Hver er framtíð tómlega túnbalans í horni Laugardalsins?

Smáhýsi fyrir heim­il­is­lausa í Laug­ar­dal hafa verið sam­þykkt í borg­ar­ráði þrátt fyrir mót­bárur, en hvað svo? Kjarninn skoðar þær hug­myndir og áætl­anir sem eru uppi um gras­balann mikla vestan við Glæsibæ. Þar er jafn­vel rætt um að setja niður leik­skóla.

Eyði­legur gras­bali í grennd við horn Suð­ur­lands­brautar og Engja­vegar í Reykja­vík hefur verið tölu­vert í umræð­unni að und­an­förnu. Í vik­unni sem leið sam­þykkti meiri­hluti borg­ar­ráðs, gegn mót­bárum borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks, deiliskipu­lag sem felur í sér að sett verði upp nokkur smá­hýsi fyrir skjól­stæð­inga vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar vest­ast á þessum reit.

Eins og Kjarninn hefur sagt frá hefur þeim áformum verið tekið fremur fálega af hálfu ýmissa aðila, meðal ann­arra íþrótta­fé­laga í Laug­ar­dalnum og fast­eigna­fé­lags­ins Reita, sem stendur að upp­bygg­ingu á svoköll­uðum Orkureit handan Suð­ur­lands­brautar, en þar á að byggja hund­ruð íbúða í háreistum húsum á næstu árum.

Smáhýsin, sem borgin ætlar að setja upp fyrir fólk sem stendur höllum fæti, eru ekki hugsuð til allrar fram­tíðar, en í áætl­unum borg­ar­innar er kveðið á um að þau verði víkj­andi í skipu­lagi. Það þýðir að þegar borgin ráð­stafar svæð­inu þar sem þeim er ætlað að standa undir ein­hver fast­mótuð fram­tíð­ar­á­form muni úrræðið víkja af staðnum.

Í mál­flutn­ingi sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­ráði voru sett fram þau við­horf að Laug­ar­dal­inn skuli vernda fyrir íbúða­byggð. „Ekki á að heim­ila íbúða­byggð með neinum hætti í Laug­ar­dalnum enda verður enn meiri þörf fyrir dal­inn sem úti­vistar- og íþrótta­svæði í fram­tíð­inni en nú er,“ sagði auk ann­ars í bókun full­trú­anna á borg­ar­ráðs­fundi í vik­unni.

Dauflegt svæði í borginni miðri

Þetta svæði, sem er við hlið Glæsi­bæjar, var ansi dauf­legt á að líta er blaða­maður Kjarnans átti leið hjá á föstu­dag. Gras­balinn var algjör­lega auður, með þeirri und­an­tekn­ingu að á honum stóð einn ein­mana gámur.

Ögn vestar er síðan illa hirt og holótt bíla­stæði, þar sem auk ann­ars stóð gámur, tveir sendi­bílar, ein­hver hús­bíll án bíl­núm­era og vöru­flutn­ingagámur merktur Gung-Ho, sem í sumar var með stærð­ar­innar hoppukast­ala­þrauta­braut á svæð­inu. Á bíla­stæð­inu voru einnig ein­hverjar járn­grindur, sem lík­lega voru nýttar í tengslum við starf­semi hoppukast­al­ans stóra.

Áætlanir borg­ar­innar núna lúta því að því að taka hluta þessa svæðis, sem í dag er eig­in­lega alveg tómt og varla nýtt árið um kring, og setja þar niður fimm smá­hýsi.

Svæðið sem er hugsað undir smáhýsin fimm er við bílastæðið sem þarna er í dag.
Svæðið sem er hugsað undir smá­hýsin fimm er við bíla­stæðið sem þarna er í dag.

Á fundi borg­ar­ráðs á fimmtu­dag­inn bók­uðu full­trúar meiri­hlut­ans að þau von­uðu að nálægð reits­ins við úti­vist­ar­svæði, almenn­ings­sam­göngur og sam­fé­lags­inn­viði myndu hafa jákvæð áhrif á þau sem þar kæmu til með að búa.

Opið fyrir byggingar um áratugaskeið

En hvað á svo að gera við þetta van­nýtta svæði til langrar fram­tíðar?

Það liggur ekki fyrir, en sam­kvæmt svörum sem borgin setti frá sér vegna athuga­semda sem settar voru fram við drög að breyttu aðal­skipu­lagi borg­ar­innar fram til árs­ins 2040 hefur lengi verið gert ráð fyrir þeim mögu­leika að byggja á umræddu götu­horni – raunar í öllum aðal­skipu­lags­á­ætl­unum sem gerðar hafa verið í Reykja­vík síðan á 7. ára­tugnum.

„Reit­ur­inn er hluti þess svæðis í deiliskipu­lagi Laug­ar­dals, þar sem skipu­lagi er frestað. Endanleg ákvörðun um hlut­fall byggðar og úti­vistar á svæð­inu hefur því ekki verið tekin,“ sagði í svari borg­ar­innar við athuga­semdum sem bár­ust við drög að upp­færðu aðal­skipu­lagi.

Í þeim til­lögum að aðal­skipu­lagi sem skipu­lags- og sam­göngu­ráð sam­þykkti í vik­unni sem leið er verið að stækka svæði sem heitir í skipu­lag­inu M15 (Miðsvæði 15) og teygja það yfir Engja­veg­inn inn á gras­balann við hlið Glæsi­bæjar. Það nær ekki alveg að þeim stað þar sem fyr­ir­hugað að skjóta inn smá­hýs­unum, en þó lang­leið­ina.

Reiturinn M15 Glæsibær teygist yfir á vannýtta túnið í uppfærslu aðalskipulagsins til 2040.
Reit­ur­inn M15 Glæsibær teyg­ist yfir á van­nýtta túnið í upp­færslu aðal­skipu­lags­ins til 2040.

„Borg­ar­línu­stöð verður stað­sett við þetta götu­horn og því mik­il­vægt að mynda á svæð­inu ákveðna þunga­miðju. Áður en end­an­leg til­laga verður mótuð þarf að ákvarða nánar um umfang byggð­ar­innar, frek­ari afmörkun reits og skoða í sam­hengi við þann bygg­ing­ar­reit sem þegar er skil­greindur með­fram Suð­ur­lands­braut að norð­an­verðu,“ sagði í svari borg­ar­innar við athuga­semdum við drög að aðal­skipu­lag­inu, sem meðal ann­ars komu frá Reitum.

Suðurlandsbraut að norðanverðu?

Já, einmitt. Í breyttu aðal­skipu­lagi Reykja­víkur er skil­greindur reitur sem heitir M52g undir bland­aða byggð við norð­ur­hlið Suð­ur­lands­brautar, á milli umferð­ar­göt­unnar og Laug­ar­dals­ins.

Það eru þannig áform um að gera að gera Suð­ur­lands­braut­ina að breið­götu, búlevarði, með húsum til beggja handa, sam­hliða því sem Suð­ur­lands­braut­inni verður breytt veru­lega vegna legu Borg­ar­línu um hana.

Þessi skipu­lags­reitur er ræma með­fram Suð­ur­lands­braut­inni sem nær alla leið frá Reykja­vegi og lang­leið­ina niður að gatna­mótum Grens­ás­vegs og Engja­vegs, eins og sjá má á mynd­inni hér að neðan.

Áform um að byggja á þessum slóðum voru á meðal ástæðna sem gerði það að verkum að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sögð­ust ekki geta stutt breytt aðal­skipu­lagið og greiddu atkvæði gegn því í skipu­lags­ráði í vik­unni.

Reitur M2g liggur hér meðfram Suðurlandsbrautinni. Þar eru opnað á 2-4 hæða byggð, þó án þess að ganga á græn svæði í Laugardalnum sjálfum.
Reitur M2g liggur hér með­fram Suð­ur­lands­braut­inni. Þar eru opnað á 2-4 hæða byggð, þó án þess að ganga á græn svæði í Laug­ar­dalnum sjálfum.

„Á svæði M2g er gert ráð fyrir blöndu versl­unar, þjón­ustu, skrif­stofa og íbúða. Lágreist byggð (2–4 hæðir) sem fellur að götu­mynd Suð­ur­lands­brautar og með opnum sjón­ásum til dals­ins. Mögulegt bygg­ing­ar­svæði er háð því að Suð­ur­lands­braut verði end­ur­hönnuð og skal miða við að ekki verði gengið á græn úti­vistar- og íþrótta­svæði í Laug­ar­dalnum,“ segir um reit­inn í aðal­skipu­lag­inu sem sam­þykkt var í skipu­lags­ráð­inu í vik­unni.

Reitir stinga upp á leikskóla og tjörn

Í umsögn við end­an­legar til­lögur borg­ar­innar að breyttu aðal­skipu­lagi fram til árs­ins 2040 gerðu Reitir athuga­semdir við það að opnað yrði á bygg­ingar á horn­inu gegn Orku­reitnum.

Reitir gerðu þannig athuga­semd við áður­nefnda stækkun mið­svæðis M15 inn í Laug­ar­dal­inn og vöktu athygli á til­lögu sem kom fram í tengslum við skipu­lags­vinnu Orku­reits, „sem Reitir telja við­eig­andi dæmi um nýt­ingu reits vestan við Glæsibæ.“

Reitir sjá fyrir sér að mögulega gæti þarna verið leikskóli í framtíðinni.
Reitir sjá fyrir sér að mögu­lega gæti þarna verið leik­skóli í fram­tíð­inni.

„Hug­myndin gengur út á að fram­lengja stíg með trjá­göngum sem liggur i gegnum Laug­ar­dal­inn og upp á milli Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs upp að áform­aðri Borg­ar­línu­stöð við Laug­ar­dal. Svæðið verður þá áfram að mestu leyti grænt svæði til úti­vistar og nýt­ist einnig til að miðla ofan­vatni frá aðlægum hverfum með tjörnum sem hægt er að móta fal­lega. Jafn­framt væri hægt að koma þar fyrir leik­skóla sem felldur yrði inn í umhverfið. Þannig verður ekki gengið frekar á græn svæði Laug­ar­dals og íbúða­byggð ekki hleypt inn í dal­inn. Ekki er mikið eftir af óskipu­lögðu svæði í Laug­ar­dalnum, sem er óhindrað opið almenn­ingi. Tillagan er dæmi um heil­steypta mynd af Laug­ar­dalnum, sem skýrist helst af tjá­göng­unum, sem eru hjarta stíga­kerf­is­ins í Dalnum, og teng­ingu við Borg­ar­línu­stöð­ina,“ sagði í umsögn Reita.

Borgin tók ekki mikla afstöðu til þess­arar hug­myndar fast­eigna­fé­lags­ins, en í svari borg­ar­innar við þess­ari athuga­semd Reita sagði að ekki hefðu verið teknar „end­an­legar ákvarð­anir um form, eðli og magn byggðar á umræddu svæði“, auk þess sem því var svarað til að M15 Glæsibær væri borg­ar­hluta­kjarni og innan þeirra mætti „m.a. gera ráð fyrir leik­skólum, bygg­ingum sem þjóna úti­vist og almenn­ings­rýmum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið undanfarið ár