Lævís lagasmuga þrengir að réttindum kvenna

Allt að því bann við þung­un­ar­rofi í Texas gengur þvert á stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi kvenna en vegna klækja­bragða við laga­gerð­ina hefur enn ekki tek­ist að fá þeim hnekkt.

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur enn ekki tekið Texas-lögin fyrir efnislega.
Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hefur enn ekki tekið Texas-lögin fyrir efn­is­lega. Mynd: EPA

Þær eru nán­ast tómar alla daga, heilsu­gæslu­stöðv­arnar sem veita þung­un­ar­rofs­þjón­ustu í Texas í Banda­ríkj­unum. Þeim hefur reyndar fækkað umtals­vert á síð­ustu árum á sama tíma og sam­tökum sem berj­ast gegn þung­un­ar­rofi hefur vaxið ásmegin. Starfs­stöðvar slíkra sam­taka eru þar nú um tíu sinnum fleiri.

Ástæðan er allt að því bann við þung­un­ar­rofi í rík­inu. Ríkinu sem til má rekja stjórn­ar­skrár­bundin rétt­indi kvenna til þung­un­ar­rofs sem feng­ust stað­fest með dómi Hæsta­réttar árið 1973. Sá tíma­móta­dómur upp­hófst með mál­sókn konu, sem kölluð var Jane Roe í dóms­skjölum, gegn rík­inu. Iðulega er vísað til þess dómafor­dæmis sem Roe gegn Wade. Konan, sem réttu nafni heitir Norma McCorvey, varð ólétt en vildi rjúfa þung­un­ina. En hún bjó í Texas og á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar var þung­un­ar­rof þar aðeins heim­ilt ef með­gangan ógn­aði lífi kon­unnar.

[adspot]

Nú er ríkið komið á svip­aðar slóðir og fyrir hátt í fimm­tíu árum. Um miðja síð­ustu viku tóku gildi lög sem banna þung­un­ar­rof eftir að óþroskað hjartað byrjar að slá og dæla blóði um fóst­ur­vís­inn, sem ger­ist í sjöttu viku með­göngu, og skiptir þá til að mynda engu hvort að kon­unni hafi verið nauðgað. Þetta er einnig það snemma á með­göngu að fæstar konur eru búnar að átta sig á þung­un­inni.

En hvernig gat slík aft­ur­för átt sér stað hvað rétt­indi kvenna til að hafa vald yfir eigin lík­ama varðar?

Aðdrag­and­inn er marglaga og málið á sér meðal ann­ars skýr­ingar í ára­langri stjórn Repúblik­ana í rík­inu, end­ur­tek­inni skipun íhalds­samra dóm­ara og auknum ítökum hópa, m.a. krist­inna, sem barist hafa gegn þung­un­ar­rofi ára­tugum saman. Þessir hópar eru sumir hverjir sam­ofnir stjórn­mál­unum og sam­fé­lög­unum sem þeir starfa í og jafn­vel þótt að sífellt fleiri borgir rík­is­ins séu undir stjórn Demókrata og að álíka margir Texas-búar hafi viljað herða og gera til­slak­anir á lög­gjöf um þung­un­ar­rof, hefur boð­skapur and­stæð­ing­anna náð mik­illi útbreiðslu og seytlað inn í sam­fé­lögin og náð þar góðri fót­festu.

Eftir dóms­málið sem kennt er við Roe finna Texas-búar fyrir þeirri „skyldu sinni að leiða bar­átt­una og vera djarfir,“ hefur New York Times eftir John Seago, fram­kvæmda­stjóra Texas Right to Life, stærstu sam­tök­unum sem berj­ast gegn þung­un­ar­rofi í rík­inu.

Á síð­ustu ára­tugum hafa stuðn­ings­menn rétt­inda kvenna til þung­un­ar­rofs verið kosnir á Banda­ríkja­þing fyrir Texas. Þannig var það allt þar til snemma á þess­ari öld. Þá hafði sú hreyf­ing sem berst gegn þessum rétt­indum kvenna vaxið fiskur um hrygg.

Um miðjan tíunda ára­tug síð­ustu aldar náðu Repúblikanar svo yfir­hönd­inni í Texas og allt frá árinu 2003 hafa þeir verið í meiri­hluta í báðum deildum rík­is­þings­ins og full­trúi þeirra setið í stóli rík­is­stjóra.

Því hefur Texas á síð­ustu árum, líkt og fleiri ríki þar sem Repúblikana­flokk­ur­inn heldur um stjórn­ar­taumana, smám saman dregið úr rétt­indum kvenna til þung­un­ar­rofs með ýmis­konar laga­setn­ingu sem oft bein­ist að þeim mið­stöðvum sem veita þjón­ust­una.

Fyrir tæpum ára­tug gátu konur sem vildu rjúfa með­göngu leitað til 40 heilsu­gæslu­stöðva í Texas. Slíkar stöðvar eru nú aðeins 24 og full­víst er að þeim mun fækka enn­frekar vegna hinna nýju laga. Starfs­fólkið er hrætt, það ótt­ast lög­sóknir, og þjón­ustan hefur því allt frá því lögin tóku gildi í síð­ustu viku, verið mjög tak­mörkuð.

Borgarar geta kært og fengið greitt fyrir

Nýju lögin eru óvenju­leg fyrir margar sakir. Samkvæmt þeim er ekki hægt að kæra konur fyrir að fara í þung­un­ar­rof eftir sjöttu viku með­göng­unnar, heldur þá sem fram­kvæma aðgerð­ina, þ.e.a.s. mið­stöðv­arnar, lækn­ana og annað starfs­fólk. Samkvæmt þeim er einnig hægt að kæra alla þá sem aðstoða kon­una við að fara í aðgerð­ina – jafn­vel leigu­bíl­stjór­ann sem keyrir hana á stað­inn, líkt og fjallað er um í frétta­skýr­ingu New York Times. Lögin eru á þann veg að það eru ekki opin­berir emb­ætt­is­menn sem bera ábyrgð á því að fram­fylgja lög­unum og geta því kært brot á þeim heldur er því valdi velt yfir á ein­stak­linga. Almennir borg­arar geta kært og eiga jafn­framt rétt á 10 þús­undum doll­ara greiðslu og greiðslu máls­kostn­aðar ef þeir vinna málið fyrir dóm­stólum.

Áður en lögin tóku gildi með stað­fest­ingu rík­is­stjór­ans í Texas þann 1. sept­em­ber hafði hópur heilsu­gæslu­stöðva sem fram­kvæma þung­un­ar­rof beðið Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna að taka það fyrir. Í neyð­ar­beiðni þar um sagði að ef frum­varpið yrði að lögum myndi mögu­leikar kvenna til þung­un­ar­rofs þegar í stað verða skertir veru­lega.

Fimm hæsta­rétt­ar­dóm­arar af níu neit­uðu að blanda sér í málið. Nið­ur­staðan, sem ekki fól í sér skoðun á gildi lag­anna heldur aðeins því hvort fram­kvæmd þeirra bæri að stöðva á þessum tíma­punkti, var ljós um sól­ar­hring eftir að lögin gengu í gildi.

Það er margt við með­ferð Hæsta­réttar á mál­inu sem vakið hefur athygli og spurn­ingar. Annað sam­bæri­legt mál er fyrir Hæsta­rétti. Það teng­ist þreng­ingu þung­un­ar­rofslaga í Miss­issippi. Jafnvel hafði verið búist við því að Hæsti­réttur myndi með ein­hverjum hætti fresta gild­is­töku Texas-lag­anna þar til nið­ur­staða kæm­ist í fyrr­nefnda málið.

[adspot]

Á þeim 48 árum sem liðin eru frá því að Hæsti­réttur stað­festi rétt banda­rískra kvenna til þung­un­ar­rofs árið 1973 hefur hann annað slagið höggvið að þeim rétt­indum en meiri­hluti hins vegar aldrei verið fyrir afger­andi breyt­ingum í þá átt að hefta þetta frelsi kvenna til að ráða yfir eigin lík­ama. Sömu sögu má segja um nið­ur­stöður dóms­mála á lægri stigum dóms­kerf­is­ins. Mörg ríki hafa viljað þrengja þung­un­ar­rofslög­gjöf sína en hefur í stóru dráttum ekki orðið ágengt hingað til.

Miss­issippi-lög­gjöfin, sem bannar þung­un­ar­rof eftir fimmtán vikna með­göngu nema að brýn lækn­is­fræði­leg þörf sé á, var í hugum and­stæð­inga þung­un­ar­rofs „stóra málið“ sem átti að draga tenn­urnar úr Roe gegn Wade. Ef Miss­issippi-lögin fá að standa óhreyfð mun það verða til þess að ein­stök ríki geta farið að setja alls konar lagaum­gjörð um þung­un­ar­rof – rétt eins og var að eiga sér stað í Banda­ríkj­unum fyrir árið 1973.

Geta ekkert aðhafst?

Meiri­hluti Hæsta­réttar kvað ekki upp dóm um gildi Texas-lag­anna gagn­vart stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna og seg­ist því ekki hafa verið að snúa við nið­ur­stöðu Roe gegn Wade.

En það hversu lævís lögin eru mun gera það erfitt að fá úr þeim skorið fyrir jafnt Hæsta­rétti sem öðrum dóm­stólum. Í slíkum málum er sam­kvæmt hefð­inni sá sem fram­fylgir lög­unum kærður, s.s. rík­is­stjóri eða ráðu­neyti dóms­mála. En þessir aðilar hafa enga aðkomu þegar kemur að því að fylgja Texas-lög­unum eftir. Það eru almennir borg­arar sem hafa valdið. Geta kært. Eins oft og þeir kjósa. Þetta gerði heilsu­gæslu­stöðv­unum sem fram­kvæma aðgerð­irnar erfitt fyrir að átta sig á gegn hverjum þær ættu að sækja mál sitt til að fá lög­unum hnekkt. Það var eng­inn einn aug­ljós fram­kvæmda­að­ili sem hægt væri að draga til ábyrgðar. „Þessi lög eru sér­stak­lega hönnuð til að engar slíkar lög­sóknir séu mögu­legar, jafn­vel þótt þau gangi aug­ljós­lega gegn fyrri nið­ur­stöðu Hæsta­réttar,“ segir Adam Liptak, blaða­maður New York Times.

Nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­réttar, fimm íhalds­samra dóm­ara, þar af þriggja sem Donald Trump skip­aði, er fram­sett í nokkrum máls­greinum. Hún er á þá leið að dóm­ur­inn getur ekki fjallað um málið því óljóst sé hverja ætti að stöðva, líkt og heilsu­gæslu­stöðv­arnar höfðu farið fram á, við fram­kvæmd lag­anna. Hæsti­réttur stöðvar nefni­lega ekki bein­línis gild­is­töku laga heldur þá sem fram­fylgja þeim.

Rétt­ur­inn tók því ekki afstöðu til þess hvort að lögin stæð­ust stjórn­ar­skrá. Minni­hluti Hæsta­réttar, frjáls­lynd­ari dóm­ar­arnir fjórir, vildu að lögin yrðu „fryst“ þar til málið væri skoðað í kjöl­inn. Þeir bentu í álitum sínum m.a. á að Texas-lögin gengju aug­ljós­lega gegn Roe gegn Wade og að meiri­hluti rétt­ar­ins væri að „grafa höf­uðið í sand­inn“ við að taka það ekki til efn­is­legrar umfjöll­unar. Sigurinn væri lagar­ef­anna sem fundu smug­una.

Kemur ný Roe fram á sjónarsviðið?

En hvað þarf að ger­ast svo að Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna fjalli efn­is­lega um lög sem banna þung­un­ar­rof eftir sjöttu viku með­göngu, lög sem ganga þvert á fyrri nið­ur­stöður um þessi stjórn­ar­skrár­bundnu rétt­indi kvenna?

Í raun má segja að tvær leiðir séu færar. Í fyrsta lagi gæti nið­ur­staða áfrýj­un­ar­dóm­stóls í máli heilsu­gæslu­stöðv­anna gegn dóm­urum í Texas – þeim aðilum sem þær telja að hafi í raun fram­kvæmda­valdið sam­kvæmt lög­unum – farið alla leið upp í Hæsta­rétt.

Önnur leið sem væri fær er sú að ein­hver heilsu­gæslu­stöðv­anna fram­kvæmi þung­un­ar­rof eftir sjöttu eða sjö­undu viku með­göngu sem leiði til þess að ein­hver borg­ari kæri. Með vit­und og vilja kon­unnar sem í hlut á væri svo hægt að fara með slíkt mál fyrir Hæsta­rétt og fá úr því skorið, svart á hvítu, hvort að Texas-lögin stand­ist stjórn­ar­skrá.

For­svars­menn heilsu­gæslu­stöðv­anna eru skilj­an­lega hik­andi við að taka séns­inn. Að eiga mögu­lega yfir höfði sér hund­ruð kæra vegna einnar aðgerðar – sem er ekki úti­lokað miðað við laga­text­ann. En ef ein­hver væri til­búin í þann slag gæti Roe gegn Wade mögu­lega end­ur­tekið sig í ein­hverri mynd. Og miðað við sam­setn­ingu rétt­ar­ins, þar sem íhalds­samir dóm­arar eru orðnir í meiri­hluta, er ekki full­víst að mál­inu ljúki með sigri hinnar nýju Roe.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár