti þá vernda sem verndar­svæði með sjálf­bærri nýtingu náttúru­auðlinda eða álíka,“ stingur Snorri upp á.

Þriðja tillaga hans er sú að allt hálendið, fyrir utan núverandi verndar­svæði, verði í fyrsta áfanga friðlýst sem verndar­svæði með sjálf­bærri nýtingu orku­auðlinda.

Landvernd bendir enn fremur á að vandinn við núverandi virkjanir innan þjóð­garðsins sé ekki auðleystur. Samtökin telja að besta leiðin sé að skilgreina þröng mörk utan um mannvirki og lón virkjana og gera þau að jaðarsvæðum þjóð­garðsins sem lúta stjórn hans.

Frestur til að skila inn umsögnum vegna draga að frumvarpi ti laga um hálendis­þjóðgarð er til og með 20. janúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár