Stóru línurnar í þróun borgarinnar breytast lítið með nýjum meirihluta

Framsókn undir for­ystu Einars Þor­steins­sonar virð­ist hafa fallið eins og flís við rass að stefnu síð­asta meiri­hluta í málum sem varða fram­tíð­ar­vöxt og -þróun Reykja­vík­ur­borgar. Ögn aukna áherslu á upp­bygg­ingu í jaðri byggðar má þó sjá í nýju sam­starfi.

Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Fram­sóknar, Pírata og Við­reisnar í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar kynnti mál­efna­samn­ing sinn á blaða­manna­fundi í Elliða­ár­dal í gær. Sátt­mál­inn er settur fram í plaggi sem teygir sig yfir 33 blað­síður og er rúm­lega 4.500 orð að lengd. Til sam­an­burðar var sam­starfs­sátt­máli síð­asta borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta settur fram í rúm­lega 2.800 orðum á 16 blað­síðum.

Kjarninn rýndi í nokkur lyk­il­at­riði sátt­mál­ans út frá stefnum flokk­anna, en flokk­arnir fjórir voru sam­kvæmt fram­lögðum kosn­inga­stefnum mál­efna­lega sam­mála um marga hluti. Meiri­hluta­sátt­mál­inn er loð­inn um margt og almennt orð­aður, en í honum má síður en svo merkja ein­hverja kúvend­ingu á stefnu borg­ar­innar í helstu mála­flokkum, þrátt fyrir að áhrif atriða sem Framsókn tal­aði fyrir í kosn­inga­bar­átt­unni sjá­ist all­víða.

Þróun og vöxtur borgarinnar

Einna helst var blæ­brigða­munur á Framsókn og hinum þremur flokk­unum um áherslur í hús­næð­is­upp­bygg­ingu í borg­inni – en Framsókn tal­aði af nokkrum krafti fyrir því að nýtt land yrði brotið undir nýja byggð á meðan að meg­in­á­hersla Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata var á þétt­ingu byggðar, auk bygg­ingar hins nýja borg­ar­hverfis á Ártúns­höfð­anum, en þar eiga þús­undir íbúða að rísa á næstu árum sam­kvæmt nýlegum breyt­ingum á aðal­skipu­lagi borg­ar­innar.

Framsókn reið inn í kosn­inga­bar­átt­una með nokkra áherslu á hrað­ari upp­bygg­ingu Keldna­lands­ins en áður hafði verið stefnt að. Segja má að síð­asti meiri­hluti hafi brugð­ist við því ákalli Fram­sóknar þegar í kosn­inga­bar­átt­unni.

Tveimur vikum fyrir kosn­ingar var blaða­mönnum boðið að mæta upp að Keldum til að fylgj­ast með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ingar á milli Reykja­vík­ur­borgar og Betri sam­gangna ohf. um að flýta upp­bygg­ingu tveggja leiða Borg­ar­línu, frá Krossamýr­ar­torgi að Keldna­holti og frá Voga­byggð í Efra-Breið­holt. Samkvæmt vilja­yf­ir­lýs­ing­unni átti að efna til sam­keppni um þróun Keldna­lands­ins og Keldna­holts­ins og þær nið­ur­stöður að liggja fyrir áður en árið er á enda.

Þessar áherslur um Keldna­landið og Keldna­holtið eru á meðal þeirra sem eru á lista yfir aðgerðir sem nýi meiri­hlut­inn seg­ist ætla að ganga beint í á fyrstu mán­uðum sínum við völd. Einnig ætlar meiri­hlut­inn að ráð­ast í hús­næð­isá­tak og úthluta lóðum í Úlf­arsár­dal, á Kjal­ar­nesi, á Hlíð­ar­enda og í Gufus­nesi, auk lóða á Ártúns­höfð­anum, á næstu mán­uðum. Ekkert er þó tekið fram í sátt­mál­anum um hversu margar íbúðir áætlað sé að bygg­ist upp t.d. í Úlf­ars­árs­dal umfram núver­andi áætl­anir.

Í sátt­mál­anum segir að skipu­lags­sýn hins nýja meiri­hluta byggi á aðal­skipu­lag­inu fram til 2040, „með ákveðnum breyt­ingum“, eins og þeirri að flýta upp­bygg­ingu Keldna­lands frá því sem áður var sam­þykkt. Upp­bygg­ing verði tryggð á þeim svæðum sem áður hafa verið nefnd, auk þess sem haldið verði áfram að byggja upp á reitum vestar í borg­inni, „við Kringl­una, í Skeif­unni, á Hlíð­ar­enda, við Vest­ur­bugt, á Kirkju­sandi, á Heklu­reit, á Orkureit, á LHÍ-reit í Laug­ar­nesi og á fleiri svæðum“.

Ætla að standa vörð um svæðisskipulagið

Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn seg­ist ætla að „standa vörð“ um svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í sam­starfi við önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en ljóst er að nokkur tog­streita gæti orðið um svæð­is­skipu­lagið, sem gildir til 2040, á næstu árum.

Nýr meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar í Hafn­ar­firði lýsir því til dæmis yfir í sínum mál­efna­samn­ingi að hann muni leggja ríka áherslu „á upp­töku svæð­is­skipu­lags höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins svo brjóta megi nýtt land“ undir byggð, en svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem öll sveit­ar­fé­lög svæð­is­ins sam­mælt­ust um árið 2015 felur í sér að útþenslu byggðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru sett ákveðin mörk.

Áfram kvaðir um félagslegar íbúðir og óhagnaðardrifna uppbyggingu

Nýi meiri­hlut­inn ætlar að halda áfram að fylgja við­miðum aðal­skipu­lags borg­ar­innar um að 5 pró­sent nýrra íbúða verði félags­legar íbúðir og 20 pró­sent íbúða verði á vegum óhagn­að­ar­drif­inna félaga.

Einnig vill meiri­hlut­inn beita sér fyrir því að gerður verði hús­næð­is­sátt­máli ríkis og sveit­ar­fé­laga, sem skil­greini „hlut­deild og skyldur sveit­ar­fé­laga í hús­næð­is­upp­bygg­ingu, við­mið um hlut­deild hagn­aðar- og óhagn­að­ar­drif­innar hús­næð­is­upp­bygg­ingar og hlut­deild félags­legs hús­næðis,“ en bæði Sam­fylk­ingin og Framsókn fóru fram með áherslu á „hús­næð­is­sátt­mála“ sem tæki til fleiri sveit­ar­fé­laga í stefnu­skrám sínum fyrir kosn­ingar.

Borgarlínu flýtt og Sundabraut fyrir alla ferðamáta

Í sam­göngu­málum segir hinn nýi meiri­hluti styðja sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. . „Við viljum flýta Borg­ar­línu og hjóla­stíga­neti höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Við ætlum að klára skipu­lag fyrir Arn­ar­nes­veg, við ætlum að útfæra gatna­mót við Bústaða­veg meðal ann­ars með til­liti til Borg­ar­línu og hefja und­ir­bún­ing að hönnun og fram­kvæmd stokka fyrir Miklu­braut og Sæbraut,“ segir um þau mál sem varða sam­göngusátt­mál­ann í meiri­hluta­sátt­mál­anum.

Í kafl­anum lofts­lag og sam­göngur segir enn fremur að meiri­hlut­inn vilji að „öll ákvarð­ana­taka innan borg­ar­innar taki mið af mark­miðum í lofts­lags­málum og áhrifum ákvarð­ana á þau“ en það stefnu­mál er nær orð­rétt upp úr kosn­inga­stefnu­skrá Pírata, sem einmitt munu fara með for­mennsku í nýju umhverfis- og skipu­lags­ráði borg­ar­innar.

Í sátt­mál­anum er kveðið á um að sam­komu­lagi ríkis og borgar frá 2021 um gerð Sunda­brautar verði fylgt eftir. „Ráðist verður í gerð umhverf­is­mats, haf­ist handa við víð­tækt sam­ráð, og nauð­syn­legar skipu­lags­breyt­ingar vegna Sunda­brautar und­ir­búnar. Leggja þarf áherslu á að Sunda­braut nýt­ist öllum ferða­mátum, skoða lofts­lags­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar, áhrif hennar á nær­liggj­andi byggð og rýna mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir,“ segir um Sunda­braut­ina í sátt­mál­anum.

Ef Sunda­brautin á að nýt­ast öllum ferða­mátum, eins og borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn seg­ist í sátt­mála sínum ætla að leggja áherslu á, er ólík­legt að hún verði útfærð í jarð­göngum undir Klepps­vík, sem hefur til þessa verið annar tveggja val­mögu­leika um legu braut­ar­innar á þeim kafla.

Í gegnum árin er búið að velta upp ýmsum útfærslum um lagningu Sundabrautar. Nýr meirihluti vill að hún geti nýst öllum ferðamátum.
Í gegnum árin er búið að velta upp ýmsum útfærslum um lagn­ingu Sunda­brautar. Nýr meiri­hluti vill að hún geti nýst öllum ferða­mátum.

Í sam­göngu­málum má svo nefna að meiri­hlut­inn vill að næt­ur­strætó verði tek­inn aftur upp, sem ætti að geta létt á álag­inu á leigu­bíla­stöðvum og skutl­ara-hópum á Facebook við að koma þeim sem eru á næt­ur­brölti í mið­borg­inni heim tíl sín. Meiri­hlut­inn seg­ist líka vilja halda áfram að draga úr skutli og inn­leiða hámarks­hraða­á­ætlun í borg­inni, auk þess að draga úr svifryks­mengun.

Meiri­hlut­inn seg­ist einnig vilja und­ir­búa Sam­göngu­mið­stöð Reykja­víkur á BSÍ-reit og vinna að því að græn sam­göngu­teng­ing kom­ist á milli Reykja­víkur og Kefla­víkur.

Græna planið uppfært

Um fjár­mál borg­ar­innar segir nýi meiri­hlut­inn að hann ætli að hafa „ráð­deild í rekstri og vand­aða fjár­hags­á­ætl­un­ar­gerð í fyr­ir­rúmi“. Meiri­hlut­inn seg­ist ætla að hag­ræða í rekstri, halda áfram 1 pró­sent hag­ræð­ingu innan kerfi og sam­eina ein­ingar í borg­ar­kerf­inu, t.d. sam­eina mála­flokka íþrótta og menn­ingar í einu sviði.

Útsvar borg­ar­búa verður óbreytt og við lög­bundið hámark, sem er 14,52 pró­sent. Meiri­hlut­inn stefnir á að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði í lok kjör­tíma­bils­ins en ekki kemur fram í sátt­mál­anum hversu mikið til stendur að lækka þá skatta.

Ekkert er fjallað um lækkun fast­eigna­skatts á íbúð­ar­hús­næði, en borgin er nú þegar á meðal sveit­ar­fé­laga þar sem hann er lægstur, eða 0,18 pró­sent og öfugt við flest önnur sveit­ar­fé­lög eru gjöld á borð við vatns- og frá­veitu­gjöld ekki bein­tengd við fast­eigna­matið í Reykja­vík. Sú mikla hækkun fast­eigna­mats sem tekur gildi næstu ára­mót bitnar því síður á reyk­vískum heim­ilum en öðrum í formi skatta og gjalda.

Meiri­hlut­inn seg­ist ætla að upp­færa fjár­fest­ing­ar­á­ætl­un­ina Græna planið og end­ur­skoða 10 ára fjár­mála­stefnu borg­ar­innar „til að tryggja svig­rúm til fjár­fest­inga, rekstrar, sjálf­bærni og lang­tíma­stöð­ug­leika“ en orða­lagið gefur til kynna að eitt­hvað verði dregið úr þeim fjár­fest­ing­ar­á­formum sem sett voru fram í upp­hafi undir hatti Græna plans­ins.

Nýi meiri­hlut­inn seg­ist einnig ætla að „vinna að leið­rétt­ingu á fjár­mögnun verk­efna sem flust hafa frá rík­inu svo sem þjón­ustu við fatlað fólk“ en nýlega kom fram skýrsla frá hinu opin­bera sem sýndi fram á að rekstr­ar­nið­ur­staða sveit­ar­fé­laga vegna þess­arar þjón­ustu var orðin nei­kvæð um tæpa 9 millj­arða árið 2020 og borgin bar meira en helm­ings þess halla. Þetta vill nýr meiri­hluti fá leið­rétt með auk­inni fjár­mögnun frá rík­inu.

Leikskólamál lítið útfærð í sáttmála

Leik­skóla­málin fengu nokkuð mikið rými í umræð­unni fyrir kosn­ing­arnar í borg­inni. Nýr meiri­hluti er þó fáorður um mála­flokk­inn í mál­efna­sátt­mál­anum, en seg­ist ætla að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla „með fjöl­breyttum aðferðum“.

Síðasti meiri­hluti mót­aði stefnu um að brúa bilið á síð­asta kjör­tíma­bili og þess má vænta að áætl­anir um fjár­fest­ingar í upp­bygg­ingu leik­skóla­plássa haldi áfram undir stjórn þess nýja meiri­hluta sem nú hefur tekið við.

Auðvelt ætti að verða fyrir fjöl­miðla að veita nýjum meiri­hluta aðhald hvað leik­skóla­málin varðar, enda eign­uð­ust odd­vitar bæði Fram­sóknar og Pírata börn á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unna. Verður fróð­legt að sjá hvort þau nái að inn­rit­ast á leik­skóla um það leyti sem árslangt fæð­ing­ar­or­lof for­eldr­anna rennur sitt skeið næsta vor.

Meiri­hlut­inn hyggst inn­leiða systkina­for­gang í leik­skóla, en það er áherslu­mál sem Framsókn var með á sinni stefnu­skrá. Systkina­for­gang­ur­inn var áður við lýði en svo afnum­inn í borg­inni árið 2008, þar sem hann var tal­inn brjóta gegn jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­réttar.

Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn seg­ist ætla að gera við­halds­á­tak í leik- og grunn­skólum og frí­stunda­hús­næði að for­gangs­máli og flýta verk­efnum í þeim efnum eins og kostur er.

Meiri­hlut­inn seg­ist einnig ætla að end­ur­skoða fjár­mögnun sjálf­stætt starf­andi grunn­skóla, „með það að mark­miði að þeir verði fjár­magn­aðir með sam­bæri­legum hætti og hinir borg­ar­reknu en inn­heimti þess í stað ekki skóla­gjöld, inn­taka barna sé sam­bæri­leg og að aukið fjár­magn frá borg­inni sé nýtt í skóla­þróun en sé ekki tekið út sem arður.“ Viðreisn lagði mikla áherslu á fjöl­breytt rekstr­ar­form í skóla­kerf­inu í sinni stefnu­skrá fyrir kosn­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið undanfarið ár