Spyr hvort komið hafi verið í veg fyrir hagsmunaárekstra ráðherra vegna samkomulags við aflandskrónueigendur

Björn Valur Gíslason vara­formaður Vinstri grænna vill vita hvort Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra hafi spurt ráðherra ríkis­stjórnarinnar um hugsanleg fjárhagsleg hagsmuna­tengsl vegna samkomu­lags við eigendur aflands­króna og breytinga á reglum um fjármagns­flutninga.

Björn Valur Gíslason, vara­þingmaður og vara­formaður Vinstri grænna, vill vita hvort Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra hafi kallað eftir upplýsingum frá ráðherrum ríkis­stjórnarinnar um hugsanlega fjárhags­lega hagsmuni þeirra og tengdra aðila vegna samkomu­lags við eigendur aflands­króna og breytinga á reglum um fjármagns­flutninga. 

Björn lagði fram fyrir­spurn um málið á Alþingi í dag. Þar er spurt hvort einhverjir ráðherrar hafi upplýst innan ríkis­stjórnar um fjárhags­lega hagsmuni sína eða tengdra aðila vegna málsins og hvort forsætis­ráðherra telji ástæðu til að kalla eftir frekari upplýsingum um hugsanlega fjárhags­lega hagsmuni samráð­herra sinna.

Í greinar­gerð sem fylgir fyrir­spurn Björns Vals er bent á að í ræðu um afnám gjaldeyris­hafta á Alþingi þann 13. mars síðastliðinn sagði Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahags­ráðherra að miklir hagsmunir væru í húfi við afnám haftanna. Um þau giltu innherja­reglur og mikilvægt væri að allir markaðs­aðilar sætu við sama borð.

„Sumir þeirra komu á vettvang stjórn­málanna,
og skömmu síðar í ráðherra­embætti, beint úr störfum fyrir hagsmuna­aðila“

„Í ríkis­stjórninni eiga nú sæti nokkrir ráðherrar sem haft hafa mikil tengsl í atvinnu- og viðskipta­lífinu. Sumir þeirra komu á vettvang stjórn­málanna, og skömmu síðar í ráðherra­embætti, beint úr störfum fyrir hagsmuna­aðila og aðrir rakleitt frá því að vera virkir aðilar og stjórn­endur í fjármála- og viðskipta­lífinu,“ skrifar Björn Valur.

„Nýlegar ráðstafanir í gjaldeyris­málum geta varðað miklu fyrir ýmsar greinar atvinnu­starfsemi og viðskipta. Mikilvægt er að hafið sé yfir allan vafa að ráðherrar og aðilar þeim tengdir hafi ekki haft hagsmuni af slíkum ákvörðunum umfram almenning og þær kringum­stæður sem að framan var lýst krefjast þess að um það sé spurt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár