Síðustu dagar „bleika hússins“ í Mississippi

Eigandi einu heilsu­gæslunnar í Missis­sippi sem veitir þungunar­rofs­þjónustu ætlar að halda ótrauð áfram, í öðru ríki ef þarf, eftir að Hæstiréttur Banda­ríkjanna felldi rétt til þungunar­rofs úr gildi.

„Bleika húsið“, heilsugæsla sem þjónustar konur í Mississippi er eina heilsugæslan í ríkinu sem veitir þungunarrofsþjónustu. Henni verður að öllum líkindum lokað innan nokkurra daga.
„Bleika húsið“, heilsu­gæsla sem þjón­ustar konur í Miss­issippi er eina heilsu­gæslan í rík­inu sem veitir þung­un­ar­rofs­þjón­ustu. Henni verður að öllum lík­indum lokað innan nokk­urra daga. Mynd: Twitter

Síðustu dagar heilsu­gæslu­stöðvarinnar í Jackson, Missis­sippi, sem veitt hefur þungunar­rofs­þjónustu, hafa verið tilfinninga­þrungnir eftir að Hæstiréttur Banda­ríkjanna felldi rétt til þungunar­rofs úr gildi.

Síðastliðinn föstudag felldi Hæstiréttur Banda­ríkjanna úr gildi niður­stöðu í dómsmáli frá 1973, Roe gegn Wade, sem tryggði rétt lands­manna til þungunar­rofs. Við ógildinguna hófst samstundis innleiðing laga í þrettán ríkjum Banda­ríkjanna sem banna þungunarrof. Missis­sippi er eitt þeirra.

Á laugardags­morgun, innan við sólar­hring eftir að stjórnar­skrár­varinn réttur kvenna til þungunar­rofs var felldur úr gildi, kom ung kona að Jackson-heilsu­gæslunni í Missis­sippi, einu heilsu­gæslunni í ríkinu sem veitir þungunar­rofs­þjónustu. Unga konan var álút og reyndi að láta lítið fyrir sér fara. Með henni í för var eldri kona og ungur maður, stein­runninn á svip, með byssu í slíðri á mjöðminni. Unga konan virtist skelfingu lostin.

Blaða­maður New York Times fylgdist með atburðar­rásinni fyrir framan „bleika húsið“, eins og Jackson-heilsu­gæslan, sem þjónustar aðeins konur, er jafnan kölluð.

Á bíla­stæðinu fyrir utan heilsu­gæsluna mátti annars vegar finna andstæðinga þungunar­rofs og hins vegar sjálfboða­liða sem höfðu það hlutverk að koma konum sem leituðu til heilsu­gæslunnar inn á heilu og höldnu og án afskipta. Hávær rokk­tónlist var til að mynda spiluð í þeirri von að hrekja burt mótmælendur.

Prestur, Doug Lane að nafni, nálgaðist eldri konuna og hvatti hana til að sannfæra ungu konuna að hætta við þungunar­rofið. „Ég vildi að hún eignaðist barnið,“ sagði konan, skjálf­andi röddu.

Ljóst er að allt þetta – prédikunin, ótta­slegnir skjólstæðingar, rokk­tónlistin og blóðug mótmæla­skilti – verða brátt á bak og burt. Bann við þungunar­rofi mun taka gildi í ríkinu innan nokkurra daga. En þangað til mun heilsu­gæslan í bleika húsinu sinna eins mörgum konum og mögulegt er, þar til hún verður skylduð til að skella í lás.

Þungamiðjan í þungunarrofsumræðunni

Með meirihluta­áliti Hæstaréttar Banda­ríkjanna sem samþykkt var fyrir helgi færðist réttur til þungunar­rofs í hendur einstakra ríkja. Missis­sippi er eitt þrettán ríkja þar sem bannið tekur þegar gildi, með milli­göngu ríkis­saksóknara. Bannið hefur þegar tekið gildi í níu ríkjum.

Missis­sippi hefur verið áberandi í umræðunni um þungunarrof í Banda­ríkjunum. Svokölluð Missis­sippi- löggjöf, sem bannar þung­un­ar­rof eftir fimmtán vikna með­göngu nema að brýn lækn­is­fræði­leg þörf sé á, var í hugum and­stæð­inga þung­un­ar­rofs „stóra mál­ið“ sem átti að draga tenn­urnar úr Roe gegn Wade.

Með úrskurði hæstaréttar fyrir helgi sem snýr að Missis­sippi-löggjöfinni, Dobbs gegn Jackson Women‘s Health Organization, var stjórnar­skrár­varinn réttur kvenna til þungunar­rofs afnuminn og dómi í máli Roe gegn Wade frá 1973 hnekkt.

Ríkissaksóknari í Mississippi hefur ekki enn staðfest úrskurð hæstaréttar

Í Missis­sippi er einnig í gildi sérstök löggjöf frá 2007 sem kveður á um bann við þungunar­rofi um leið og Roe gegn Wade fellur úr gildi. Það hefur nú raungerst og kemur það í hlut Lynn Flitch ríkis­saksóknara að staðfesta niður­stöðu hæstaréttar.

Hún hefur enn ekki gert svo en mun eflaust láta verða af því á næstu dögum. Bann við þungunar­rofi mun taka gildi tíu dögum eftir undir­ritunina. Fitch er repúblikani og tók hún ákvörðun hæstaréttar á föstudag fagnandi og sagði hana „sigur, ekki einungis fyrir konur og börn heldur einnig dómstólinn sjálfan“.

Jackson-heilsu­gæslan þjónustar aðeins konur og er eina heilbrigðis­stofnunin í Missis­sippi sem býður upp á þungunar­rofs­þjónustu. „Þungunarrof er okkar fag og það er það sem við ætlum að gera, að tryggja konum aðgengi,“ segir Diane Derzis, eigandi heilsu­gæslu­stöðvarinnar. Sjálf gekkst Derzis undir þungunarrof árið 1973, sama ár og dómur féll í Roe gegn Wade. Ári seinna hóf hún störf á heilsu­gæslu fyrir konur. Í dag er hún 68 ár og hefur sinnt drauma­starfinu í öll þessi ár, að eigin sögn, með því að reka stofnanir sem bjóða upp á þungurnarrof fyrir konur sem á því þurfa að halda.

„Við erum ekki að fara,“ segir Derzis.

Það reynist rétt. Að minnsta kosti þar til ríkis­saksókn­arinn skrifar undir. En Derzis hefur hugsað lengra og skipuleggur nú opnun heilsu­gæslu­stöðvarinnar í Nýju-Mexíkó, um 1.800 kíló­metrum frá Jackson, þar sem löggjöfin er hliðholl þungunar­rofi.

Mun halda áfram að sinna konum frá Mississippi

„Staðreyndin er kannski sú að við verðum ekki hér að eilífu en það þýðir ekki að við munum hætta að þjóna konum frá Missis­sippi, eða hverjum þeim sem þarfnast okkar,“ segir Derzis.

Missis­sippi er meðal fátækustu ríkja Banda­ríkjanna þar sem 19,6 prósent íbúa lifa undir fátæktar­mörkum. Vinna Derzis og sjálfboða­liða á hennar vegum snýr því einnig að tryggja aðgengi þessa hóps að þungunar­rofs­þjónustu.

Á meðan starfsemin heldur áfram á Jacksonöheilsugæslunni má gera ráð fyrir mótmælendum fyrir utan bleika húsið, sem séra Lane segir „særandi“. Það mun ekki stöðva Derzis og sjálfboða­liða á hennar vegum í að tryggja að konur sem óska eftir þungunar­rofs­þjónustu fái slíka, svo lengi sem lögin í Missis­sippi heimila það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár