Héraðsdómur dæmir ALC í hag í þotudeilunni

Héraðs­dómur komst að þeirri niður­stöðu að ALC beri eingöngu að greiða þær skuldir sem hvíli á þotunni sjálfri en ekki allar skuldir WOW air við Isavia.

Í morgun lagði bandaríska leigu­félagið ALC Isavia í Héraðs­dómi Reykjaness. Héraðs­dómur komst að þeirri niður­stöðu að ALC beri eingöngu að greiða þær skuldir sem hvíli á þotunni sjálfri en ekki allar skuldir WOW air við Isavia, að því er RÚV greinir frá. Félagið getur náð í þotuna strax því kæra til Lands­réttar frestar ekki réttar­áhrifum úrskurðar héraðs­dóms, samkvæmt lögmanni ALC.

Deilan varðar kyrr­setningu vélar ALC, sem var hluti af flugflota WOW air. Í nýju beiðn­inni var þess kraf­ist að ALC fái full umráð þot­unn­ar, enda sé búið að greiða þau gjöld sem tengj­ast þot­unni beint, að því er segir í til­kynn­ingu frá ALC í maí.

Málið hefur farið fram og aftur innan dóms­kerfisins og er þetta í þriðja sinn sem málið fer fyrir héraðsdóm. Héraðs­dómur komst áður að þeirri niður­stöðu að félaginu bæri ekki að greiða allar skuldir WOW, einungis þær skuldir sem hvíldu á þotunni. Isavia skaut úrskurðinum til Lands­réttar og í milli­tíðinni lagði ALC nýja beiðni sem héraðs­dómur vísaði frá, að því er kemur fram í frétt RÚV.

Með kyrr­setn­ing­unni vildi Isa­via tryggja að hægt væri að fá greiðslur upp í tveggja millj­arða skuldir WOW air á lend­ing­ar­gjöld­um, sem söfn­uð­ust upp í aðdrag­anda falls félags­ins. Það hefur nú verið tekið til gjald­þrota­skipta, en Sveinn Andri Sveins­son hrl. og Þor­steinn Ein­ars­son hrl. eru skipta­stjórar búss­ins.

Íslenska ríkið er eig­andi Isa­via, sem rekur flug­vell­ina í land­inu, þar á meðal Kefla­vík­ur­flug­völl.

Fréttin hefur verið uppfærð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár