Ríkin þrettán sem geta bannað þungunarrof strax – verði meirihlutaálitið samþykkt

Réttur til þung­un­ar­rofs verður ekki lengur var­inn í stjórn­ar­skrá lands­ins og fær­ist í hendur ein­stakra ríkja verði það niður­staða Hæstaréttar Banda­ríkjanna að snúa við dómi Roe gegn Wade frá 1973. Við það geta 13 ríki strax bannað þungunarrof.

Mótmæli hafa staðið yfir nær stanslaust við Hæstarétt Bandaríkjanna frá því á mánudag þar sem þess er krafist að réttur kvenna til þungunarrofs verði virtur.
Mótmæli hafa staðið yfir nær stans­laust við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna frá því á mánu­dag þar sem þess er kraf­ist að réttur kvenna til þung­un­ar­rofs verði virtur. Mynd: EPA

Þrettán ríki Banda­ríkjanna munu geta bannað þungunarrof um leið og Hæstiréttur Banda­ríkjanna samþykkir að snúa við dómi Roe gegn Wade frá 1973, dómi þar sem kveðið er á um stjórnar­skrár­varinn rétt kvenna til þungunar­rofs.

Mikil ólga hefur verið í bandarísku samfélagi frá því á mánudag þegar meirihluta­áliti frá Hæstarétti Banda­ríkjanna var lekið fjölmiðla þar sem fram kemur að dómurinn hefur samþykkt drög að meirihluta­áliti þess efnis að taka til umfjöllunar að snúa við dómi Roe gegn Wade og skerða þannig stjórnar­skrár­varinn rétt kvenna til þungunar­rofs. Ólgan nær jafnt til þeirra sem styðja rétt kvenna til þungunar­rofs og þeirra sem eru honum mótfallin.

Þetta er í fyrsta sinn sem gögnum frá Hæstarétti Banda­ríkjanna er lekið í fjölmiðla. John G. Roberts, forseti hæstaréttar, segir lekann „svívirðilegt brot á trausti“ og hefur hann farið fram á að sérstök rannsókn fari fram á því hvernig fjöl­miðillinn Politico komst yfir meirihluta­álitið. Ekki liggur ljóst fyrir hvort að lög hafi verið brotin þegar álitinu var lekið til fjölmiðla.

Umræðan um hvort hæstiréttur taki dóminn frá 1973 til umfjöllunar er hins vegar ekki ný af nálinni. Lengi hefur verið vitað að sá möguleiki sé fyrir hendi. Hið óvænta er hins vegar að meirihluta­álitinu var lekið og kom því bæði þeim sem eru hlynntir rétti kvenna til þungunar­rofs og þeim sem eru honum mótfallnir á óvart.

Verði það niður­staðan að dómnum verði snúið verður réttur til þung­un­ar­rofs ekki lengur var­inn í stjórn­ar­skrá lands­ins og fær­ist í hendur ein­stakra ríkja. Þrettán ríki þar sem repúblikanar hafa verið lengi við stjórnvölinn eru vel undir það búin.

Lagasetning til staðar sem auðveldar bann við þungunarrofi

Ríkisþing þrettán ríkja hafa nú þegar samþykkt sérstaka löggjöf (e. trigger law) sem leiðir til þess að um leið og dómnum verður snúið við tekur bann við þungunar­rofi gildi. Þá má búast við að um 10-12 ríki til viðbótar hefji laga­setningu sem bannar þungunarrof alfarið eða dregur mjög úr rétti kvenna til þungunar­rofs.

En hver eru þessi þrettán ríki sem geta, og vilja ólm, banna þungunarrof um leið og færi gefst?

Ríkin sem um ræðir eru Idaho, Wyoming, Utah, Norður-Dakóta, Suður-Dakóta, Missouri, Oklahoma, Arkansas, Kentucky, Tennessee, Texas, Louisiana og Missis­sippi. Meirihluti ríkjanna er í suður­hluta Banda­ríkjanna.

Í Kentucky, Louisiana, Oklahoma og Suður-Dakóta mun bann við þungunar­rofi taka gildi um leið og dómnum verður snúið við. Í öðrum ríkjum, líkt og Idaho, tekur bannið gildi 30 dögum eftir ákvörðun hæstaréttar.

Í öðrum ríkjum þarf að falast eftir löggildingu hjá ríkis­saksóknara eða ríkis­þingi áður en bannið verður að lögum, sem getur tekið nokkrar vikur.

Bannið nær ekki til tilfella þar sem lífi eða heilsu konu er ógnað, en í mörgum tilfellum eru ekki gerðar undan­tekningar ef kona ákveður að fara í þungunarrof vegna nauðgunar.

Þá eru fimm ríki, til viðbótar við þau þrettán sem geta bannað þungunarrof tiltölu­lega hratt, með löggjöf sem hefur legið í dvala frá því að stjórnar­skrár­varinn réttur kvenna til þungunar­rofs var stað­festur fyrir 51 ári. Löggjöfina verður hægt að endur­vekja, samþykki hæstiréttur að snúa dómnum við.

Þessi ríki eru Arizona, Wisconsin, Michigan, Alabama og Vestur-Virginía. Í tveimur þeirra, Michigan og Wisconsin, eru demó­kratar ríkis­stjórar og hafa lýst yfir opinberum stuðningi við rétt kvenna til þungunar­rofs. Talið er líklegt að bann við þungunar­rofi verði tekið upp að nýju í Vestur-Virginíu. Í Arizona hefur Doug Ducey ríkis­stjóri gefið það út að miðað þungunarrof verði ekki heimilt eftir 15 vikna meðgöngu. Laga­frumvarp sem kveður á um algjört bann við þungunar­rofi, sem var undirbúið 2019, mun að öllum líkindum taka gildi í Alabama verði dómnum snúið við.

Í heildina má búast við að þungunarrof verði bannað eða réttur til þess skertur verulega í 28 ríkjum.

Að minnsta kosti 15 ríki sem hyggjast styðja rétt kvenna til þungunarrofs

Það kveður við annan tón í fimmtán ríkjum þar sem í gildi eru lög sem verja rétt kvenna til þungunar­rofs. Þau ríki eru Kalifornía, Connecticut, Delaware, Hawaii, Illinois, Maine, Maryland, Massachusetts, Nevada, New Jersey, New York, Oregon, Rhode Island, Vermont og Washington. Gavin Newsom, ríkis­stjóri í New York, brást fljótt við eftir að meirihluta­áliti hæstaréttar var lekið og hét því að styrkja rétt kvenna til þungunar­rofs enn frekar.

„Við getum ekki treyst [Hæsta­rétti] til að standa vörð um rétt­inn til þung­un­ar­rofs þannig að við gerum það sjálf,“ segir Newsom í færslu á Twitt­er. Þá fer hann fyrir breytingar­tillögu á stjórnar­skrá Kaliforníu­ríkis þar sem réttur kvenna til að ráða yfir eigin líkama er undir­strikaður.

Ákvörðun Hæstaréttar Banda­ríkjanna mun liggja fyrir í lok júní eða byrjun júlí. Joe Biden Bandaríkja­forseti segir mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir að um drög sé að ræða og því liggi ekki endanlega ljóst fyrir hvort dómnum verði í raun snúið við og réttur kvenna til þungunar­rofs skerturr. Næstu vikur munu því einkennast af vanga­veltum þess efnis hvernig almenningur sér lífið fyrir sér ef dómi í máli Roe gegn Wade verði snúið við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár