Hildur kallar Samfylkingu, Viðreisn og Pírata „þrjóskubandalag“ og biðlar til Framsóknar

Oddviti Sjálfstæðis­flokks biðlar til Framsóknar­flokksins um að hafa „hugrekkið til að svara kröfu kjósenda um breytt stjórnmál.“ Bandalag Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar hefur kallað eftir viðræðum við Framsókn um myndum 13 manna meirihluta í borginni.

Hildur Björnsdóttir.
Hildur Björns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, segir að úr kjör­kössunum í kosningunum fyrir rúmri viku síðan hafi birst skýrt ákall á breytt stjórnmál. Að hennar mati voru niður­stöðurnar skýrar. Sitjandi meirihluti féll og þeir flokkar sem stóðu utan hans fengu nálægt 60 prósent atkvæða.

Þetta segir Hildur hafa verið ákall kjósenda eftir breytingum og að þeir hafi sömuleiðis verið að hafna klækja­stjórnmálum úr Ráðhúsi Reykja­víkur. „Nákvæmlega sömu klækja­stjórnmálum og þrjósku­bandalag Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata beitir nú við meirihluta­viðræður. Banda­lagið þrás­kallast við að halda völdum sem kjósendur vilja ekki fela þeim lengur – með útilokunum og þvingunum. Það getur tæplega talist upptaktur að farsælu samstarfi fyrir Framsóknar­flokkinn.“

Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu sem Hildur birti á Facebook í dag.

Þórdís Lóa segir andstöðuflokkanna hafa tapað

Tilefni hennar er að tilkynning Þórdísar Lóu Þórhalls­dóttur, oddvita Viðreisnar, um að það sé sé alveg skýrt að flokkur hennar sé í banda­lagi með Pírötum og Sam­fylk­ing­unni hvað varðar meiri­hluta­við­ræður í kjöl­far borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna og að flokk­ur­inn ætli ekki að leita ann­að. Banda­lagið sé aug­ljós kostur þegar mál­efna­á­herslur Við­reisnar í kosninga­baráttunni séu skoð­að­ar, sér­stak­lega hvað varðar skipu­lags-, samgöngu- og lofts­lags­mál. Viðreisn vilji láta reyna á að banda­lagið hefji meirihluta­viðræður við Framsóknar­flokkinn, en slíkur meirihluti hefði tæplega 56 prósent atkvæða á bakvið sig og 13 af 23 borgar­fulltrúum.

Í Morgun­útvarpi Rásar 2 í morgun bætti Þórdís Lóa við að þótt meirihlutinn hafi fallið í síðustu kosningum, mætti segja að minni­hlutinn hafi líka gert það. Stjórnar­flokkarnir hafi tapað tveimur mönnum en stjórnar­andstöðu­flokkarnir þremur. „Það er ekki verið að kjósa þá, þeir falla meira en meirihlutinn og þegar við tökum þetta inn þá hugsa ég; hvað er það sem að borgar­búar voru að kjósa? Þeir voru að kjósa nýtt afl sannarlega en þeir voru að kjósa eftir stórum línum.“

Hildur biðlar til Framsóknar

Án Viðreisnar á Sjálfstæðis­flokkurinn ekki leið í meirihluta en Samfylkingin, Píratar og Sósíalista­flokkurinn hafa allir útilokað samstarf við flokkinn og Vinstri græn hafa gefið það út að þau muni ekki setjast í meirihluta eftir að hafa beðið afhroð í síðustu kosningum. Án Viðreisnar getur Sjálfstæðis­flokkurinn einungis náð ellefu borgar­fulltrúum með samstarfi við Framsókn og Flokk fólksins, sem dugir ekki í meirihluta.

Einar Þorsteinsson, oddviti Fram­sóknar, hefur boðað bakland sitt á fund í kvöld þar sem hann ætlar að ræða það sem virðist vera eini mögu­leikinn í stöðunni sem stendur: meirihluti með Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn.

Hildur er þó ekki sammála því að þetta sé eini mögu­leikinn. Í stöðu­uppfærslu sinni segir hún að það þurfi enginn að undir­gangast þær þvinganir sem banda­lagið bjóði upp á að hennar mati. „Það eru margir mögu­leikar á borðinu við myndun meirihluta. Ekki síst ef flokkarnir velja að svara ákalli kjósenda eftir málefna­legum stjórn­málum og aukinni samvinnu um mikilvæg framfaramál. Sjálfstæðis­flokkurinn er reiðu­búinn til samtals við alla flokka um verkefni næsta kjör­tímabils. Við gengum óbundin til kosninga, boðuðum breytingar og vorum heiðarleg gagnvart okkar kjósendum. Nú reynir á Framsóknar­flokkinn – og auðvitað alla flokka innan borgar­stjórnar - að hafa hugrekkið til að svara kröfu kjósenda um breytt stjórnmál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár