Fá lengri frest til að skila umsögn um bankaskýrslu

Að beiðni Banka­sýslu ríkisins hefur Ríkis­endurskoðun veitt umsagnar­aðilum fram­lengdan frest til 25. október til að skila umsögn um drög að skýrslu embættisins um sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka.

Ríkis­endurskoðun hefur ákveðið að fram­lengja frest umsagnar­aðila til að skila umsögn um drög að skýrslu sinni um sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka. Stofnunin sendi fjármála- og efnahags­ráðuneytinu, Banka­sýslu ríkisins og stjórn hennar drög að skýrslunni um banka­söluna í síðustu viku og kom þá fram að umsagna­frestur þeirra væri til 19. október. Í stuttri tilkynningu á vef Ríkis­endur­skoðunar í dag segir að fresturinn hafi verið fram­lengdur til 25. Október að beiðni Banka­sýslunnar.

Er Ríkis­endurskoðun tilkynnti um miðja síðustu viku um að skýrslu­drögin væru komin til umsagnar­aðila var ítrekað var áréttað að trúnaður ríkir um umsagnar­drögin og að þau teljist vinnu­skjal í skilningi laga. „Um skýrslu­drögin verður því ekki fjallað efnislega í umsagnar­ferlinu, hvorki af hálfu Ríkis­endur­skoðunar né umsagnar­aðila.“

Þegar búið er að fara yfir umsagnir fjármála- og efnahags­ráðuneytisins, Banka­sýslu ríkisins og stjórnar hennar mun Ríkis­endurskoðun afhenda stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd skýrsluna. Í kjölfarið verður skýrslan svo gerð opinber.

Auk þess rann­sakar Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands ýmsa þætti sölunnar, sér­stak­lega við­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­um.

Átti að koma í júní

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ákvað þann 7. apríl 2022 að fela Rík­is­end­ur­skoðun að rann­saka umgjörð og fyr­ir­komu­lag söl­unnar. Stofnunin átti að leggja mat á hvort salan samrýmdist lögum og góðum stjórnsýslu­háttum.

Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­ari rann­sókn­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­sókn­ar­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­enda allra flokka utan eins, Sjálf­stæð­is­flokks, voru á þeirri skoð­un.

Upp­haf­lega átti að skila skýrslunni í júní­mán­uði. Það hefur hins vegar ítrekað dregist og rúmt hálft ár verður frá því að óskað var eftir gerð hennar þar til hún mun birtast almenningi.

Mikil og almenn gagnrýni

Ástæða þess að Ríkis­endurskoðun var falið að skoða þetta mál er mikil gagn­rýni sem kom fram í kjöl­far síð­asta hluta sölu­með­ferðar á hlutum í Íslands­banka, þegar 22,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í bank­anum var seldur til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði á verði sem var undir mark­aðs­verði.

Hópurinn sem fékk að kaupa inni­hélt meðal ann­ars starfs­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­fylli ekki skil­yrði þess að telj­ast fag­fjár­fest­ar, erlenda skamm­tíma­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­tíma­fjár­festar í Íslands­banka, fólk í virkri lög­reglu­rann­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Könnun sem Gallup gerði skömmu eftir að salan var um garð gengin sýnd­i að 87,2 pró­­sent lands­­manna töldu að staðið hafi verið illa að útboði og sölu á hlut rík­­is­ins í Íslands­­­banka, næstum sjö af hverjum tíu töldu að lög hefðu verið brotin og næstum níu af hverjum tíu töldu að óeðli­legir við­skipta­hættir hefðu verið við­hafð­ir.

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun október að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­ar­hluta rík­­is­ins í Íslands­­­banka. Yfir­­lýs­ing for­­manna stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­ari hlutum í Íslands­­­banka að sinni, stendur því enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár