Jeff Sessions yfirheyrður - bein útsending

Jeff Sessions dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna er nú yfir­heyrður frammi fyrir þingnefnd Banda­ríkjaþings um tengsl hans við Rússa og fleira.

Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, mælti með því að yfirmaður FBI yrði rekinn. Sessions hefur sjálfur verið til rannsóknar hjá FBI.
Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, mælti með því að yfir­maður FBI yrði rek­inn. Sessions hefur sjálfur verið til rann­sóknar hjá FBI. Mynd: EPA

Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, er nú yfir­heyrður frammi fyrir leyni­þjónustu­nefnd Banda­ríkjaþings, þar sem meðal annars verður fjallað um tengsl hans við Rússa í aðdrag­anda forseta­kosninganna 8. nóvember í fyrra.

James Comey, fyrr­verandi forstjóri FBI, hefur þegar komið fyrir nefndina, en Donald Trump Bandaríkja­forseti rak Comey, meðal annars vegna rökstuðnings frá dómsmála­ráðuneyti Sessions.

Yfirheyrslan er nýhafin, þegar þetta er skrifað, og er hægt að fylgjast með henni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár