Móðir stúlkunnar sem var látin afklæðast af lögreglu talar: Strákarnir sluppu við líkamsleit

Móðir 16 ára stúlkunnar sem lög­reglan á Akranesi afklæddi í fanga­klefa og fram­kvæmdi lík­ams­leit á segir að drengir sem voru hand­teknir með henni hafði sloppið við að afklæða sig. Þá segir hún lög­regl­una hafa verið marg­saga um ástæður hand­tök­unnar. Lögmaður stúlkunnar hefur stefnt rík­inu vegna máls­ins.

Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Myndin er úr safni og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Facebook

Móðir 16 ára stúlku sem var afklædd í fanga­klefa af lög­regl­unni á Akranesi segir í skrif­legu svari til Stund­ar­innar að lög­reglan hafi verið marg­saga um ástæður þess að dóttir hennar var hand­tekin. Fyrst hafi henni verið tjáð af lög­reglu­manni að stúlkan hefði verið far­þegi í bíl sem var stöðv­aður vegna þess að far­þegar væru of margir. Hún segir einnig að drengirnir sem voru með stúlkunni í bílnum hafi hvorki verið afklæddir né leitað á lík­ama þeirra. Stúlkan var á leið frá Ólafsvík til Reykja­víkur ásamt öðrum far­þegum á svip­uðu reiki, þegar far­þeg­arnir voru allir hand­teknir og færðir á lög­reglu­stöð­ina á Akranesi.

Móðir stúlkunnar segir frá sinni hlið máls­ins í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. Þar segir að dóttir hennar hafi hringt í hana stuttu eftir að hún var færð á lög­reglu­stöð­ina á Akranesi. „Dóttir mín hringdi í mig frá lög­reglu­stöð­innien sagði ekk­ert um hvað hefði gerst, bara að hún væri alveg að fara að gráta, en vildi ekki segja neitt því hún væri inni á lög­reglu­stöð­inni, nema að þau hefðu verið stoppuð vegna þess að bíll­inn sem þau voru á, sem var í eigu vinar hennar (sem var líka með í ferð­inni) væri ekki rétt skráður. Það var ástæðan sem lög­reglan gaf krökk­unum.

Ég stóð í þeirri trú að hún og vin­kona hennar væru bara að bíða eftir strák­unum því það væri verið að afgreiða þetta og sagði henni að vera róleg og tala við mig þegar þau kæmu í bæinn. Ég var alveg róleg yfir þessu og hélt að hún hefði bara verið smeyk vegna þess að það getur hrætt hvern sem er að vera stöðv­aður af lög­reglu,“ segir móðir stúlkunnar.

Of margir farþegar

Vísir greindi fyrst frá mál­inu í gær en Oddgeir Ein­ars­son, lög­maður stúlkunnar, hefur stefnt íslenska rík­inu fyrir hennar hönd vegna hand­tök­unnar.

Í frétt Vísis kom fram að stúlkan sagð­ist hafa verið lokuð inni í fanga­klefa ásamt annarri stúlku. Þar hafi kven­kyns lög­reglu­þjónn fram­kvæmt lík­ams­leit á henni að hinni stúlkunni við­staddri. Stúlkunni var jafn­framt skipað að afklæð­ast og hlýddi hún því. Hún hafi svo verið beðin um að beygja sig svo að lög­reglu­þjónn­inn gæti skoðað kyn­færi hennar og rass. Á þeirri stundu höfðu lög­reglu­menn hvorki haft sam­band við for­eldra stúlkunnar né barna­vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár