Næstum fjórum af hverjum tíu kjósendum Framsóknar líst illa á samstarfið í borginni

Tæplega 40 prósentum þeirra sem segjast hafa kosið Framsókn í Reykjavík í sveitar­stjórnar­kosningunum líst illa á samstarf flokksins við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn, samkvæmt könnun sem Maskína hefur framkvæmt undan­farna daga.

Kjósendur í borginni voru spurðir út í skoðanir sínar á mögulegu samstarfi í borginni, sem nú er orðið að veruleika, í skoðanakönnun Maskínu.
Kjós­endur í borg­inni voru spurðir út í skoð­anir sínar á mögu­legu sam­starfi í borg­inni, sem nú er orðið að veru­leika, í skoð­ana­könnun Maskínu. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt skoðana­könnun sem Maskína hefur framkvæmt undan­farna viku líst fleiri kjósendum Framsóknar­flokksins í Reykjavík vel en illa á samstarf flokksins við Samfylkingu, Viðreisn og Pírata.

Tæplega 40 prósentum kjósenda flokksins líst illa á samstarfið á meðan að einungis 26 prósentum líst vel á það. Rúm 34 prósent segja að þeim lítist hvorki vel né illa á samstarfið, sem nú er orðið að veruleika.

Heilt yfir líst fleiri borgar­búum illa á samstarfið en vel, en þó munar ekki miklu og tæp fjörutíu prósent falla í sinn hvorn hópinn á meðan að tæplega fjórðungi líst hvorki vel né illa á samstarfið.

Langflestir vildu sjá Einar sem borgarstjóra

Könnun Maskínu náði til 615 kjósenda í Reykjavik og var framkvæmd dagana 1.-7. júní. Í henni var spurt hvern oddvitanna fjögurra fólk myndi helst vilja sjá sem borgar­stjóra. Niður­staðan varð sú að yfir helmingur aðspurðra, heil 52,8 prósent, vildu sjá Einar Þorsteinsson setjast í stól borgar­stjóra, en 23,8 prósent vildu sjá Dag B. Eggertsson halda áfram sem borgar­stjóra.

Eins og sagt var frá í gær munu þeir Dagur og Einar skipta með sér borgar­stjóra­stólnum á kjör­tímabilinu, en Einar tekur við af Degi sem borgar­stjóri 1. janúar 2024.

Í könnun Maskínu eru svörin greind niður á kjósendur meirihlutans og kjósendur minni­hlutans. Er kemur að kjósendum meirihlutans vildu 37,4 prósent þeirra sjá Einar sem borgar­stjóra og 36,8 prósent Dag, en hjá kjósendum þeirra flokka sem sitja í minni­hluta í borgar­stjórn vildu 73 prósent sjá Einar í borgar­stjóra­stólnum – og einungis 6,7 prósent Dag.

Alls vildu 17,6 prósent sjá Dóru Björt Guðjóns­dóttur oddvita Pírata setjast í stól borgar­stjóra, en 5,8 prósent töldu rétt að Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir leiðtogi Viðreisnar yrði borgar­stjóri.

Maskína spurði einnig að því hvern af oddvitunum kjósendur vildu síst sjá sem næsta borgar­stjóra. Þar bar Dagur B. Eggertsson nokkra yfirburði, en 49,5 prósent svarenda sögðust síst vilja sjá Dag áfram sem borgar­stjóra. Í þessari spurningu var Einar Þorsteinsson oftast nefndur af kjósendum Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata.

Íbúum vestar í borginni líst betur á meirihlutann

Íbúum í Miðborg og Vesturbæ og Hlíðum/Laugardal/Háaleiti og Bústöðum leist betur á samstarf flokkanna fjögurra en íbúum austan Elliðaáa. Í Miðborg og Vesturbæ leist 47 prósentum vel á samstarfið og 41 prósenti á öðrum svæðum innan Elliðaáa, en einungis 28 prósentum íbúa í Reykjavík austan Elliðaáa.

Fyrirsögn fréttarinnar hefur verið breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár