ALC krefst þess að fá þotuna til umráða

Deilan um kyrr­setningu vélar ALC, sem var hluti af flugflota WOW air, stendur enn.

Air Lease Corporation (ALC) eigandi farþega­þotunnar TF-GPA, sem Isavia kyrrsetti vegna vangoldinna lendingar­gjalda hins gjald­þrota WOW air, hefur lagt fram nýja aðfarar­beiðni hjá Héraðs­dómi Reykjaness.

Í nýju beiðninni er þess krafist að ALC fái full umráð þotunnar, enda sé búið að greiða þau gjöld sem tengjast þotunni beint, að því er segir í tilkynningu frá ALC.

Í forsendum úrskurðar Héraðs­dóms Reykjaness, sem kveðinn var upp 2. maí, segir að Isavia hafi verið „heimilt að hamla för flug­vélarinnar TF-GPA frá Kefla­víkur­flugvelli á meðan gjöld tengd þeirri flugvél eru ógreidd en ekki vegna ógreiddra annarra gjalda WOW air hf.“

„Forsendur úrskurðarins geta því ekki verið mikið skýrari. ALC ákvað að greiða þau gjöld sem tengjast notkun TF-GPA í samræmi við þær og fá í kjölfarið full og ótakmörkuð umráð þotunnar,“ segir í tilkynningu frá ALC.

Eins og fram hefur komið þá ætlar Isavia að kæra fyrri úrskurð Héraðsdóm Reykjaness, meðal annars á þeirri forsendu að ef niður­staðan verður endanlega, þá geti grunnur fyrir gjaldtöku á Kefla­víkur­flugvelli breyst með víðtækum afleiðingum.

Samkvæmt úrskurðinum þá var heimilt að kyrrsetja vélina, en skuld ALC var 87 milljónir á meðan lendingar­gjalda­skuld WOW air var um tveir milljarðar.

„Forsvars­menn ALC telja sig þar með hafa greitt allt það sem Isavia getur mögulega notað sem ástæðu til þess að stöðva brottför vélarinnar. Úrskurður héraðs­dóms hafnaði því að Isavia gæti krafið félagið um að greiða öll vangreidd notenda­gjöld WOW air. Sú afstaða Isavia að þráast við er því í andstöðu við niður­stöðu héraðs­dóms Reykjaness og er að mati ALC bæði óbilgjörn og með öllu ólögmæt. Af þeim sökum eru stjórn­endur ALC tilneyddir að leita aftur til héraðs­dóms til að knýja á um að Isavia fylgi niður­stöðu dómstólsins. Kæra Isavia til Lands­réttar kemur ekki í veg fyrir að ALC fari fram á nýjan úrskurð um afhendingu sem tekur tillit til þess að búið er að greiða allt sem tengist þotunni. Staða málsins er breytt að því leyti. Isavia bar að afhenda farþega­þotuna strax og forsendum úrskurðarins hafði verið mætt. Í samskiptum við forsvars­menn Isavia hafa lögmenn ALC ítrekað reynt að fá leið­beiningar um möguleika sína á að leggja fram tryggingu, með fyrirvara um lögmæti. Því hefur í engu verið svarað. Það er alfarið á ábyrgð og áhættu Isavia að beita stöðvunar­ákvæði loft­ferðalaga og þar af leiðandi þeirra að upplýsa um möguleika ALC til að leysa þotuna úr haldi. Því hefur Isavia í engu sinnt. Bendir ALC á að það tók meira en 4 vikur að fá upplýsingar um gjöld WOW air sundur­liðað eftir farþega­þotum. Þegar þau gögn voru loks afhent, þá voru þau með öllu óunnin. Það kom því í hlut ALC að greina gögnin til að komast að niður­stöðu um þau gjöld sem tengjast notkun TF-GPA beint,“ segir í tilkynningu frá ALC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár