Segir hörð viðbrögð þingmanna við lögbroti sínu grafa undan dómstólum

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra segist ekki bera „nokkra einustu ábyrgð“ á vantrausti til dómstóla og til ráðherra sem veitingar­valds­hafa við dómstólana.

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra telur að þingmenn sem lýsa því yfir að ólögleg embættis­færsla hennar við skipun Landsréttar­dómara grafi undan dóms­kerfinu séu sjálfir að grafa undan dómstólum og stofnunum ríkis­valdsins með slíkum málflutningi.

Þetta kom fram í svörum ráðherra við fyrir­spurn Þórhildar Sunnu Ævars­dóttur, þingkonu Pírata, á Alþingi í dag.

Stundin greindi frá því í morgun að Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra hefði gert því skóna, í þingræðu um frumvarp til laga um nýjan Endurupptökudóm í síðustu viku, að málflutningur Helga Hrafns Gunnars­sonar á Alþingi græfi undan dómstólum landsins.

Þórhildur gerði þessi orð að umtals­efni í óundirbúnum fyrirspurna­tíma í dag og spurði hvað í málflutningi Helga Hrafns græfi undan dómkerfinu. 

Sigríður svaraði á þessa leið:

„Í þessum tilvitnuðu orðum háttvirts þingmanns er ég að vísa til ummæla sem hátt­virtir þingmenn hafa viðhaft hér, full­yrðingar um að það hafi verið grafið undan dómstólunum með framkvæmd við skipun Lands­réttar, og þar með vil ég beina því til þeirra sem viðlíka orð hafa undir og benda á, beina því aftur til þeirra, vísa slíkum ummælum til föður­húsanna eins og kallað er, og benda á að það veldur nú hver á heldur, og það eru ummæli eins og þessi, meðal annars úr þessum virðulega ræðustól, sem einmitt eru til þess fallin, miklu fremur en margt annað, að grafa undan trausti og trúverðug­leika á stofnunum ríkis­valdsins.“ 

Þá gagnrýndi ráðherra Þórhildi fyrir að hafa ekki verið viðstödd umræðuna um Endurupptökudóm. Þórhildur benti þá á að hún hefði verið fjarstödd í síðustu viku, verið erlendis á vegum þingsins. 

„Hins vegar fer mér að verða betur og betur ljóst í samskiptum mínum, eftir því sem þau verða meiri og lengri, við hæstvirtan dómsmála­ráðherra, að hér er svolítið eins og að ræða við keisarann sem var nakinn en kennir barninu sem bendir á það stöðugt um að hann sé öllum sýnilegur,“ sagði Þórhildur. „Ég spyr hæstvirtan ráðherra: Telur hún sig ekki bera neina ábyrgð á því sem við köllum hér vantraust til dómstóla? Telur hún sig ekki bera neina ábyrgð á því að við treystum ekki hæstvirtum ráðherra ti lað skipa nýtt dómstig? Finnst henni ekki vera nein ástæða til að vinna sér inn traust þessa þings til að skipa í nýtt dómstig?“

Sigríður sagði þá að hún gæti „ekki nokkra einustu ábyrgð borið á hugrenningum háttvirts þingmanns“. Ef Þórhildur treysti ekki dómstólunum væri það ekki við sig að sakast „heldur miklu frekar verður [hún] að leita í sínum eigin ranni fyrir því“. 

Ráðherra sagði að hún vissi „ekki betur en að menn leiti hér til dómstól­anna sýknt og heilagt og að einhverra mati, jafnvel að mati þeirrar sem hér stendur, oft í og tíðum í mjög ríkum mæli“. Þetta sjónarmið, þar sem gefið er í skyn að fólk leiti óþarflega oft til dómstóla, er í takt við skrif sem hafa birst á vefritinu Andríki.is, sem Sigríður ritstýrði ásamt fleirum um árabil. „Dómstólar fá sífellt fleiri „mann­réttindamál“ á sín borð. Ríkið veitir sífellt fleirum „gjafsókn“ – sem þýðir að skatt­greiðendur borga kostnað kverúlantsins af máls­höfðuninni, stefnandinn og lögmaður hans hafa engu að tapa sjálfir en geta fiskað á ríkissjóð eins og þeim hentar – til að reka hin og þessi furðu­málin,“ segir í einnu af færslunum sem birtust á Andríki meðan Sigríður sat í ritstjórninni, en í dag fer hún sem dómsmála­ráðherra með málefni réttar­aðstoðar og gjafsókna samkvæmt forseta­úrskurði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár