ALC greiði 87 milljónir en ekki tvo milljarða

Samkvæmt dómi Héraðs­dóms Reykjaness mun kyrr­setning Isavia á einni af vélunum sem WOW air hafði á leigu ekki tryggja endur­greiðslu á lendingar­gjöldum.

Héraðs­dómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu fyrir­tækisins ALC um að kyrr­setningu Isavia á Airbus-þotu í eigu þess yrði aflétt. Þotan var kyrrsett eftir fall WOW air, en hún var í flugflota félagsins.

Með kyrr­setningunni vildi Isavia tryggja að hægt væri að fá greiðslur upp í tveggja milljarða skuldir WOW air á lendingar­gjöldum, sem söfnuðust upp í aðdrag­anda falls félagsins.

Það hefur nú verið tekið til gjaldþrota­skipta, en Sveinn Andri Sveinsson hrl. og Þorsteinn Einarsson hrl. eru skipta­stjórar bússins.

Í dómnum er þessu hafnað einnig, og sagt að ALC þurfi ekki að greiða allar þessar skuldir, sem söfnuðust upp hjá WOW air í aðdrag­anda falls félagsins. Félagið þurfi eingöngu að greiða þær skuldir sem tengjast þotunni, sem eru um 87 milljónir en ekki tveir milljarðar.

Í viðtali við RÚV segir Oddur Ástráðsson, lögmaður ALC, að niður­staðan sé merkileg og að félagið muni freista þess að fá kyrr­setningunni aflétt, svo að eigandinn geti fengið hana til sín og nýtt hana til annarra verkefna.

Isavia hefur enn ekkert gefið út um niður­stöðuna, eða hvort henni verði áfrýjað til Lands­réttar.

Íslenska ríkið er eigandi Isavia, sem rekur flug­vellina í landinu, þar á meðal Kefla­víkur­flugvöll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár