„Mesta skerðing á réttindum Bandaríkjamanna í hálfa öld“

Hæstiréttur Banda­ríkjanna hefur samþykkt drög að meirihluta­áliti sem felst í að snúa við dómi sem snýr að stjórnar­skrár­vörðum rétti kvenna til þungunar­rofs. „Mesta skerðing á réttindum Bandaríkja­manna í hálfa öld,“ segja leiðtogar demókrata á þingi.

Mótmælandi með skýr skilaboð við Hæstarétt Bandaríkjanna í dag.
Mót­mæl­andi með skýr skila­boð við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna í dag. Mynd: EPA

Meirihluti dómara við Hæstarétt Banda­ríkjanna hefur samþykkt að taka til umfjöllunar að snúa við dómi frá 1973 í máli Roe gegn Wade sem markaði þáttaskil í réttindum kvenna til þungunar­rofs. Niður­staða dómsins var að réttur kvenna til þungunar­rofs eigi stoð í stjórnar­skrá Banda­ríkjanna.

Politico birti frétta­skýringu upp úr drögum meirihluta­álitsins í gærkvöldi og er þetta í fyrsta sinn sem skjali frá Hæstarétti Banda­ríkjanna er lekið í fjölmiðla. Ekki leið á löngu þar til hópur fólks kom saman við Hæstarétt Banda­ríkjanna og krafðist þess að réttur til þungunar­rofs yrði virtur. Mótmælin hafa haldið áfram í dag.

Nancy Pelosi, forseti full­trúar­deildar Banda­ríkjaþings, og Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata­flokksins í öldunga­deildinni, sendu frá sér sameiginlega yfir­lýsingu í gær þar sem þau segja drög hæstaréttar benda til þess að hæstiréttur ætli að samþykkja mestu skerðingu á réttindum Bandaríkja­manna í hálfa öld. „Ekki einungis skerðingu á réttindum kvenna heldur allra Bandaríkja­manna,“ segir í yfir­lýsingunni.

Á sama tíma fagna andstæðingar þungunar­rofs drögum meirihluta­álits hæstaréttar. Susan B. Anthony, ein stærstu samtök Banda­ríkjanna gegn þungunar­rofi, fara þar fremst í flokki. „Ef Roe verður í raun snúið verður það í okkar verka­hring að stuðla að samkomu­lagi sem snýr að mikil­vægustu og sterkustu vernd sem ófædd börn geta notið,“ segir í yfir­lýsingu samtak­anna.

Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana­flokksins í öldunga­deildinni, lítur lekann alvarlegum augum og segir í yfir­lýsingu að um árás á sjálf­stæði Hæstaréttar Banda­ríkjanna sé að ræða. „Þetta er enn eitt dæmið um stigmgögnun herferðar öfga­vinstrisins sem ógnar alríkis­dómurum,“ segir McConnell meðal annars í færslu sinni.

Niðurstaða í máli Roe gegn Wade „svívirðilega röng frá upphafi“

Í 98 síðna drögum meirihluta­álits hæstaréttar sem er skrifað af hæstaréttar­dómaranum Samuel Alito, segir meðal annars að niður­staða dómsins í máli Roe gegn Wade hafi verið „svívirðilega röng frá upphafi“ og að það sé kominn tími til að fylgja stjórnar­skránni þar sem komi fram að það eigi að vera í höndum löggjafar­valdsins að ákveða hvort konur í ríkjum Banda­ríkjanna eigi rétt á því að gangast undir þungunarrof.

Alito er einn af sex íhalds­sömum dómurum hæstaréttar og var skipaður af George W. Bush í janúar 2006. Í álitinu segir Alito einnig að dómurinn hafi „langt því frá leitt til þjóðar­sáttar um þungunarrof, heldur hafi hann ýtt undir eldfima umræðu og dýpkað sundrungu.“ Dómarar við hæstarétt eða talsmenn dómstólsins hafa ekki viljað tjáð sig um skjalið í samtali við Politico.

Tímamóta­dómurinn í máli Roe gegn Wade upp­hófst með mál­sókn konu, sem kölluð var Jane Roe í dóms­skjöl­um, gegn rík­inu. Iðu­lega er vísað til þess dómafor­dæmis sem Roe gegn Wade. Kon­an, sem réttu nafni hét Norma McCor­vey, varð ólétt en vildi rjúfa þung­un­ina. En hún bjó í Texas og á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar var þung­un­ar­rof þar aðeins heim­ilt ef með­gangan ógn­aði lífi kon­unn­ar.

Fimm dómarar skipaðir í forsetatíð repúblikana greiddu þá atkvæði með tveimur frjáls­lyndum dómurum. Tveir dómarar skipaðir af repúblikönum voru andvígir niður­stöðunni og frá því að dómurinn féll, í rúm 50 ár, hefur stór hluti íhalds­manna barist fyrir því að dómnum verði hnekkt.

McCorvey talaði síðar gegn þungunar­rofi en í heimildar­mynd sem kom út árið 2020 segist McCorvey aðeins hafa gert svo þar sem henni var greitt fyrir það. Hún lést árið 2017, 69 ára að aldri.

Þróun eða afturför?

Mörg ríki eru komin á svipaðar slóðir og fyrir hátt í fimmtíu árum þar sem réttindi kvenna að þungunar­rofi hafa verið skert með ýmsum hætti. Síðasta haust tóku gildi lög í Texas sem banna þung­un­ar­rof eftir að óþroskað hjartað byrjar að slá og dæla blóði um fóst­ur­vís­inn, sem ger­ist í sjöttu viku með­göngu, og skiptir þá til að mynda engu hvort að kon­unni hafi verið nauðg­að. Þetta er einnig það snemma á með­göngu að fæstar konur eru búnar að átta sig á þung­un­inni.

Þróunina, eða öllu heldur aftur­förina, hvað varðar réttindi kvenna til að hafa vald yfir eigin líkama má meðal annars rekja til ríkja þar sem repúblikanar hafa verið við stjórn í áraraðir, end­ur­tek­inni skipun íhalds­samra dóm­ara og auknum ítökum hópa, m.a. krist­inna, sem barist hafa gegn þung­un­ar­rofi ára­tugum sam­an.

Í ríkjum þar sem demó­kratar eru við völd, til að mynda í Kaliforníu, Nýju Mexíkó og Michigan hafa ríkis­stjórar brugðist fljótt við og heita því að styrkja rétt kvenna til þungunar­rofs enn frekar, verði meirihluta­álit hæstaréttar samþykkt.

„Við getum ekki treyst [Hæstarétti] til að standa vörð um réttinn til þungunar­rofs þannig að við gerum það sjálf,“ segir Gavin Newsom, ríkis­stjóri Kaliforníu, í færslu á Twitter, þar sem hann heitir því einnig að konur muni áfram njóta verndar í ríkinu.

Drögin endurspegli ekki endanlega niðurstöðu

Joe Biden Bandaríkja­forseti tók það skýrt fram í yfir­lýsingunni sinni vegna málsins að skjalinu sem var lekið eru fyrstu drög og endur­spegli ekki endilega endanlega niður­stöðu hæstaréttar.

„Ef Hæstiréttur ákveður að snúa við dómnum fellur það í hendur kjörinna fulltrúa á öllum stigum að vernda rétt kvenna til að velja. Og það mun falla í hendur kjósenda að kjósa þau sem styðja rétt til þungunar­rofs í nóvember,“ segir Biden í yfir­lýsingu sinni. Þá kveðst hann reiðu­búinn til að vinna að því að lögfesta niður­stöðu Roe gegn Wade.

Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin (WHO) hefur sent frá sér yfir­lýsingu vegna málsins þar sem stofnunin ítrekar að þungunarrof sé heilbrigðis­þjónusta. WHo bendir á að verði þungunar­rofslöggjöf hert muni koma verst niður á jaðar­settum hópum sem munu nýta sér óörugga þungunar­rofs­þjónustu.

13 ríki geta bannað þungunarrof um leið og hæstiréttur snýr við dómnum

Roe gegn Wade hefur verið til umfjöllunar hjá hæstarétti síðan í desember vegna kröfu dómstóla í Missis­sippi um að dómnum verði snúið við. Í drögum meirihluta­álitsins kemur fram að vinnsla þess hófst í febrúar. Í álitinu er fjallað um mál Dobbs gegn Jackson Women's Health Organization, mál sem snýst um löggjöf í Missis­sippi sem leggur til bann við þungunar­rofi eftir 15. viku meðgöngu. Verði álitið samþykkt mun löggjöfin í Missis­sippi taka gildi.

Ef dómnum verður snúið verður réttur til þungunar­rofs ekki lengur varinn í stjórnar­skrá landsins og færist í hendur einstakra ríkja. Búast má við að þungunrrof verði bannað í um helmingi ríkja Banda­ríkjanna. Bannið mun taka gildi í 13 ríkjum um leið og meirihluta­álit hæstaréttar verður samþykkt þar sem ríkisþing þeirra hafa þegar samþykkt löggjöf þess efnis. Það þýðir að um 36 milljónir kvenna muni tafar­laust missa rétt til þungunar­rofs, samkvæmt gögnum frá Planned Parenthood, heilbrigðis­stofnun sem veitir þungunar­rofs­þjónustu.

Forseti hæstaréttar getur skrifað eigin meirihlutaálit

Íhalds­samir dómarar, skipaðir í forsetatíð repúblikana, mynda meirihluta í hæstaréttinum og greiddu fimm atkvæði með meirihluta­álitinu. Ásamt Alito, sem skrifaði álitið, greiddu Clarence Thomas, Neil Gorsuch, Brett Kavanaugh og Amy Coney Barrett með því að taka til umfjöllunar að snúa við dómnum. Þrír dómaranna voru skipaðir í forsetatíð Donalds Trump.

Þrír af níu dómurum hæstaréttar eru skipaðir í forsetatíð demókrata; Stephen G. Breyer, Sonia Sotomayor og Elena Kagan, og greiddu þau öll atkvæði gegn því að snúa við dómnum.

Ekki liggur fyrir hvernig John Roberts, forseti Hæstaréttar Banda­ríkjanna, mun greiða atkvæði á næstu stigum álitsins. Hann gæti einnig skrifað sitt eigið álit. Dómarar geta auk þess skipt um skoðun þar til endanlega atkvæða­greiðsla fer fram. Fordæmi eru fyrir því.

Skjalið sem lak til fjölmiðla er merkt sem „fyrstu drög meirihluta­álits“. Búist er við að endanlegri niður­stöðu hæstaréttar, það er hvort dómnum verði snúið við eða ekki, í lok júní eða byrjun júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár