Inneignir fyrir 11,2 milljarða útistandandi

Í lok júní áttu viðskipta­vinir Icelandair alls 11,2 milljarða í ónýttum inneignar­nótum. Á sama tíma nam verðmæti bókaðra flugmiða hjá félaginu 21,3 milljörðum.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group.
Bogi Nils Bogason for­stjóri Icelandair Group. Mynd: Skjáskot/RÚV

Í lok júní­mánaðar nám upphæð ferða­inneignar sem einstaklingar eiga inni hjá flug­félaginu Icelandair alls rúmum 11,2 milljörðum króna. Á sama tíma nam virði bókaðra flugmiða hjá flug­félaginu rúmum 21,3 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í árshluta­uppgjöri Icelandair Group, sem birt var í gærkvöldi. Sú háa upphæð sem viðskipta­vinir félagsins eiga í inneignar­nótum þarf ekki að koma á óvart, enda gaf flug­félagið út inneignar­nótur fyrir um 12 milljarða króna á síðasta ári, vegna flugferða sem ekki voru farnar.

Icelandair, rétt eins og önnur flugfélög, reyndi eftir fremsta megni að endur­greiða viðskipta­vinum fyrir flug sem féllu niður vegna heims­faraldursins með ferða­inneignum, til þess að hefta útstreymi lausafjár á þeim miklu óvissu­tímum sem kórónu­veiru­faraldurinn hafði í för með sér er hann skall á. Inneignar­nótur hjá Icelandair gilda almennt í þrjú ár.

Fyrir­tækið, sem tapaði 6,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og alls 10,9 milljörðum á fyrri helmingi ársins, var jákvætt í yfir­lýsingum sínum til markaðarins í gær.

Flugáætlun 2022 80 prósent af flugáætlun ársins 2019

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group sagði í tilkynningu í gær að viðspyrna væri hafin hjá félaginu og að mikil aukning bókana á seinni hluta ársins hefði jákvæð áhrif á lausafjár­stöðu félagsins, en handbært fé frá rekstri nam 8,2 milljörðum króna í lok júní.

Fram kom hjá Boga Nils að Icelandair vonaðist eftir því að flytja alls 400 þúsund ferðamenn til Íslands á árinu og að metnaðar­full flug­áætlun hefði verið sett upp fyrir haustið og veturinn.

Hann viðurkenndi þó að óvissa vegna kórónu­veiru­faraldursins væri enn allnokkur. Í lok júní­mánaðar höfðu 75 þúsund ferðamenn komið til landsins, samkvæmt tölum frá Ferðamála­stofu.

Samkvæmt fjárfesta­kynningu Icelandair, sem farið var yfir á fundi í morgun, er félagið nú með flug­áætlun fyrir árið 2022 sem er um 80 prósent af flug­áætlun ársins 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár