Icelandair tapaði 6,9 milljörðum á öðrum ársfjórðungi

Jákvæðni svífur yfir vötnum hjá Icelandair Group þrátt fyrir að félagið hafi tapað 10,9 milljörðum á fyrstu 6 mánuðum ársins. Flug­félagið sér fyrir sér að flytja 400 þúsund ferðamenn til landsins á árinu.

Icelandair vonast til þess að flytja 400 þúsund ferða menn til landsins á árinu.
Icelandair von­ast til þess að flytja 400 þús­und ferða menn til lands­ins á árinu. Mynd: Icelandair

Á þremur mánuðum, frá því í byrjun apríl og fram í lok júní, nam tap af rekstri Icelandair Group 6,9 milljörðum króna. Á sama tíma­skeiði í fyrra nam tapið hjá flug­félaginu 11,4 milljörðum króna. Þetta kemur fram í uppgjörs­tilkynningu flug­félagsins, sem barst eftir lokun Kaup­hallarinnar í dag. Tap félagsins á fyrsta ársfjórðungi nam 4 milljörðum króna og er tapið á fyrri helmingi ársins 2021 því samtals 10,9 milljarðar.

Þrátt fyrir taprekstur annars ársfjórðungs gætir jákvæðni í frétta­tilkynningu flug­félagsins, en lausafjár­staða félagsins styrktist verulega vegna mikillar aukningar í bókunum á flugi á seinni helmingi ársins.

„Handbært fé frá rekstri nam 8,2 milljörðum króna (65,0 milljónum dala) saman­borið við neikvætt handbært fé frá rekstri að fjárhæð 12,2 milljarðar króna (96,8 milljónir dala) á sama fjórðungi í fyrra sem er aukning um 20,4 milljarða króna (161,8 milljóna dala). Lausafjár­staða félagsins í lok fjórðungsins nam 45,6 milljörðum króna (362,5 milljónum dala), þar af handbært fé og lausa­fjársjóðir að fjárhæð 24,0 milljarðar króna (190,5 milljónir dala), sem er aukning um 10,1 milljarða króna (80,6 milljónir dala) í fjórðungnum,“ segir í tilkynningu frá flug­félaginu.

Kostnaðarsamt að auka umsvif

Félagið jók umsvif sín mikið á öðrum ársfjórðungi og fór fjöldi brottfara á viku úr 28 í apríl í 160 í júní. „Talsverður kostnaður felst í því að hefja flug á ný og er því framlegð af fyrstu flugum yfirleitt minni en þegar flug­áætlun hefur gengið í ákveðinn tíma. Sæta­nýting jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á fjórðunginn þrátt fyrir mikla aukningu á tíðni fluga. Þá féll töluverður rekstrar­kostnaður til vegna undir­búnings félagsins fyrir metnaðar­fulla flug­áætlun til að mæta aukinni eftir­spurn á seinni hluta þessa árs. Meðal annars er um að ræða kostnað við að taka vélar aftur í rekstur eftir mánuði í geymslu, innleiðingu þriggja nýrra Boeing 737 MAX véla inn í flota félagsins, þjálfun starfs­fólks og markaðsmál. Þessi fjár­festing mun skila sér í auknum tekjum síðar á árinu,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Í tilkynningu félagsins segir að flug­framboð Icelandair í júlí verði um 43 prósent af framboði félagsins í júlí 2019 á meðan framboð á öðrum ársfjórðungi hafi verið einungis 15 prósent af framboði á sama tíma árið 2019.

„Sæta­nýting í júlí er áætluð um 70% saman­borið við 47% í öðrum ársfjórðungi 2021. Miðað við núverandi horfur er gert ráð fyrir að flug­framboð muni aukast enn frekar í ágúst og sæta­nýting sömuleiðis. Loka­niðurstaða ræðst þó af þeim áhrifum sem þróun faraldursins og ferða­takmarkanir hafa á eftir­spurn,“ segir í tilkynningu flug­félagsins.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group segir að viðspyrnan sé hafin, en að aukning í umsvifum sem og áfram­haldandi áhrif af COVID-19 faraldrinum hafi haft veruleg áhrif á rekstrar­niðurstöðu annars ársfjórðungs. Á móti komi hafi mikil aukning bókana fyrir flug á seinni hluta ársins hafði jákvæð áhrif á handbært fé frá rekstri.

„Allt frá því að heims­faraldurinn skall á, höfum við lagt mikla áherslu á að viðhalda innviðum og sveigjanleika til að geta brugðist hratt við örum breytingum á mörkuðum okkar og aukið flugið um leið og tækifæri gæfist. Þetta erum við að gera nú og var flug­framboð okkar í öðrum ársfjórðungi fimmfalt meira en á sama tíma í fyrra og voru farþegar í milli­landaflugi fjórfalt fleiri. Þá hefur innan­landsflugið gengið vel að undan­förnu og var framboðið í öðrum ársfjórðungi um 85% af framboði okkar á sama tíma 2019,“ er haft eftir Boga Nils í tilkynningu.

400 þúsund ferðamenn

Hann segir flug­félagið gera ráð fyrir því að flytja um 400 þúsund ferðamenn til Íslands á þessu ári og að áætlað sé að þessir farþega­flutningar skapi um 80 milljarða króna útflutnings­tekjur.

„Þá er ánægjulegt að margir fyrr­verandi samstarfs­félagar hafi komið aftur til starfa á undan­förnum vikum vegna aukinna umsvifa. Við gerum ráð fyrir að meðal­fjöldi heilsárs­starfa verði um 2.100 á þessu ári og áætlum að bein efnahagsleg áhrif félagsins í formi launa, launa­tengdra gjalda og lífeyris­greiðslna verði um 26 milljarðar króna á árinu. Þá eru ótalin óbein efnahagsleg áhrif, ekki einungis á ferða­þjónustu í landinu heldur hagkerfið í heild,“ er haft eftir Boga Nils.

Vonast eftir að Bandaríkin opni sig

Bogi Nils segir að Icelandair finni fyrir „miklum áhuga á Íslandi sem áfanga­stað“ og að félagið hafi „sett fram metnaðar­fulla flug­áætlun á seinni helmingi ársins.“

„Við höldum þó áfram að stýra leiða­kerfinu eftir því hvernig faraldurinn og ferða­takmarkanir þróast en ákveðinnar óvissu gætir enn vegna stöðu faraldursins og hertra ferða­takmarkana á landa­mærum Íslands. Við bindum vonir við að Banda­ríkin muni opna fyrir ferðalög frá Evrópu á þriðja ársfjórðungi. Þá er uppgangur í frakt­flutningum og eftir­spurn eftir leigu­flugi einnig að aukast á seinni helmingi ársins sem styður við tekju­öflun og sjálf­bæran vöxt félagsins til framtíðar,“ er haft eftir Boga Nils.

Icelandair Group heldur rafrænan hluthafa­fund á morgun kl. 16 þar sem teknar verða fyrir tillögur um hlutafjár­aukningu í tengslum við aðkomu bandaríska fjár­festingar­sjóðsins Bain Capital um kaup á nýju hlutafé í félaginu, en alls hefur Bain Capital skuld­bundið sig til að kaupa 16,6 prósenta hlut í félaginu á 8,1 milljarða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár